Getum við vitað þegar einhver lýgur að okkur?

mental-illness-4364348_1280

Við ljúgum þegar við viljandi segjum einhverjum öðrum eitthvað ósatt. En að vita hvenær einhver gerir eitthvað viljandi eða óviljandi er næstum ómögulegt að átta sig á. Við getum trúað einhverju um ætlun annarra, en við getum aldrei fyllilega vitað það.Erfitt verður að sanna þá ásökun að einhver hafi yfir höfuð logið, því þá ertu að gefa þér að þú vitir bæði hvað viðkomandi gerir viljandi.

Þegar við tölum um hvort að einhver sé að ljúga, erum við í raun sjálf að ljúga, því við vitum ekki hvað viðkomandi hefur gert viljandi. Við getum ekki lesið hugsanir annarra, við getum í mesta lagi giskað eða dregið ályktanir, en náum aldrei fullvissu. Í mesta lagi vitum við að þegar við teljum einhvern ljúga, er að hann eða hún er að segja ósatt, og þá kannski bara hugsanlega. Það getur verið að við vitum ekki einu sinni hvort að viðkomandi hafi verið að segja ósatt, því kannski hefur hann eða hún meiri eða minni upplýsingar en við og túlkar þær á annan máta, jafnvel út frá ólíkri heimsmynd. Þannig að þegar við teljum einhvern vera að ljúga getur vel verið að við höfum rangt fyrir okkur. 

Hins vegar þegar einhver segir eitt við eina manneskju og svo andstæðuna við aðra manneskju, þá er ljóst að viðkomandi er annað hvort að ljúga eða hefur ekki nógu mikla greind til að vera samkvæmur sjálfum sér. Jafnvel þó að við vitum að viðkomandi hafi fengið áreiðanlegar upplýsingar, og heldur svo öðru fram, þá getum við ekki dæmt um hvort að viðkomandi sé að segja viljandi ósatt, eða hvort að hann sé bara ósáttur við veruleikann og sannleikann. Hann gæti verið öfgafullur efahyggjumaður, narsisískur sjálfsdýrkandi, eða bara algjörlega villtur í heimi skynsamlegra röksemda. Margt kemur til greina.

En það að vera ekki þess valdur að segja satt hlýtur samt að vera á ábyrgð hvers og eins. Við hljótum að bera nógu mikla ábyrgð á eigin menntun og þekkingu til að afla okkur fróðleik um hluti sem skipta máli, við berum ábyrgð á okkar eigin hugsunum og gerðum, að við beitum hugsuninni til að átta okkur á hvað er satt og rétt, til að við getum gert skyldu okkar í samræmi við það sem er satt og rétt. Einnig ber okkur að fylgjast nógu vel með hlutum sem eru að gerast til að geta tekið ákvarðanir í takt við tímann, en við þurfum samt alls ekki að þekkja hvert einasta málefni í kjölinn. Yfirborðskennd þekking á því sem er í gangi er yfirleitt nóg, en dýpri þekking á málefnum sem tengjast störfum gæti krafist þess af okkur að treysta þeim sem vita betur.

Við getum lifað lífi okkar án þess að hafa djúpa þekkingu á einu eða neinu og án þess að styðjast við rök eða hugsa hlutina vel, en slíkt leiðir líklega til tómlegra og leiðinlegra lífs en þeirra sem vita og skilja meira, því að þeir sem hafa þekkinguna sjá fleiri möguleika til að vaxa og dafna.

Þegar við leitum ekki þekkingar eða skilnings á okkar innri og ytri veruleika, þá erum við líklegri til að blekkja sjálf okkur og þegar við tölum við aðra er líklegra að við förum með ósannindi. Hvort sem þessi ósannindi eru viljandi eða ekki, geta þau hæglega skaðað orðspor okkar, jafnvel þannig að við fáum það orð á okkur að vera fáfróð eða lygarar. Þessir stimplar þurfa ekkert endilega að vera sannir til að hafa áhrif. 

Gleymum því ekki að fáfróð manneskja getur lært og sú sem við teljum ljúga sér heiminn kannski allt öðruvísi en aðrir, og telur sjálfan sig ekkert endilega vera að ljúga, þó að hann lifi í sjálfsblekkingu.

 

Mynd eftir mohamed Hassan frá Pixabay


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Góðar pælingar eins og fyrri daginn. Hugleiðingar þínar um lygar kveikir á heilanum mínum eins og jólasería. Kíki kannski inn seinna i dag eða á morgun.

Benedikt Halldórsson, 9.6.2021 kl. 09:13

2 identicon

Satt og logið sitt á kvað

sönnu er best að trúa,

en hvernig á að þekkja það 

Þegar flestir ljúga?

Heyrði þessa fyrir löngu.

G.I.

Gunnar Ingvi (IP-tala skráð) 9.6.2021 kl. 11:34

3 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Við sem höfum fallið fyrir lygum lygara, tapað peningum eða aðhyllst fráleitan málstað í fljótfærni sem hljómaði vel, höfum augljóslega ekki hæfileika til að greina sannleika frá lygaþvættingi. Ég tapaði íbúð vegna trúgirni og var lengi i basli. Við samþykkjum allskonar stríð í stundarbrjálæði áróðurs og sjáum seinna að við höfum verið göbbuð enn einu sinni. 

En með því að rannsaka mál á eigin spýtur - án tilfinninga - og treysta engum í blindni er ólíklegra að við föllum fyrir fagurgala. Fólk sem við þekkjum að góðu einu gæti tekið upp á því að biðja okkur um lán (kannski í örvæntingu) sem aldrei er borgað til baka. 

Benedikt Halldórsson, 9.6.2021 kl. 17:45

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Stundum er það orðnotkun, stundum svipbrigði...

Smá þjálfun getur hjálpað til.

Mjög oft þegar menn eru að ljúga vísvitandi þá hreyfast augabrúnirnar - en bara smá.  Hálfrar sekúndu knykkur, sérð það ef þú veits að hverju á að leita.
Stundum brosir fólk... þegar lygin er og augljós.

Það er meira.  Litlir hlutir.  Smá vísindi, en getur verið þess vert að stúdera. 

Ásgrímur Hartmannsson, 9.6.2021 kl. 19:25

5 identicon

 

Biblían segir okkur (sem er Sannleikurinn) að Guð er ekki maður að hann ljúgi. Hann getur ekki logið, en það gera allir menn. Þeir geta  ekki annað en logið vegna erfðasyndarinnar sem er í þeim. Ýmist ljúga menn viljandi eða óviljandi eins og kemur fram í pistlinum hér að ofan. En hinir endurfæddu ljúga aðeins óviljandi. Þeir iðrast lyga sinna þegar þeim verður ljóst að þeir hafa syndgað.

Þegar Katrín Jakobsdóttir segir að óeðlileg hlýnun eigi sér stað á jörðinni af mannavöldu ætlar hún sér ef til vill ekki að ljúga að landsmönnum, þótt hún geri það. Hún trúir jafnvel að þetta sé satt.

Biðjum þess að Katrín komist á þann stað að hún geri iðrun.

Guðmundur Örn Ragnarsson (IP-tala skráð) 9.6.2021 kl. 20:59

6 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Guðmundur Örn, ef mér skjátlast ekki hlustaði ég oft á boðskap þinn á Omega sjónvarpsstöðinni þegar ég horfði á hana reglulega. Ég tek undir þetta með Katrínu að hún megi iðrast, út af stuðningi við fóstureyðingafrumvarpið alræmda. Um hlýnunina er ég ekki sammála og tel að hún geti vel verið af mannavöldum.

Biblían er umdeild. Hennar rit áttu sér uppruna í eldri trúarbrögðum. Hver getur verið viss um að sá sem kallar sig guð í Biblíunni sé hinn eini sanni guð, og hvort ekki sé réttara að guðir séu til í fleirtölu. 

Við getum jú sagt að til sé einhver alvaldur guð og hann ljúgi ekki, en slík fullyrðing getur verið ástæða fyrir deilum. Langflestir í dag líta svo á að trúmál séu alveg eins umdeilanleg og önnur svið mannlífsins. 

Ingólfur Sigurðsson, 9.6.2021 kl. 21:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband