Hrós!

Það er auðvelt að vera neikvæður á tímum Hruns og Kreppu, en sumir einstaklingar og stofnanir eru samt að standa sig afar vel, og þeim ber að hrósa. Það vil ég gera í þessari færslu.

Vil ég hrósa Birni L. Bergssyni, settum ríkissaksóknara fyrir að gera lítið úr ákæru Fjármálaeftirlitsins á hendur rannsóknarblaðamönnum sem hafa verið að upplýsa þjóðina um svik og pretti innan fjármálakerfisins. Fjármálaeftirlitið má hins vegar hugsa sinn gang, þar sem að menn virðast hafa meiri áhuga á lagabókstöfum en framgangi réttlætis.

Vil ég einnig hrósa Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir að veita ekki of mörg fjölmiðlaviðtöl, en einbeita sér þess í stað að því sem skiptir mestu máli til að ná árangri í vinnunni. Hún virðist næm fyrir ástandinu og er að leita leiða til að bæta stöðuna, en hefur því miður ekki beint sjónum sínum að hinum grafalvarlega vanda heimila sem eru að sligast undan auknu álagi, og þeim sem þegar eru hrunin. Jóhanna bauð sig fram í starf á augnabliki þegar hún var álitinn nánast dýrlingur af fjölmörgu fólki, en hún mátti vita að hún væri að leggja í leiðangur sem yrði erfiður og að á leiðinni myndu vinsældirnar hrynja af henni. Ég dáist að henni fyrir að halda sínu striki, þó að ekki geti ég sagt að ég dýrki hana. 

Reyndar kom mér svolítið á óvart afsökunarbeiðni Jóhönnu í tengslum við heimili sem börn voru send á, og áttaði mig ekki alveg á af hverju þetta skaut upp kollinum eins og álfur út úr hól, en svo sá ég spurningalista Evrópusambandsins og las um mikilvægi mannréttinda, sem er nokkuð sem Íslendingar hafa ekki verið duglegastir allra þjóða að verja, en ég get ímyndað mér að þetta mál verði hægt að nota til að sýna áhuga ríkisstjórnarinnar á mannréttindum.

Einnig vil ég hrósa mínum kæra vini Sæbergi Sigurðssyni sem sigraði á atskákmóti Hellis síðastliðinn mánudag. Þar fer toppmaður, snillingur á mörgum sviðum.

Það er hægt að hrósa fullt af fólki. Egill Helgason og Lára Hanna eru líka mjög ofarlega á listanum.

Verkefni: veltu fyrir þér hverjir hafa verið að gera góða hluti að þínu mati að undanförnu, og hafðu sérstaklega fyrir þeim að hrósa þeim á einhvern hátt. Hrósaðu þeim almennilega. Fólki veitir ekki af svona rétt fyrir veturinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Hrannar - þakka þér fyrir góða pistla og gaman þykir mér að sjá hér í bloggheimum skrifað á jákvæðum nótum, það léttir lundina eftir alla þá neikvæðni sem hefur verið ráðandi undanfarið.

Eyþór Örn Óskarsson (IP-tala skráð) 10.9.2009 kl. 18:00

2 Smámynd: Ómar Ingi

Ég vil hrósa þér fyrir skemmtilegt blogg.

Ómar Ingi, 10.9.2009 kl. 20:12

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mikið er gott að fá jákvæðan pistil á bloggið, neikvæðnin er svo mikil. Það eru  svo margir að gera góða hluti núna en við gleymum ansi oft að tala um það. Tek undir með hrósið til Björn L Bergssonar. Fjármálaeftirlitið hefur legið undir miklu ámæli fyrir aðgerðarleysi og það með réttu. Mér finnst gott að Gunnar Andersen hafi sent inn þessa kæru því lög landsins gera honum það skylt. Ég er ekki sammála henni og ekki lögunum sem hún byggir á. Kæran vekur hinsvegar athygli á fáránleika laganna og nauðsyn þess að endurskoða þau. Hrósið til Jóhönnu tek ég undir með heilum hug og ég er ánægð með afsökunarbeini frá ríkisstjórninni í kjölfar að skýrslan um málefni vistheimila barna var lögð fram. Það þarf ekki að áminna Jóhönnu Sigurðardóttir um mikilvægi mannréttinda. Hún hefur barist fyrir þeim allan sinn feril og gerir enn.  Ég fagna líka því að góður gangur virðist vera í umsóknarferlinu um ESB og hrós mitt fá allir þeir sem vinn að málinu.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 10.9.2009 kl. 20:56

4 Smámynd: Vestarr Lúðvíksson

Vissulega eiga þau Jóhanna og Steingrímur hrós skilið fyrir að taka að sér að moka skítinn í burtu - eftir 18 ára efnahagsstjórn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Samfylkinguna. Gott ef þeim tekst að laga hlutina og færa til betri vegar !

Vestarr Lúðvíksson, 11.9.2009 kl. 23:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband