Hvernig fannst þér Skaupið 2009?

 


 

Síðustu ár hefur mér þótt Skaupið heldur dapurt. Inn á milli einn og einn góður brandari. Svona nógu gott til að halda það út, oftast. Stundum ekki.

Í ár var nýr og ferskur tónn í Skaupinu, sem endaði með frábæru atriði. Leikararnir voru frábærir, og aldrei þessu vant fengið fullt af hæfileikaríku fólki í leik, í stað þess að beina kastljósinu að fáum frægum. Tæknibrellurnar fínar og öll atriði vel tengd saman, á góðum hraða. Þetta er vel útpælt spaug sem er þess virði að horfa á í annað sinn, það geturðu gert hérna. Ég mæli sérstaklega með "Smooth Criminal" Páls Óskars í lokin sem byrjar á 42. mínútu.

Það er eins og snillingarnir í Ljótu Hálfvitunum og Baggalúti hafi bruggað þetta Skaup saman.

Ef svo ólíklega vildi til að þú horfðir ekki á Skaupið í gærkvöldi, geturðu kíkt á það núna.

Hvernig fannst þér Skaupið?

 

Mér þætti vænt um að heyra þína skoðun. Ekkert mál að skrifa athugasemd hérna fyrir neðan. Hún má vera undir réttu nafni eða dulnefni. Mér er alveg sama. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í einu orði sagt hræðilegt, gafst upp að horfa á það þegar það var hálfnað

007 (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 11:31

2 Smámynd: Offari

Mér fannst skaupið frábært og endirinn fékk mann til að fara bjartsýnann inn í nýtt ár.

Offari, 1.1.2010 kl. 11:38

3 identicon

Skaupið komst yfir meðallagið; myndi gefa því 6,5 í einkunn.

"Ástandið á Bessastöðum" náði að fanga ástandið í samfélginu ágætlega,

Laddi kom þar ágætlega út í hlutverki forsetans.

(Hann oflék ekki en kom með hnyttin svör)

Aulýsingarnar voru líka ágætar td. ring my bell með Ástu.

Svo var fullt af atriðum sem náðu að fanga ástandið en voru ekki fyndin.

Mínusarnir voru karlinn á gröfunni að rífa húsið og konan að hossa barninu; ég náði því ekki/fannst það ekki við hæfi.

Jón Þórhallsson (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 11:40

4 identicon

Compared to the few regular Skaupur episodes I have seen, this one was definitely much funnier, the pacing very good. The idea of Bessastadir being like a wrecked frat house was even a bit subversive, ala Baggalatur, ie: thought-provoking. One thing that I did not think quite worked was the protestors. At the beginning it seemed they were poking some fun at them, since they were carrying signs that was like "it is all horrible" and having them run off to listen to Bubbi. But once they became a group of loppa pessa runners, I did not get it. If there was supposed to be a criticism there, I missed it.

It was edgier than normal, but still not edgy enough, for the year that was 2009, is my basic assessment.

Lissy (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 11:43

5 identicon

Ég gafst upp á því  áður en það var hálfnað.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 12:39

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Kannski hefur hraðinn skemmt fyrir einhverjum. En þetta var hin ágætasta skemmtun fyrir mig og eitt albesta skaup sem ég hef lengi horft á. En svo kemst ég ekki hjá því að lýsa vonbrigðum með Spaugstofuna. Þar eru yfirburðamenn að hæðast að okkur áhorfendum með húmorslausum fíflagangi.

Út yfir tekur svo þegar í endi hvers þáttar eru birtir hláturskrampar leikendanna vegna mistaka. Og maður spyr sig hvort hláturinn stafi ekki af því hvernig þeim takist endalaust að rétta áhorfendum fingurinn og það á kostnað þeirra sjálfra?

Árni Gunnarsson, 1.1.2010 kl. 12:44

7 Smámynd: Sigurpáll Ingibergsson

Frábært áramótaskaup.

Það er hægt að gera góða hluti fyrir lítinn pening. Áramótaskaupið í ár er undir niðurskurðarhnífnum á RÚV en þar var mjög gott. Handritið vel gert, hárbeitt og góður spegill fyrir síðustu ár. Það var heilmikill boðskapur í því, ekki endalaus fíflagangur.

Hryggstykkið í Skaupinu gerist á Bessastöðum í timburmönnun útrásarinnar en farið er í litlar ferðir frá partíinu og birtast þá stuttir og hnitmiðaðir brandarar sem eru mjög góðir.  T.d. var Wiki-Leak hjá Kaupþing frábært en þá sendi einn fundarmanna Alla Reynis glærurnar, á netfangið allir@kaupthing.com. Einnig voru lögin á Pottþétt disknum vel valin. Sigmundur Ernir fékk ágæta ádrepu sem hann átti skilið. Stefán Jónsson var góður sem Steingrímur Joð en leikur á Jóhönnu var ekki í sama klassa. Laddi kom óvænt í hlutverki forseta og stóð fyrir sínu. Harpa Arnardóttir var mjög góð og gaman að sjá gamlan vinnufélaga Ingvar Bjarnason í litu hlutverki.

Helsta þreytumerkið var þegar Margrét Tryggvadóttir hjá Hreyfingunni var að segja skoðun sína á fólki. Það var frekar langdregið en leikarinn var með útlit og takata þingmannsins á hreinu.

Vonandi verða handritshöfundar sannspáir og endirinn í raunveruleikanum verði eins og í skaupinu. Þeir seku settir undir lás og slá.

Eru þeir sem fóru út í hálfleik ekki stuttbuxnadrengir eða stúlkur úr Valhöll?

Sigurpáll Ingibergsson, 1.1.2010 kl. 12:47

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ferlega skemmtilegt skaup. 

Anna Einarsdóttir, 1.1.2010 kl. 12:55

9 identicon

Gleðilegt ár

Það er mér algjörlega hugleikið hvernig fólk skiptist í hópa með áramótaskaupið í ár en kynlífstól og kókainneysla á Bessastöðum fannst mér móðgun við þjóðina og þau hjón.

Þór Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 12:58

10 identicon

Algjörlega frábært áramótaskaup.  Man ekki eftir að hafa hlegið svona mikið af skaupinu áður.  

Gunnar Bjornsson (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 13:12

11 identicon

Þeir sem léku Sigmund Davíð og Sigmund Erni náðu þeim ótrúlega vel, fannst mér. Mér fannst þetta skemmtilegt skaup.

Guðbjörg María (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 13:20

12 Smámynd: Ómar Ingi

Gleðilegt ár elsku Hrannar . Takk fyrir allt gamalt og gott. Kærar kveðjur.

skaupið var alveg þolanlegt.

Ómar Ingi, 1.1.2010 kl. 15:32

13 identicon

Fínt skaup, ég hló nokkuð oft.

Þór, þau hjón eru sjálf móðgun við þjóðina.

Bjarni (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 15:40

14 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Skaupið í gærkvöldi var með þeim allra bestu sem ég hef séð,það var mikið hlegið bæði börn og fullornir svo á líka að vera.

Tek undir orð Árna Spaugstofan ætti að taka sér góða pásu.

Ragnar Gunnlaugsson, 1.1.2010 kl. 16:49

15 identicon

Frábært skaup!

Guðrún (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 17:14

16 Smámynd: Billi bilaði

Mjög gott skaup.

Billi bilaði, 1.1.2010 kl. 17:50

17 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Mjög gott.

Ég set það í topp 5.

Guðmundur Jónsson, 1.1.2010 kl. 18:14

18 identicon

Rúmleg mjög gott skaup - eitt hið bezta af þeim 31 sem ég hef séð. - Þessir spaugarar sanna það sem Flosi sagði að enginn yrði fyndnari en hann meðan hann væri mælandi á íslenzka tungu. - Frábært - kærar þakkir.

Þorsteinn Veturliðason (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 19:39

19 identicon

Þetta var einstaklega skemmtilegt og beitt skaup :)

Lísa Gestsdóttir (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 20:07

20 identicon

Frábært skaup!

Allavega rúmlega mjög gott eins og Þorsteinn Veturliðason segir svo snilldarlega hér fyrir ofan.

Sigrún G. (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 20:36

21 identicon

"konan að hossa barninu; ég náði því ekki/fannst það ekki við hæfi."

Snilldaratriði og vísaði til þess að Óli Grís er alltaf að detta af baki.

Einar (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 20:59

22 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Þetta var frábært skaup og bætti fullkomlega upp það sem vantaði í innlendar svipmyndir liðins árs frá því fyrr um kvöldið.  Skaupið fjallaði um bullið í samfélaginu og náði því vel.

Marinó G. Njálsson, 2.1.2010 kl. 00:38

23 identicon

Skaupið var frábært, enda í takt við þjóðarsálina, en ekki blinda valdhafa.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 00:41

24 Smámynd: Eygló

Lopapeysuhlaup og kona að hossa barni. Fólks sem ekki fattar þetta hefur ekki verið með hugann við útsendinguna! Eða með slökkt á talinu!

Fannst þetta ekkert skemmtilegt. Gelti einu sinni og svo var MJ-atriðið svolítið flott.

Horfði svo aftur í dag. Miklu betra. Eyddi því ekki, ætla að horfa einu sinni enn.

Mér finnst það beitt og nístandi, gott að því leyti, - en ekki svo FYNDIÐ!

Eygló, 2.1.2010 kl. 02:43

25 Smámynd: Hrannar Baldursson

Takk fyrir allar athugasemdirnar.

Hefur verið rafmagnslaust á heimilu mínu í rúman sólarhring, þannig að ég er að sjá þetta fyrst núna.

Rétt hjá Eygló að þetta var beitt og nístandi skaup. Ég fékk reyndar ákveðinn hroll nokkrum sinnnum, mér fannst þau negla þetta svo vel.

Hrannar Baldursson, 2.1.2010 kl. 09:39

26 identicon

Alveg frábært skaup , !  frá A-Ö  , ógeðslega fyndinn spespegill af háttalagi og framkomu Islendinga i svo hárfinu háði og grátbroslegri uppsetningu , en ALLS EKKI móðgandi eða særandi á neinn hátt  Og ekki ráðist á neinn !heldur farið i gegnum heildarpakkann  !   FRÁBÆR , LEIKUR OG GERFI og i heild frá upphafi til enda ein óslitin kómedia !!  , og  best að  hlægja meðan hægt er að öllu  okkar Rugli !!!!!!!!

Rhj (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 10:31

27 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Skaupið náði aldrei neinum sérstökum toppi. Það var samt alveg "ágætt" en það hafa verið skaup sem voru miklu betri. Ég öskraði ekki af hlátri en brosti allan tímann. Hangover hugmyndin var góð en mátti nota betur. Margrét þingmaður Hreyfingarinnar var ofnotuð algjörlega. Það var eins og samskipti hennar og Þráins Bertelssonar hefði staðið upp úr sem fréttir síðasta árs að mati handritshöfunda. Sem sagt. AVERAGE og ** 1/2 stjarna af 4 mögulegum.

Guðmundur St Ragnarsson, 2.1.2010 kl. 14:41

28 identicon

Eitt besta skaup sem ég man eftir og örugglega það beittasta, fannst það jafnvel full beitt á stundum en gott. Heildarsvipurinn góður og mjög sniðugt að nota Hangover sem umgerð enda fangar það vel líðanina í samfélaginu þetta árið. Bestir fundust mér þó stuttu brandararnir, unglingarnir sem skilja ekki íslensku og topp kreppulögin - hló mikið að "You can ring my bell". Allir sem ég hef heyrt í hafa verið mjög sáttir við skaupið.

Guðrún (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 23:49

29 Smámynd: Haraldur Hansson

Skaupið var meiriháttar.

Beittasta myndin var fjallkonan, kefluð og hlekkjuð við vegg. Hún var tákn þjóðarinnar og vilja hennar. Hótunarstíll Jóhönnu fékk líka sitt pláss. Fjórfalt húrra fyrir höfundunum.

Haraldur Hansson, 3.1.2010 kl. 15:15

30 identicon

Frábært skaup og mjög fyndið. Mörg frábær atriði. Höfundar, leikendur og allir hinir eiga hrós skilið.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 4.1.2010 kl. 02:10

31 Smámynd: Hrannar Baldursson

Nokkuð ljóst að flestir eru á sama máli um hversu vel heppnað Skaupið var að þessu sinni. Samt merkilegt að hægt er að vera ósammála, jafnvel um jafn augljós sannindi.

Hrannar Baldursson, 4.1.2010 kl. 07:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband