Hverjum er ekki sama um bankarán, spillingu og skuldsetningu kynslóða ef málin reddast á endanum?

magic-bus1

Í gær las ég áhugaverða og frekar hógværa færslu á Silfri Egils þar sem Egill Helgason talar um hvernig rútuferðir voru í gamladaga með söng, skralli og vissum óþægindum, og ber þær saman við þægilegu ferðirnar í dag þar sem fólk virðist ekki lengur hafa samskipti. Ég held hann hafi hitt ákveðinn nagla á ákveðið höfuð með þessari færslu.

Ég er farinn að hallast að því að tæknivæðingin hafi brotið niður samkennd fólks víða um heim, ekki bara á Íslandi, þar sem einstaklingshyggjan er orðin að einhvers konar trúarbrögðum. Við einöngrum okkur með því að eyða fjölmörgum klukkustundum fyrir framan sjónvarpstæki eða tölvu, og á meðan höfum við ekki eðlileg samskipti við annað fólk. Fólki virðist vera nokkuð sama um annað fólk, þó að það sýni tilfinningar sem segja annað, en þetta er það sem á ensku kallast 'apathy' og talin er til dauðalastanna sjö í kristinni guðfræði. Það er svolítið til í þessu. Köllum þetta apaþýðu.

apathy

Hugsanlega er það þetta viðhorf, að halda að hlutirnir reddist af sjálfu sér, og moka vandamálum frá þar sem að aðrir muni sjá um að leysa þau, sé eitt af grunnvandamálum okkar í dag. Það er einfaldlega svo mörgum nákvæmlega sama hvernig hlutirnir eru í raun og veru, enda finna þeir til eigin máttleysis og trúa hugsanlega að rödd þeirra hafi ekkert að segja í stóra samhenginu. Síðan er allt í allrabesta lagi svo framarlega sem að vandamálin valda ekki óþægindum eða ógna friði. 

Apaþýðan getur verið öflugt vopn í höndum stjórnmálamanna sem átta sig á hversu ríkjandi þetta viðhorf er orðið í nútímasamfélagi. Bloggarar og fjölmiðlafólk eru hugsanlega undantekning frá apaþýðendum, en þeir sem láta mata sig af upplýsingum og gera ekkert við þær annað en að spjalla um þær við eldhúsborðið heima, og reyna ekki að beita rödd sinni til breytinga á annan hátt en með því að merkja X á kosningaseðil útfrá því sem sýnist vera rétt, en ekki endilega því sem er rétt, gera þjóðinni meira ógagn en gagn, og færa þvílík völd í hendur stjórnvalda að ekkert mun geta leyst þau úr höndum þeirra annað en þeirra eigin framúrskarandi máttleysi og hugmyndaskortur, eins og gerðist hjá síðustu ríkisstjórn. Þetta köllum við lýðræði.

Ég hef á tilfinningunni að íslensk stjórnmál, og hugsanlega stjórnmál um allan heim, snúist meira um að halda völdum í kerfinu sem er við lýði, nota það til að tryggja eigin hagsmuni heldur en að láta gott af sér leiða. Yfirborðsmennskan virðist ríkjandi, þar sem betra er að hlutirnir líti vel út, vegna þess að almenningur hefur engan áhuga á því hvernig tilveran er í raun og veru, heldur viljum við bara lifa í friði og vera blekkt frekar en að vera með áhyggjur vegna sannleikans.

Málið er að hlutirnir reddast á endanum... eða hvað?

machiavelli

Machiavelli ræðir aðeins um lykilatriði til að halda völdum, í bók sinni, Prinsinum:

"Annað hvort kemurðu vel fram við þegna þína eða mölvar þá; verð veika nágranna og veikir þá sterku; þegar þú sérð fram á vandræði, komdu af stað stríði; ekki gefa öðrum völd; vertu eins og prinsinn sem valdi sér grimman ríkisstjóra til að koma á stjórn (en þegar hann var hataður af almenningi eftir að hafa þjónað prinsinum, hlaut prinsinn auknar vinsældir fyrir að taka hann af lífi vegna grimmdarinnar); framkvæmdu illa nauðsyn í einu höggi, greiddu arð smám saman; fullvissaðu stundum þegnana um að hinum erfiðu dögum muni brátt ljúka, og á öðrum tímum hræddu þá með ótta um grimmd óvinarins; láttu líta út fyrir að þú sért miskunnsamur, áreiðanlegur, fullur mannúðar, tryggur, þráðbeinn, en vertu andstæðan í veruleikanum þegar aðstæður krefjast þess; talaðu alltaf fallega um dygðir, því að flestir dæma þig út frá því sýnilega; notaðu trúarbrögð sem réttlætingu fyrir að hefja styrjaldir, þar sem það gefur þér rétt til 'guðlegrar grimmdar'." (Úr Prinsinum / þýðing HB)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Hrannar, þetta er góður pistill.  Ég heyrði útvarpsviðtal fyrir 15 - 20 árum þar sem sá sem talað var við kom inn á þetta með einstaklingshyggjuna.  Hann hélt því fram að á endanum sæti hver í sínu húsi með sitt sjónvarp, það væri jú mikið betra fyrir "markaðinn" að geta selt hverjum og einum sitt sjónvarp og ísskáp, stórfjölskyldan væri hreinlega ekki markaðsvæn.

"(Alþýðan) Apaþýðan getur verið öflugt vopn í höndum stjórnmálamanna sem átta sig á hversu ríkjandi þetta viðhorf er orðið í nútímasamfélagi."  Þetta hafa margir verið að benda á og hafa þeir jafnan verið vændir um samsæriskenningar.  David Icke einn af þeim  sem ekki hefur látið það á sig fá að vera talinn til "rugludalla" hefur boðað komu sína til Ísland 21. nóvember næstkomandi.

Fyrirlestrar David Icke eru áhugaverðir fyrir Íslendinga á þessum tímum.

http://www.youtube.com/watch?v=peiTfY7Bx4c 

Magnús Sigurðsson, 21.7.2009 kl. 10:47

2 Smámynd: Hrannar Baldursson

Gott myndband Magnús. Þakka þér fyrir.

Hrannar Baldursson, 21.7.2009 kl. 10:59

3 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

"Það er einfaldlega svo mörgum nákvæmlega sama hvernig hlutirnir eru í raun og veru, enda finna þeir til eigin máttleysis og trúa hugsanlega að rödd þeirra hafi ekkert að segja í stóra samhenginu."

Held að þett sé einmitt kjarninn Hrannar. Og til kominn vegna þess að hinn almenni borgar fær svo lítið gert til að  hafa áhrif.

Rut Sumarliðadóttir, 21.7.2009 kl. 12:31

4 Smámynd: Billi bilaði

Svo sjáum við þá sem gera eitthvað í málum (X-O) rífa hvern annan á hol í stað þess að einbeita sér að rótum vandans...

Billi bilaði, 21.7.2009 kl. 12:44

5 Smámynd: Hrannar Baldursson

Billi bilaði: X-O er ekki flokkur. Honum er ætlað að uppræta flokkakerfið og þá afvegaleiddu hugsun sem fylgir því að vera flokksbatterí. Það er örugglega erfitt að fylgja eftir slíkum hugsjónum.

Hrannar Baldursson, 21.7.2009 kl. 14:08

6 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Áhugaverður og vandaður pistill. Takk fyrir það Hrannar.

Jón Baldur Lorange, 21.7.2009 kl. 15:33

7 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Varðandi X-O hreyfinguna þá held ég að margir hafi farið fram úr sér í yfirlýsingum og þá mest Þráinn nokkur skáld og fyrrum framsóknarmaður með meiru. Borgarahreyfingin er hreyfing sem er stofnuð til höfuðs flokkakerfinu en samt vill Þráinn koma á einhverskonar flokksræði sem skipar þingmönnum fyrir verkum ella verði þeir gerðir brottrækir úr hreyfingunni. Ég verð að segja að sjaldan hef ég orðið vitni af svo miklu flokksræði sem þar er að myndast og vantraust ,,flokkseigenda" á þingmönnum sínum virðist vera algjört.

Jón Baldur Lorange, 21.7.2009 kl. 15:37

8 Smámynd: Arnar Guðmundsson

SVONA Á EKKI AÐ LÍÐAST

Arnar Guðmundsson, 21.7.2009 kl. 19:54

9 Smámynd: Hrannar Baldursson

Takk Jón Baldur og Rut.

Arnar: Hvað áttu við?

Hrannar Baldursson, 22.7.2009 kl. 00:48

10 identicon

Góður pistill hjá þér Hrannar. Það gerir manni gott að kíkja hingað inn reglulega, réttir mann einhvern veginn af;)

Elín (IP-tala skráð) 22.7.2009 kl. 01:14

11 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Já svolítið mikið til í þessu. Það pirrar mig óskaplega að "þurfa" að nöldra á bloggi og starfa í BH til að reyna hafa áhrif til hins betra. Vildi bara lifa mínu lífi án þess að þurfa skipta mér af en svo fóru stjórnmálamenn og -konur ásamt þessum útrásardólgum með landið til andskotans og þá var mér nóg boðið og því reynir maður að brjóta þetta upp.

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 22.7.2009 kl. 01:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband