Íslandsmót skákfélaga frá sjónarhorni liðsmanns í KR

 

 

Félagar mínir hjá KR fengu mig til Íslands að keppa með þeim á Íslandsmóti skákfélaga 2009-2010. KR sendir 5 sveitir í keppnina, en ég tefldi á 3. borði í a-sveit félagsins. Liðstjóri sveitarinnar er Einar S. Einarsson. Þessi grein verður svolítið sjálfhverf, enda hverf ég algjörlega inn í heim skákanna sem ég tefli, og utanaðkomandi umhverfi og öfl gleymast nánast algjörlega á meðan klukkan tifar.

Ég var ekki eini liðsmaðurinn sem fenginn var erlendis frá, en Nikolai og Sören Bech sem tefldu á 1. og 2. borði eru báðir danskir skákmenn. Ég tefldi á 3. borði. Aðrir liðsmenn sveitarinnar eru þekkt nöfn úr íslenskri skáksögu og hafa gert skákgarðinn frægan bæði og Íslandi og víða um heim í marga áratugi. Þeir sem þekkja íslenska skáksögu sæmilega ættu að skilja af hverju ég er stoltur af því að keppa með slíkum köppum. Þeir sem tefldu með a-sveit KR eru:

  1. Nikolai Skousen
  2. Sören Bech Hansen
  3. Hrannar Baldursson
  4. Jón Torfason
  5. Jóhann Örn Sigurjónsson
  6. Jón G. Briem
  7. Gunnar Gunnarsson
  8. Jón G. Friðjónsson
  9. Ingimar Jónsson
  10. Harvey Georgsson

Árangur okkar var ágætur. Við töpuðum engri viðureign þrátt fyrir að hafa keppt við afar sterkar sveitir. Okkur tókst meðal annars að sigra a-sveit Akureyringa, sem höfðu unnið stórsigra í 1. og 2. umferð, sveit sem hefur alla tíð verið í 1. deild. Gylfi Þórhallsson bjargaði Akureyringum frá stórtapi í klassískri skák með því að reynast ótrúlega úrræðagóður í erfiðri stöðu gegn Jóhanni Erni Sigurjónssyni. Akureyringar ættu að reisa Gylfa styttu fyrir þessa skák.

Við gerðum jafntefli við b-sveit Taflfélags Reykjavíkur í fyrstu umferð, en þá tapaði undirritaður fyrir Daða Ómarssyni í baráttuskák þar sem ég slysaðist inn á slóðir sem voru Daða mun kunnugri en mér, fór hundsvekktur heim það kvöldið, kom hungraður til baka næsta dag og vann rest, þá Helga Jónatansson úr a-sveit Reykjanesbæjar með fallegri fórn, Halldór B. Halldórsson eftir langa baráttu þar sem biskup hans var veikari en riddari minn, og Magnús Gíslason frá Skákfélagi Akranes, þar sem hann byggði upp ágæta stöðu en féll á tíma rétt þegar slagurinn var að hefjast. Við töluðum einmitt um það fyrir umferð að keppni á milli ÍA og KR hefðu ávallt verið klassískar og vonuðumst við eftir skemmtilegum skákum. Sú skemmtilegasta var á milli Gunnars Gunnarssonar og Árna Böðvarssonar á 6. borði, en sú skák endaði með jafntefli eftir sviptingar sem jafnast á við Gamlárskvöld 2006.

 

 

Að loknum fyrstu 4 umferðunum stöndum við ágætlega, erum í 3. sæti og búnir að fá afar sterka andstæðinga. Mig hlakkar til að koma aftur til Íslands í vor og tefla þær umferðir sem eftir eru.

Á Íslandsmóti skákfélaga er margt um manninn. Fullt af gömlum félögum og vinum, sem og skákmönnum sem maður hefur oft mætt yfir borðinu en ekki tengst neinum vinarböndum, enda skák í sjálfu sér íþrótt þar mestu skiptir baráttuþrek, áhugi, þrautseigja, einbeiting, sköpunargleði, útsjónarsemi, góð undirstöðuþekking á fræðunum og djúp þekking á nýjustu kenningum um byrjanir, og stundum finnst mér eins og ég sé að mæta fornum fjanda sem vill komast inn í sál mína og rústa öllum stöðugleika hennar og trú, að minnsta kosti þar til tekist er í hendur að skák lokinni.

 

Einar S. Einarsson, liðsstjóri KR sveitanna, tók myndirnar, en fleiri myndir má finna hér.

Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands og Don Hellismafíunnar gerði upp keppnina hér á afar skýran og góðan hátt, eins og við má búast af Gunnari, en Magnús Pálmi Örnólfsson skrifar einnig pistil og hér má lesa hans hlið málsins.

Sama hvað hver segir um skák á Íslandi og íslenska skákmenn, þá er Íslandsmót skákfélaga jól okkar skákmanna sem finnst gaman að hittast og taka nokkrar bröndóttar í góðum félagsskap.


Pólitískt röng Biblíusaga: Davíð og Golíat

Baugsmenn drógu nú saman hersveitir lögmanna sinna til bardaga, og söfnuðust þeir saman í Bónus, sem heyrir undir Haga, og settu þeir herbúðir sínar upp í verslunum hjá Hagkaup í Skeifunni. En Sjálfstæðisflokkurinn og mótmælendur söfnuðust saman og settu...

Davíð Wonka og sælgætisverksmiðjan

Segjum að Davíð Wonka framleiði sælgæti í verksmiðju. Ekki bara eitthvað sælgæti. Heldur besta sælgæti í heimi. Hann verður skelfilega ríkur og fólk kaupir sælgætið og étur af mikilli græðgi. Fyrr en varir verður fólkið sem elskar nammið feitt og slappt,...

Hvað eiga Davíð Oddsson og Guð sameiginlegt?

Ég skil að fólk sé pirrað út í Davíð og Guð. Þeir eru hins vegar ekki sökudólgarnir. Það er verið að kenna þeim um það sem arftakar þeirra gerðu. Og það er einfaldlega ekki sami hluturinn. Síðustu daga hef ég verið að skrifa greinar um sameiningarafl og...

Hvaða máli skipta staðreyndir fyrir heildarmyndina?

Staðreynd er sannanlegur sannleikur, fullyrðing sem hægt er að endurskoða og staðfesta. Skoðanir og trú byggja stundum á staðreyndum, stundum ekki, en þykja af hörðum staðreyndarsinnum tilgangslausar hneigðir sem koma hinum sannanlega sannleika ekkert...

Felst vanþekking okkar í oftrú á eigin þekkingu?

Óli Jón sendi inn afar áhugaverða pælingu við grein sem ég skrifaði í gær, Eru trúarbrögð nauðsynleg? Ég vil ekki gera lítið úr öðrum athugasemdum með því að birta einungis þessa, en þær eru margar hverjar magnaðar og skemmtilegar aflestrar, bæði þar sem...

Eru trúarbrögð nauðsynleg?

Trúarbrögðin virðast vera það fyrirbæri í heiminum sem hefur mestan sameiningarkraft. Engin trúarbrögð, eða trúleysi, held ég að gangi ekki upp fyrir samfélagsheildina, því miður - til þess þarf vel menntað, gagnrýnið fólk sem hefur óeigingjarnan áhuga á...

Hvað getur sameinað okkur?

Ég upplifði Ísland ekki sem stéttaskipta þjóð á mínum uppvaxtarárum, en held að það hafi breyst fyrir nokkrum árum þegar velmegun varð gífurleg og sumir urðu miklu ríkari en aðrir. Eftir Hrunið skiptist þjóðin upp í enn fleiri stéttir: Fólk sem á...

"Nei!" ???

Nafni minn, Hrannar B. Arnarson, ágætur maður og fyrrum minn í skákhreyfingunni, bloggvinur minn og Facebook vinur, sendi Agli Helgasyni furðulegt svarbréf þegar Egill óskaði eftir að fá Jóhönnu Sigurðardóttur í viðtalsþáttinn Silfur Egils, í raun eina...

Af hverju styð ég greiðsluverkfall?

Frelsisskerðing sú sem heimilin hafa orðið fyrir í mynd ofbeldiskenndrar gróðafíknar sumra auðmanna, gáleysi og ráðleysi stjórnvalda sem og skortur á trausti gagnvart þeim stjórnvöldum sem nú halda völdum er megin ástæða þess að þörf er á friðsamlegum...

Mætti gjöreyða öllum íslenskum fóstrum í móðurkviði ef vilji mæðra væri fyrir hendi?

Segjum að allar íslenskar og tilvonandi mæður með fóstur yngri en 12 vikna vildu fara í fóstureyðingu á þeirri forsendu að þær vildu ekki gera börn sín að þrælum sem borga þyrftu skuldir óreiðumanna meiri part ævi sinnar? Væri hægt að mæla gegn slíkri...

Þú verður að sjá hana í bíó, vísindatrylli ársins: District 9

Kíktu á gagnrýni mína um Svæði 9 (2009) **** á bio.blog.is

Landráð af gáleysi framið í nafni persónuverndar?

Það er afar skýrt í lögum um persónuvernd að yfirleitt sé bannað að safna upplýsingum um nafngreinda einstaklega á skipulegan hátt með tölvukerfum eða á annan hátt, án samþykkis þeirra. Eina undantekningin er ef upplýsingum sé verið að safna fyrir...

Gegnsæi eða gagnsæi?

Mér finnst svolítið skondið að sjá bloggara og blaðamenn skrifa ýmist um mikilvægi 'gegnsæis' eða 'gagnsæis' eins og um sama hlutinn sé að ræða. Ég vil taka það fram að ég kippi mér engan veginn upp við orðanotkunina, en held að hvort tveggja geti...

Spillir vald eða leitar spilling í völd?

Öruggasta leiðin til að spilla ungdómnum er að kenna honum að meta meira þá sem hugsa eins heldur en þá sem hugsa ólíkt. (Friedrich Nietzsche) Borgarahreyfingin virðist komin í ákveðna klemmu. Ósætti í þinghóp og landsfundur virðist snúast um að koma...

Salaskóli að brillera á Norðurlandamóti í skólaskák!

Eftir þrjár umferðir er sveit Salaskóla komin með 10.5 vinninga af 12 mögulegum, en Svíar I og II, auk Dana eru í 2.-4. sæti með 6 vinninga. Ég man ekki eftir jafn glæsilegri byrjun á Norðurlandamóti. Tómas Rasmus fer með liðinu sem liðstjóri og heldur...

Hrós!

Það er auðvelt að vera neikvæður á tímum Hruns og Kreppu, en sumir einstaklingar og stofnanir eru samt að standa sig afar vel, og þeim ber að hrósa. Það vil ég gera í þessari færslu. Vil ég hrósa Birni L. Bergssyni, settum ríkissaksóknara fyrir að gera...

Eru stjórnvöld á villigötum þegar þau gleyma raunverulegri undirstöðu samfélagsins?

Fjölskyldan er undirstöðueining allra samfélaga. Getur verið að hin íslenska þjóð hafi einfaldlega tapað skilningi á hugtökum eins og heimili og fjölskylda, og sjái fólk ekki lengur sem kjarna samfélagsins, heldur eitthvað sem mætir afgangs? Miðað við...

Hver er munurinn á rannsóknarblaðamanni og bloggara?

Ég heiti Hrannar og er bloggari. Bloggarar eru ekki allir eins. Sumir eru nafnlausir. Aðrir hafa nafn. Ég hef nafn. Sumir skrifa upphrópanir og gera mikið grín, og sumir taka bloggið alvarlega, eins og það skipti máli. Ég tek bloggið alvarlega. Skrifa...

VAKNIÐ! Þaggað niður í rannsóknarblaðamönnum bankaráns aldarinnar til að hemja réttláta reiði Íslendinga?

Það lítur út fyrir að EINHVERJIR séu að misnota Fjármálaeftirlitið til þess að misnota skrifstofu sérstaks saksóknara, en FME hefur verið virkt í að þagga niður í rannsóknarblaðamönnum. Af hverju? Meðal ásakaðra: Rannsóknarblaðamennirnir: Egill Helgason,...

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband