Eru stjórnvöld á villigötum þegar þau gleyma raunverulegri undirstöðu samfélagsins?

 


 

Fjölskyldan er undirstöðueining allra samfélaga. Getur verið að hin íslenska þjóð hafi einfaldlega tapað skilningi á hugtökum eins og heimili og fjölskylda, og sjái fólk ekki lengur sem kjarna samfélagsins, heldur eitthvað sem mætir afgangs? Miðað við forgangsröðun ríkisstjórnarinnar held ég að það sé málið.

Veltum þessu fyrir okkur og hvernig skuli forgangsraða í kjölfar Hrunsins og Kreppunnar.

 

noticia_9356_normal

 

Einstaklingar fá störf hjá fyrirtækjum til að halda fjölskyldunni gangandi, þannig að fyrirtækin þjóna fyrst og fremst hagsmunum einstaklinga, og þar með heimila, sama hvort að þú sért eigandi fyrirtækis eða starfsmaður. Hins vegar getur svo farið að starfsmaður eða eigandi sé orðinn það vellauðugur að hann áttar sig ekki lengur á því að starfið er í þjónustu við heimilið. Hugsanlega hefur átt sér stað einhvers konar firring þar sem þessi tengsl hafa horfið úr huga fólks. Vissulega eru störf nauðsynleg fyrir einstaklinga og velgengni fyrirtækja samofin lífi okkar allra, en þegar kemur að neyðarástandi þarf að forgangsraða rétt. Þegar skip farast er fyrst hugað að mannslífum, það sama á að gera þegar þjóðfélag fer undir. Heimilin eru í forgangi hjá lýðveldisríkjum. Ísland virðist ekki vera slíkt ríki.

 


 

Þar sem að íslenska krónan hefur fallið, hefur það að sjálfu sér gert þeim fyrirtækjum sem selja þjónustu úr landi mikið gagn, þó að gjaldeyristakmarkanir trufli sjálfsagt þau viðskipti. En fyrirtækin eiga ekki að vera í forgangi, einfaldlega vegna þess að þau þjóna fólkinu, en ekki fólkið fyrirtækjunum.

 


 

Sama gildir um ríkisstofnanir, eins og til dæmis grunnstofnunina, Alþingi. Þeim er ætlað að þjóna þegnum landsins, en ekki öfugt. Þar af leiðandi koma þær aftar í forgangsröðina. Í kapítalísku þjóðfélagi eru fyrirtæki sett í forgang á undan ríkisstofnunum, en öfugt í kommúnistaríki. Þar sem hvorugt virðist vera í gangi á Íslandi akkúrat núna, má sjálfsagt ímynda sér að við séum einhvers staðar á milli þessara tveggja afla. En svo er þó ekki.

 


 

Ísland er auðveldisríki, sem sannast á því að Ríkið forgangsraðar algjörlega með því að byrja á stærsta og erfiðasta verkefninu, að bjarga bönkunum, sem er þó einungis ætlað að vera þjónn fólks og fyrirtækja, en er varla grunnstoð samfélagsins, þó að bankarnir eigi að gagnast samfélaginu. Ekki má gleyma því að bankarnir virkuðu ekki fyrir Hrun. Þó að peningum verði dælt inn í þá þegar lán koma erlendis frá, þá er engin trygging fyrir að þeir muni virka eftir hrun.

Vissulega er fjármálakerfið gífurlega stórt og mikilvægt verkefni og ætti undir eðlilegum kringumstæðum að vera í forgangi. Málið er að þetta eru ekki eðlilegar kringumstæður. Það bendir allt til þess að fjármálakerfið bíði eftir að það geti aftur sett í gang árangurstengd laun og kúlulán, og endurtekið vitleysuna á nýjan leik. 

 


 

Samkvæmt aðferðum verkefnastjórnunar er forgangsröðun Ríkisins rétt, þar sem hafist er handa við að lagfæra stærsta vandamálið í kerfinu, og þegar það er komið í lag er vonast til að allt annað smelli í lag, reddist. Hins vegar er fólk ekki forrit í kerfinu. Fólk er ekki hlutir. Fólk er ekki verkfæri.

Fólk kemur fyrst. 

Á meðan það skilst ekki, erum við á rangri leið.

Bankar, stofnanir og fyrirtæki eru öll í þjónustu fólksins. Fólkið starfar fyrir bank, stofnanir og fyrirtæki, en er ekki verkfæri þeirra eða forrit sem mega mæta afgangi. Þegar kerfi eru annars vegar skal byrja að lagfæra stærsta vandann. Þjóðfélag er ekki sams konar kerfi.

 


 

Það er siðferðileg krafa að hafist verði strax handa við að hjálpa þeim einstaklingum og fjölskyldum sem eru í neyð, og eru við það að tapa heimilum sínum, eiga erfitt með að útvega sér fæði og klæði. Það er eina forgangsröðunin sem manneskja getur gert. Það er hins vegar forgangsröðun sem tölvukerfi myndi aldrei velja, því að í kerfum er í lagi að fórna pörtum.

Við megum ekki við því að fórna einum einasta parti. Við erum að tala um mannslíf og sálarheill. Ef við forgangsröðum eftir notagildi, höfum við tapað mennskunni. Ef við forgangsröðum eftir mannvirðingu, sálarheill og óendanlegu verðmæti mannslífsins, þá erum við á réttri leið.

Við virðumst því miður vera á villigötum.

Hugsanlega er neyðin ekki ljós.

 

 Um neyðaráætlanir:

 


 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bóndi er bústólpi og bú er landstólpi.

Grútur (IP-tala skráð) 8.9.2009 kl. 07:32

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Svo sannarlega er þessi ríkisstjórn sem kallar sig velferðarstjórn, ef til vill brandari ársins, á kolröngu róli við björgunarstörfin.  Takk fyrir þessa færslu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.9.2009 kl. 08:43

3 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Ég þakka innilega fyrir þessa ádrpu.

Einnig er rétt að benda á, að við svona þrengingar fjárhagslegar og tilvistalegar (það er að öryggi um búsetu og heimili er kippt undan fólki) rofna bönd hjóna mjög oft með tilheyradi vanda og sárum barna og þeirra sem að sambandinu standa.

Síðar koma veikindi og óáran í kjölfarið sem leggur enn meiri álögur á heilbirgðis og skólakerfið.

Heimilið er hornsteinn heilbrigðs samfélags og undirstaða menningar.

Hitt er skrílsvæðing.

Mibbó

Bjarni Kjartansson, 8.9.2009 kl. 11:37

4 identicon

Ég er eiginlega kominn á þá skoðun að það verði að rannsaka í þaula hverjir eigi þingmennina okkar. Hver stendur á bakvið þá? Eitt lítið dæmi: Ekki mátti afnema verðtrygginguna í haust til að hjálpa heimilunum og í leiðinni að koma á réttlátu lánakerfi vegna þess að þá myndum við skerða lífeyrissjóðina... Eftir að hafa skoðað ýmis mál í Íslandssögunni, sérstaklega á 20. öldinni þá kemur það ítrekað upp að þingmenn gangi erinda fyrirtækja og einkaaðila. Hefur einhver t.d. athugað hversu mörg frumbörp verða til í Alþingi sjálfu? Það yrði stórmerk úttekt því fjöldinn allur af mikilvægum frumvörpum er unnin hjá fyrirtækjum og samtökum sem nota þingmenn eingöngu sem sendiboða... Af hverju halda menn að ekki sé búið að ganga lengra gegn útrásarvíkingunum en raun ber vitni? Af hverju eru bankastjórar Landsbankans ekki í fangelsi? Vegna þess að þessir menn eiga ennþá kerfið... Endurnýjunin á Alþingi nam ekki meira en 25% og þarna inni eru ennþá menn sem bera beina ábyrgð á hruninu...

Kristbjörn (IP-tala skráð) 8.9.2009 kl. 14:00

5 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Hrannar spyr;

Getur verið að hin íslenska þjóð hafi einfaldlega tapað skilningi á hugtökum eins og heimili og fjölskylda, og sjái fólk ekki lengur sem kjarna samfélagsins, heldur eitthvað sem mætir afgangs?

Það heyrst lítið talað um fjölskylduna sem einhverja grunneiningu nú til dags, en miklu meira um heimilin. Það er eins og í hugum margra sé sama sem merki þarna á milli.

Heimili í stað "fjölskyldu" , þjónar auðhyggjunni. Því fleiri heimili því meiri neysla í þjóðfélaginu. Því meiri neysla því meira vinnuafl þarf til. Því meira vinnuafl sem þarf því minni fjölskyldutengsl verða o.s.f.r. 

Og af því heimilin eru aðal atriðið, þarf ekki að skilgreina neitt frekar fólkið sem býr á þeim.

Heimili er hægt að fjalla um sem í hagkerfinu sem einingu, ekki "fjölskylduformið". -

Svanur Gísli Þorkelsson, 8.9.2009 kl. 15:12

6 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Flottur pistill Hrannar.. þú hefur kannski tekið eftir því að hér í noregi er familien alltaf í forgrunni.. sérstaklega nú þegar það er kosningar innan skamms...

Óskar Þorkelsson, 8.9.2009 kl. 18:00

7 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ætli fjölskyldan sé ekki í forgrunni við 'eðlilegar' aðstæður. Ísland er hugsanlega allt annað en 'eðlilegt' þessa dagana, og hugsanlega kemur óróleikinn þaðan, úr þessum 'óeðlileika'. (Hvað sem það getur nú verið?)

Hrannar Baldursson, 8.9.2009 kl. 20:10

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Til fjandans með fjölskylduna, verstu kúgunarstofnun sem til er!

Sigurður Þór Guðjónsson, 9.9.2009 kl. 00:13

9 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Það er með ólíkindum hvernig stjórnvöld hafa tekið á málunum frá hruninu í fyrra.  Aðalatriðið virðist hafa verið að bjarga fjármagnseigendunum og vinum þeirra.  Ég er hætt að skilja hvernig þessi vinstri stjórn, getur endalaust hoggið í sama knérunn og látið okkur fjölskyldufólkið, sem eigum okkar húsnæði borga allt í topp.  Á meðan spillingarliðið er að fá afskriftir og ýmisskonar fyrningar. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.9.2009 kl. 01:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband