Er óheiðarlegt að vilja ekki borga skuldir einkabankans Landsbanka Íslands?

Ég hef heyrt þá skoðun að við eigum að borga vegna þess að það sé hið eina rétta í stöðunni, þannig sýnum við umheiminum að við berum ábyrgð, að okkur sé treystandi, að mannorð okkar sé að veði. Ég hef mikinn áhuga á að vera heiðvirð manneskja og ber mikla virðingu fyrir slíkum skoðunum, en er ekki sammála því að höfnun á að borga óútfyllta ávísun til óljósrar framtíðar sé óheiðarleg hegðun.

Landsbanki Íslands var einkabanki. Hann var seldur af ríkinu árið 2002 til einkaaðila, sem fjármögnuðu kaupin með að taka lán í ríkisbanka!

Síðan tóku þeir við viðbjóðslega miklu af peningum til að varðveita og ávaxta á trjánum, því eins og flestir trúa, þá vaxa peningar á trjánum. Í stað þess að loka þennan pening inni í peningaskáp voru þeir gróðursettir sem hlutabréf, arðgreiðslur, dóp og bónusar.

Peningarnir sukku í jörðina og verða ekki sleiktir upp af Auðhumlu í þetta skiptið. Hverju svo sem þú trúir.

Mér finnst að þú ættir að ekki borga þessar skuldir nema þú hafir tekið þátt í veislunni, ekkert frekar en að mér finnst að ég og mín börn eigi að gera það, enda hafna ég algjörlega okkar þátttöku í vitleysunni. Sko, ef þú borgar, ertu þá ekki bara að stimpla þig sem samseka eða meðvirka manneskju og viðurkennir þar af leiðandi að þú sért ekkert skárri en glæpamennirnir sem glæpina frömdu? Ef þú tekur þátt eru þeir stikkrí og hafa loks eitthvað skjalfest fyrir sér þegar þeir fullyrða að allir Íslendingar tóku þátt í partýinu sem haldið var undir nafninu "Góðærið".  Annars kæmi okkur aldrei í hug að borga.

Mér þætti vænt um ef þú tækir þér nokkrar sekúndur til að skrifa athugasemd við þessa grein. Þú þarft ekki að skrifa undir með eigin nafni né skrá þig sérstaklega til að láta heyra hvað þér finnst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held að flestir sem ég ræði við séu sammála því sem kemur fram í færslunni frá þér. Ég fer árlega til Bretlands og þá síðast nú í vor sem leið. Þar hitti ég marga Breta ( Flestir eru þó vinir mínir frá árum áður skal viðurkennast), og þeir sáu ekki af hverju átti að láta íslenskan almenning bera ábyrgð á þessum skuldum. Svo var yfirleitt bætt við: Gordon Brown is just a complete idiot and nobody in England likes him. Það er nú mín upplifun af þessu beggja vegna hafsins.

Dagga (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 13:47

2 identicon

Sammála. Þetta var einkarekinn banki, og slíkir (alveg sama hvernig þeir komust í hendur sinna eigenda) mega ekki skekkja samkeppnisstöðu við aðra banka með því að bjóða betur í krafti þess að þeir hafi ríkisábyrgð.

Sá sem fjárfestir tekur áhættu, og það er líka áhætta að eiga peninginn sinn í banka. Þeir sem brenndust á Icesave tóku sjálfstætt þá ákvörðun að setja sitt fé þar inn, og tilgangurinn var að græða meira.

Ég sjálfur treysti ekki á íslenska systemið um of, og er í Breskum sparnaði og með útlenda tryggingu á mér. (Þetta eru svo gömul kompaní að þau hafa lifað af 2 heimsstyrjaldir, svo að.....). Svo er fjölskyldan líka með eitthvað af íslenskum.

Fari nú Breski sjóðurinn á hausinn samt sem áður, get ég bara sjálfum mér um kennt. Ég ætlast ekki til að Breskur almenningur verði skattlagður fyrir það, - þetta er einkarekinn sjóður (ekki ríkisrekinn), og það var mín sjálfstæða ákvörðun að borga í hann.

Ég er líka með hlut í fyrirtæki. Það er um starfsemi sem er búin að rúlla nokkrum sinnum, en gengur nú vel. Rúlli það nú aftur get ég bara sjálfum mér um kennt, og vænti þess ekki að almenningur beri það með skattpíningu.

Ég var einu sinni spurður (vor 2008) hvað ég myndi gera við  ákv. upphæð sem varð til vegna fasteignasölu. Fara í bréf og græða ofsalega? Ég sagði "kaupa gull og loka það inni".

Svona lít ég á þetta. Og góður punktur með börnin hjá þér. Af hverju eiga þau að borga vexti og höfuðstól af pening sem að fullt af fólki og félögum með dollaraglóð í augunum setti sjálfviljugt inn í einhvert einkarekið sjálfsmorðsapparat mörgum árum áður???

JónLogi (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 13:48

3 identicon

Algjör fjarstæða  . Álika og eg hefði keypt mer dyrann bil ( er öryrki ) sem eg hefði trúað á ,að það REDDAÐIST !! En svo natturlega gat það engann vegirn gerst og þá væri komið til þin og sagt að þar sem eg væri aumingi sem ekki gæti staðið i skilum og ætti ekkert sem hægt væri að taka uppi skuldina , Þa yrðir þú að Borga !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!    Ruglið !!!!!!!!!!!!! VEIT EKKI HVAR FÓLK ER STATT I ALVÖRU ,en þó sorglegast að þeir sem landið eiga verja skuli taka þatt i þessari siðblindu !!!!!!!!!!!  Og þau vogi ser að standa að þvi að anna'hvort flæma alla úr landi eða stuðla að þvi að her verði samfelagt  auðnuleysingja , dópista og allskynns vesalinga er eitthvað sem getur gert mann rúmlega brjálaðann  , þvi þjóðfelag sem er verið að reyna smiða núna  byður aðeins uppá slikt  !!!.    Er svo innilega sammála  þinum pistli  að öðru leiti  !!!!!

rhj (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 14:05

4 Smámynd: Einar Karl

En snýst ekki málið um að íslenska ríkið er búið að taka 100% ábyrgð á stórum hluta skulda þessa einkabanka. Allir Íslendingar og íbúar á Íslandi sem áttu peninga á venjulegum innlánsreikningum - bankabókum, launareikningum, hlaupareikningum, sparireikningum, Kjörbókum og allt hvað þetta heitir - fengu innstæður sínar að fullu tryggðar, 100%. M.ö.o. við erum búin að greiða vænan hluta af skuldum þessa einkafyrirtækis.

Deilan snýst um að það þyki ekki rétt né sanngjarnt að gera upp á milli sparifjáreigenda í Landsbanka Íslands eftir því í hvaða útibúi þeir átt peninga. Bankinn var búinn að sækja mikið fé til venjulegs fólks í Bretlandi og Holland í krafti sameiginlegs markaðar, en viðskiptavinirnir fengu ekki að njóta jafnræðis þegar bankinn fór á hliðina.

Hvernig fjármögnum við svo þær skuldir Landsbankans sem ríkið tók yfir, þ.e. íslenskar innstæður? Jú, bankinn er endurfjármagnaður með erlendum lánum frá ríkjum sem öll virðast sammála um þetta Icesave mál.

Einar Karl, 2.1.2010 kl. 14:28

5 Smámynd: Hrannar Baldursson

Takk fyrir góðar athugasemdir. Alltaf gaman að sjá hvernig aðrir hugsa um það sem er manni hugleikið.

Einar Karl: Vissulega áttaði ég mig á því að þetta hófst allt saman með neyðarlögunum. Ég var ósáttur við það þá að þjóðinni var skipt í tvennt: að á kreppunni töpuðu eigendur sparifé engu, en skuldarar miklu. Það er enn jafn óréttlátt í dag. Þessi neyðarlög kostuðu fyrrv. ríkisstjórn völdin, og væri ég fyrir mitt leyti ekkert á móti því ef hægt væri að taka þau til baka, því þau voru algjörlega misheppnuð. Hins vegar hefði Hrunið þá verið augljóst öllum almenningi á svipstundu og allt orðið brjálað.

Það tekur tíma fyrir þjóð að átta sig á þessum hlutum.

Með InDefense er þó reynt að lágmarka skaðann, nokkuð sem er að mínu mati hárrétt. En skaðinn með neyðarlögunum var nógu mikill til fjöldi fólks sem áttaði sig á hvað var að gerast undirbjó strax flutning úr landi. 

Hrannar Baldursson, 2.1.2010 kl. 15:28

6 identicon

Einar Karl, þú sagðir þetta:

"En snýst ekki málið um að íslenska ríkið er búið að taka 100% ábyrgð á stórum hluta skulda þessa einkabanka. Allir Íslendingar og íbúar á Íslandi sem áttu peninga á venjulegum innlánsreikningum - bankabókum, launareikningum, hlaupareikningum, sparireikningum, Kjörbókum og allt hvað þetta heitir - fengu innstæður sínar að fullu tryggðar, 100%. M.ö.o. við erum búin að greiða vænan hluta af skuldum þessa einkafyrirtækis."

 Þrátt fyrir alla fjölmiðlamennskuna, þá er þetta enn svolítið í þoku. Nú töpuðu Íslendingar margir líka öllu sínu í inneignum í öðrum formum, t.d. einhverskonar bréfum o.s.frv. Líka í gegn um bankana.

Var Íslendingum boðið upp á Ice-Save samninga? Ég held nefnilega ekki, - þetta er bara sérstakur valmöguleiki fyrir t.d. Breska, og ég skrifaði ég ekki upp á þetta með börnin mín sem ábekinga.

Jón Logi (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 17:32

7 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Sammála. Góður pistill Don Hrannar og gleðilegt nýtt ár.

Guðmundur St Ragnarsson, 2.1.2010 kl. 20:50

8 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Ég sveiflast rosalega i þessu, en pendúllinn er núna í þá áttina að samþykkja ekki IceSave.

Þessa stundina hef ég mestar áhyggjur af klofningi þjóðarinnar, afsakið klysjuna en: "Sameinuð stöndum vér, sundruð föllum vér" .. 

IceSafe er Klúður með stóru K-i  

Takk annars fyrir góðar og þarfar pælingar. 

Jóhanna Magnúsdóttir, 2.1.2010 kl. 21:01

9 Smámynd: Hrannar Baldursson

Guðmundur og Jóhanna: takk.

Áhyggjur mínar þyngjast yfirleitt þegar einhver sannfærandi og vel  mæltur einstaklingur ætlar að hafa vit fyrir mér og minni framtíð. Slík forsjárhyggja er kannski ágæt þegar um er að ræða foreldra og börn, en ekki þingmenn og þegna.

Hrannar Baldursson, 2.1.2010 kl. 21:11

10 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Ekki borga ! Ekki okkar skuldir !

 Valdabaráttusukkið og þeir sem gáfu Bankana geri það úr sínum vasa- ekki mínum !

Erla Magna Alexandersdóttir, 2.1.2010 kl. 21:17

11 Smámynd: Halla Rut

Góður pistill Hrannar og ég er þér hjartanlega sammála.

Að ætla börnum mínum og borga með fullum vöxtum peninga sem einhverjir menn í einkarekstri voru að sukka með er gjörsamlega út í hött.

Það þarf auðvitað að ráða PR stofu til að kynna okkar málsstað. Það er algjörlega út í hött að það sé ekki löngu búið að gera það. Indefence hefur margoft bent á það en ríkisstjórnin hefur engan áhuga. Samfylkingin ætlar okkur í ESB hvað sem það kostar og ég bara skil engan vegin hvernig hún hefur ennþá um helming þjóðarinnar á bak við sig.

Halla Rut , 2.1.2010 kl. 22:36

12 identicon

Einar Karl,

Málsvörn okkar gegn gagnrýni Breta á ríkisábyrgð innlána sem gefin var út af Ríkisstjórninni um haustið er sú að hún var gerð til að afstýra algjöru kerfis og samfélagshruni. Ríkisábyrgðin sem Björgvin og Geir gáfu út var samfélagslag aðgerð, ekki efnahagsleg.

Svona ekki ósvipað því og þegar ónefndar þjóðir (Svíar og Norðmenn) senda flugvélar á átakasvæði/hamfarasvæði og setja sína þegna í forgang þrátt fyrir að þeir eigi að þjónustu þegna smærri landa líka.

Kalli (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 23:07

13 Smámynd: Haraldur Haraldsson

eins og maður hefur oft sagt á bloggi mínu ,eigum við ekki að borga skuldir óreiðumanna eða einkabanka,þessi EES skuldbinding kemur okkur ekkert við/Kveðja og gleðilegt nytt ár /Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 2.1.2010 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband