Get Smart (2008) ***1/2

Maxwell Smart (Steve Carell) þráir að vera njósnari. Reyndar starfar hann fyrir leyniþjónustu sem aðal samtalsgreinir stofnunarinnar, en skýrslurnar sem hann skrifar eru það nákvæmar að enginn nennir að lesa þær. Hann fær toppeinkunn í njósnaraskólanum en Stjórinn (Alan Arkin) leyfir honum ekki að komast út í heim ævintýra vegna mikilvægi hans sem greinir.

Þegar ráðist er á Stofnunina og í ljós kemur að njósnarar um allan heim hafa verið myrtir, fær Smart loksins tækifæri til að sanna sig. Hann er þegar búinn að greina vandann og veit miklu meira um fjandmennina en nokkur annar innan stofnunarinnar, þannig að hann er ágætlega undirbúinn fyrir verkefnið. Eina vandamálið er að hann er algjörlega reynslulaus, hefur ofsatrú á sjálfum sér og er svolítið klaufskur. Smart fær Númer 99 (Anne Hathaway) sem samstarfsfélaga, en hún þarf að hafa sig alla fram við að bjarga honum úr þeim fjölda vandamála sem hann lendir í vegna eigin klaufaskaps.

Aðeins tveir njósnarar fyrir utan númer 99 er á lífi. Það eru númer 23 (Dwayne "The Rock" Johnson) sem þarf að sitja heima og sjá um greiningarvinnuna í stað Smart og númer 13 (Bill Murray) sem er svo óheppinn að hafa verið plantað niður í tré, en þeir þurfa að sigrast á illmennunum Siegfried (Terence Stamp), Shtarker (Ken Davitian) og Dalip (Dalip Singh Rhana).

Það er óvenju mikið af skemmtilegum persónum í ólíklegustu hlutverkum, en hæst ber að nefna forsetann (James Caan), Bruce (Masi Oka) og Hymie (Patrick Warbutton). 

Ég brosti nánast alla myndina og hló stundum, sem er náttúrulega afrek þegar kemur að húmorslausum mönnum eins og mér, þannig að ég get auðveldlega mælt með þessu góðlátlega gríni.

Reyndar skilur hún nánast ekkert eftir sig, en á meðan hún varir er gaman. Það versta við Get Smart er að henni lýkur. Mig langaði til að horfa á þessa mynd enn lengur. Steve Carrell er snillingur, og ljóst að hann hefur nú formlega tekið við stöðu Jim Carrey sem aðal trúðurinn í Hollywood.

Tæknilega er Get Smart jafn vel kvikmynduð og nýjustu James Bond myndirnar, og er óvenju spennandi, rómantísk og fyndin. Hún kemur manni í gott skap með ABBA lagi á óvæntu augnabliki og gefur aldrei eftir.

 

Leikstjóri:Peter Segal

Einkunn: 8

E.S. 

Eitt sem mig langar að minnast á í lokin, það hversu gaman er að fara í bíó hérna í Bandaríkjunum. Aðgangsmiðinn er ekki nema kr. 400 íslenskar, popp+kók+súkkulaði á kr. 500, ekkert hlé, enginn texti og bíóið hreint.

Ég skil ekki alveg hvernig stendur á að miðinn heima kostar kr. 1000 á meðan miðinn hér, í miklu flottara bíói en nokkurn tíma heima kostar ekki nema kr. 400.

Ég myndi glaður fara a.m.k. einu sinni í bíó hverja viku ef það væri mögulegt. Spurning hvort að einhverju íslensku tímariti eða dagblaði vanti kvikmyndarýni?
mbl.is Smart spæjari slær í gegn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: BostonInga

Gaman að lesa þessa umfjöllun hjá þér, en mér leikur forvitni að vita hvar þú ferð í bíó í US fyrir 5$.  Allavegarn kostar um 10$ að fara í bíó hér í Boston.

BostonInga, 23.6.2008 kl. 03:25

2 Smámynd: Hrannar Baldursson

AMC Theatres Minneapolis

Hrannar Baldursson, 23.6.2008 kl. 04:30

3 identicon

Hér í IL greiði ég $7 fyrir miðann.

Svanfríður (IP-tala skráð) 23.6.2008 kl. 04:53

4 Smámynd: BostonInga

Hmm, skrítið þar sem ég fer líka í AMC hér.  Ferðu í bíó á daginn?? Ég veit að studentaafsláttur er í mesta lagi 1 eða 2$

BostonInga, 23.6.2008 kl. 06:08

5 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ég fór í bíó kl. 14:00 og kostaði miðinn $5.00. Hugsanlega er eitthvað ódýrara snemma á daginn?

Hrannar Baldursson, 23.6.2008 kl. 07:00

6 identicon

Ég fór síðast í bíó í Háskólabíó á Indiana Jones myndina og er það sennilega síðasta skiptið sem ég fer í bíó hér á klakanum. Sóðaskapurinn var þvílíkur að það hálfa hefði verið nóg. Popp um öll gólf, gólfið svo klístrað af gosi að skórnir límdust við það.  Horfði á einn ungling sitja með lappirnar upp á sætið fyrir framan þar sem hann reyndi að henda einhverju dagblaði í ruslafötu á ganginum. Hann hitti ekki, blaðið lenti á gólfinu, og í stað þess að standa upp og taka upp blaðið og setja það í ruslið þá lét hann það bara liggja.

Ef þú ferð á fyrstu sýningu dagsins í BNA  er hún kölluð Matinee og er alltaf ódýrari. Ég fór einu sinni á bíó í Riverton Wyoming á Matinee og borgaði 2,50 dollara á hana.

Í Ameríku er bíóið er hreinna og poppið betra.

kveðja Rafn.

kveðja Rafn.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 23.6.2008 kl. 19:50

7 Smámynd: Ómar Ingi

Það er nú hægt að fara í bíó á Íslandi fyrir 650 krónur alveg niður í 450 krónur ef þið leitið eftir því.

Ómar Ingi, 25.6.2008 kl. 20:19

8 Smámynd: Hrannar Baldursson

Sammála Rafni og skemmtilegir punktar frá Nemandanum.

Ómar: kenndu mér að fara í íslenskt bíó.

Hrannar Baldursson, 25.6.2008 kl. 22:45

9 Smámynd: Ómar Ingi

Regnboginn sýnir allar myndir alla daga á öllum sýningum  á 650 kr , flestar myndir enda þar ef þú villt á annað borð bíða.

Um helgar eru á fyrri sýningum margar myndir á 450 kr

Gangi þér vel :)

Af hverju þarf fólk síðan alltaf að kaupa sér nammi í bíó ?

Skil það ekki

Ómar Ingi, 26.6.2008 kl. 10:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband