10 verstu kvikmyndir ársins 2008

SharkAttack3

 

Ég vil taka það fram að einungis er um að ræða þær myndir sem framleiddar hafa verið árið 2008 og ég hef séð. Þar sem ég er ekki atvinnugagnrýnandi og tími minn takmarkaður til áhorfunar hef ég ekki aðgang að öllum þeim kvikmyndum sem skemmtilegra væri að hafa séð á árinu.

 

10. versta: Quantum of Solace

QuantumOfSolacePoster

Réttara að kalla þetta mestu vonbrigðin. (Indiana Jones and the Kingdome of the Crystal Skull var reyndar skammt á eftir). Ein slakasta James Bond mynd frá upphafi, þrátt fyrir góðan Daniel Craig. Það spilar reyndar svolítið inn í að ég bjóst við einhverju miklu betra eftir snilldina Casino Royale.

 

9. versta: The Happening

Allt í einu klikkast fólk í hópum og fer að fremja sjálfsmorð upp úr þurru. Plöntur jarðarinnar hafa gert uppreisn gegn mannkyninu og ná að virkja sjálfseyðingarhvöt mannsins með ensímum. Ágætis hugmynd, en kvikmyndin frekar leiðinleg.

 

8. versta: Hancock

HancockPoster

Lofaði góðu á pappírnum. Misheppnuð ofurhetja og róni. Útkoman: misheppnað.

 

7. versta: Fool's Gold

Fjársjóðsleit í karabíska hafinu þar sem leikararnir virðast hafa meiri áhuga á sólbaði en leiklist.

 

6. versta: Untraceable

Frekar döpur mynd um internetlöggu sem lendir í klónum á netfjöldamorðingja.

 

5. versta:  Step Up 2: The Streets

StepUpToTheStreetsPoster

Frekar innantóm dansmynd, sem samt inniheldur nokkuð flotta dansa.

 

4. versta: Righteous Kill

RighteousKillPoster

Tveir af mögnuðustu leikurum kvikmyndasögunnar, Robert De Niro og Al Pacino leika tvær löggur sem rannsaka fjöldamorð. Báðir langt frá sínu besta. Ég hef reyndar heyrt að 88 Minutes með Al Pacino sé enn verri. Hef ekki séð hana, en þótti samt rétt að vara við henni.

 

3. versta: Babylon A.D.

BabylonADPoster

Vin Diesel áhugalaus í alltof flóknum söguþræði um erfðabreytta stúlku sem á að vera móðir næsta Messíasar sem verða tvíburar, fyrir framtíðartrúarbrögð, en meikar engan sens - ljóst að leikararnir höfðu jafn litla hugmynd um hvað var í gangi og áhorfandinn.

 

2. versta: The Mummy: Tomb of the Dragon Emperor

MummyTombOfTheDragonEmperor

Draumur nördans, en illa farið með góða hæfileika þeirra Brenda Frasier, Jet Li og Michelle Yeoh - sem öll eru í aukahlutverkum! Peningum og tæknibrellum sóað í vitleysu.

 

Og...

 

...versta mynd ársins 2008 (af þeim sem ég hef séð - og ég sé aðeins þær myndir sem ég hef fyrirfram einhvern áhuga á að sjá)...

 

...er

 

... 10.000 BC

10000bcPoster

Hörmulega illa sögð saga um forna menningu í þrældómi þar sem mammútar og sverðtígrar koma aðeins við sögu, en þá fyrst og fremst sem tæknibrellufígúrur og Deus Ex vélar.

 

Listinn yfir tíu bestu myndir ársins 2008 birtist væntanlega á morgun eða hinn á bloggsíðu Donsins.

 

Gleðilegt nýtt ár!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Of Solice

Halló , ekki láta svona , greinilega ekki séð margar myndir í ár

Ómar Ingi, 1.1.2009 kl. 17:14

2 Smámynd: Ólafur Björnsson

Það er nú reyndar makalaust að þú skulir yfir höfuð hafa horft á Step up 2 og Fools gold..... Hélt að þú þyrftir ekki að ganga svo langt til að vita að þetta væru lélegar myndir.

Það vill reyndar svo skemmtilega til, að ég hef ekki séð eina einustu af þessum myndum. Annað hvort er ég of latur við að horfa á bíómyndir, eða hef bara vit á því að halda mig frá þeim lélegu.

Ólafur Björnsson, 1.1.2009 kl. 17:16

3 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ólafur: Ég leit á Step Up 2 og Fool's Gold einfaldlega vegna þess að þær voru vinsælar á leigunum. Ég vildi nálgast þær með opnum hug. Maður veit aldrei fyrirfram hvað maður fær.

Ómar: Ég hef séð nákvæmlega 45 myndir sem framleiddar voru á árinu 2008. Það er næstum ein mynd á viku. Svo hef ég auðvitað séð heilmikið af eldri myndum.

Hrannar Baldursson, 1.1.2009 kl. 17:29

4 Smámynd: arnar valgeirsson

þú hefur verið heldur duglegri en ég við áhorfið. þannig að ég get hvorki tekið undir né mótmælt. en mér fannst bondinn bara alveg í lagi, þó kannski ekki eins fín og casino royale. untraceable var ekki góð en ekki alvond.

happening fékk svo vonda dóma að mig langaði ekki að sjá, þó ég fíli myndirnar hans shyamalans, fannst t.d. lady in the water bara stórfín ævintýarmynd.

algjörlega kominn með ofnæmi fyrir will smith og tek þig trúanlegan þar.

en gott nýtt ár, svo langt sem það nær..... eins gott og það getur orðið.

mæli með því að þú kíkir á damaged, þrettán þættir í fyrstu seríu. glen close er þar aðal og þetta eru rúmbuþættir. nú er það hinsvegar dexter hjá mér.

kv, arnar

arnar valgeirsson, 1.1.2009 kl. 18:25

5 Smámynd: Óskar Þorkelsson

ég... hef ekki séð eina einustu af þessum myndum

Óskar Þorkelsson, 1.1.2009 kl. 18:40

6 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég er orðinn svo bíólatur að ég hef bara séð tvær af þessum myndum, Quantum of Solace og Mummy 3. Mér fannst Bondmyndin ágæt, heilmikill hasar og mér hefur alltaf fundist Judi Dench fín leikkona síðan hún var og hét í þáttunum A fine romance.

Mummy 3 er svona ekta poppmynd, rennur vel niður með stórum popppoka og miðstærð af gosi. Má segja það um báðar þessar myndir.

Theódór Norðkvist, 1.1.2009 kl. 20:47

7 Smámynd: Einar Jón

Ég held að meirihluti þeirra nýju mynda sem ég sá á árinu hafi verið í boði flugfélaganna. Ég sá 3 af þessum myndum (+Indy) um borð í flugvél - hinar hef ég ekki séð.

Ég bíð spenntur eftir topp 10 listanum, og að þú klárir topp-20 vísindaskáldsögurnar.

Einar Jón, 2.1.2009 kl. 06:46

8 Smámynd: Guðmundur Björn

Er nú ekki búinn að sjá neina af þessum myndum, en það er greinilegt að þú hefur ekki frjótt ímyndunarafl.  Maður fer með ákveðið hugarfar inn í einstakar myndir.    Maður setur ekki Monthy Python í tækið nema maður er tilbúinn í gegnumsýrðan breskan húmor. 

Ég og félagi minn skelltum Dark Knight í tækið um daginn, hvorugur búinn að sjá hana en miðað við þær umsagnir sem hún hafði fengið, þá átti þetta bara að vera MYNDIN!

Niðurstaðan: Geisp og leiðindi.  Það eru mjög fáir sammála mér væntanlega.  Batman Begins er bara miklu meiri og betri mynd.

Tek undir orð Ólafs þar sem hann veltir því fyrir sér hvernig í ósköpunum maður horfir á þessa dansmynd eða Fools Gold.  Það hljóta að vera margar unglingsstelpur bestu kúnnar á leigunni þinni Don?

Guðmundur Björn, 2.1.2009 kl. 09:02

9 Smámynd: Þórður Helgi Þórðarson

Ég er einn af þeim fáu sem hafa sé 88 Minutes (hef aftur á móti séð marga skrifa að hún sé örugglega hræðileg, án þess að hafa séð hana) mér fannst hún bara prýðis mynd og 100x skárri en Righteous Kill.

Fúll með að 10.000 BC sé svona léleg, langaði alltaf að sjá hana.

Þórður Helgi Þórðarson, 2.1.2009 kl. 09:13

10 identicon

Hva...þetta eru allt saman bandarískar kvikmyndir (maské ein bresk).  Ég sá nú helling af myndum frá öðrum þjóðum á síðasta ári og sumar hverjar býsna lélegar.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 09:49

11 Smámynd: Hrannar Baldursson

H.T. Bjarnason: Ég viðurkenni fúslega að ég sé mikið af bandarískum myndum, enda hef ég ekki tíma til að fara djúpt í aðra kúltúra. Þar að auki eru myndir frá öðrum löndum mun lengur að berast til Íslands. Reyndu að finna þér Bollywood eða asíska kvikmynd frá 2008, og það verður ekki auðvelt. Góðu fréttirnar eru að íslensku myndirnar sem gerðar voru árið 2008 komast ekki á botnlistann hjá mér. Þær voru allar yfir meðallagi.

Þórður Helgi: Ég skal kíkja á 88 Minutes. 

Guðmundur Björn: Ég ætlaði að fylgjast með myndum á topplistanum íslenska yfir allar leigur landsins, og sá þá svo lélegar myndir og þetta tók svo mikinn tíma að ég hætti því. 

Einar Jón: Ég hlýt að klára þennan lista fljótlega.

Arnar: Ég verð greinilega að sjá hvað Damaged snýst um. 

Theódór: Með poppmyndum meinarðu þá bíómyndir þar sem maður nýtur þess meira að skófla í sig pobbi en að horfa á myndina?

Bjarni: Það verður spennandi að sjá hversu margir verða mér ósammála með topp 10 listann.

Hrannar Baldursson, 2.1.2009 kl. 12:21

12 Smámynd: Baldur Fjölnisson

88 Minutes er hryllilega léleg mynd.

Þessi listi er góður en mætti kannski skipta einhverju út fyrir Rambo, Wanted, The Love Guru, Blindness, Eagle Eye og 27 Dresses.

Baldur Fjölnisson, 2.1.2009 kl. 16:18

13 Smámynd: Hrannar Baldursson

Baldur: Ég er sammála þér um Wanted, en fannst Eagle Eye ágætis spennumynd, 27 Dresses ágætis rómantísk gamanmynd og Rambo hörkugóð ofbeldis- og splattermynd. Hef hins vegar hvorki sé The Love Guru né Blindness.

Hrannar Baldursson, 2.1.2009 kl. 16:31

14 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Nokkrar góðar myndir sem ég sá á árinu og man eftir í augnablikinu, ekki þó alveg klár á því hvort þær komu allar út 2008 ...

In Bruges

The Dark Knight

Before the Devil Knows You're Dead

Man on Wire

Milk

The Curious Case of Benjamin Button

Gran Torino

og svo voru Wall-E og Bolt alveg þokkalegar.

Baldur Fjölnisson, 2.1.2009 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband