Hvað finnst þér um orðalag spurningar til þjóðaratkvæðagreiðslu?

Fyrir mér er orðalagið skýrt. Það eina sem gæti ruglað kjósendur í rýminu er formlegt númer laganna, en sífellt hefur verið talað um ICESAVE 1 á móti ICESAVE 2. Formlega heita ICESAVCE 2 lögin "Lög nr. 1/2010" og verður fólk að gera sér skýra grein fyrir því. Til að koma í veg fyrir rugling er því nauðsynlegt að hætta að tala um ICESAVE 1 og ICESAVE 2.

Fyrir utan þetta smáatriði finnst mér þetta afar skýrt. Málið er að smáatriði eins og þetta geta orðið stór á ögurstundu, sérstaklega fyrir þá sem eru rétt að byrja á því að kynna sér málið.

“Lög nr. 1/2010 kveða á um breytingu á lögum nr. 96/2009, um heimild til handa fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands hf. Alþingi samþykkti lög nr. 1/2010 en forseti synjaði þeim staðfestingar. Eiga lög nr. 1/2010 að halda gildi?”

Svar mitt við þessari spurningu er ljóst. Það verður "nei", enda trúi ég að lög nr. 1/2010 séu ólög sem kæmu til með að binda þjóðina í skuldahlekki til marga áratuga og gætu kostað okkur auðlindir okkar í hendur Breta og Hollendinga, á meðan það er ekkert sem réttlætir siðferðilega eða stjórnskipulega að Íslendingar taki á sig þessar skuldbindingar, sem virðast nema um 8 milljónum króna á hvert mannsbarn.

Annað sem mér finnst mikilvægt er að þessum lögum var þvingað í gegn af ríkisstjórninni, undir pressu frá Hollendingum og Bretum, og svo virðist sem að ekki hafi verið hlustað á neinn til að koma þessu í gegn. Stundum dettur mér í hug að þetta hafi verið spunahlutverk, gert vísvitandi af Samfylkingu og VG til þess að reita þjóðina til reiði og á klókan hátt fá okkur öll til að fallast á þjóðaratkvæðagreiðslur eins og báðir flokkarnir lofuðu að berjast fyrir í kosningabaráttunni; en tel þó svo ekki vera, því slíkt hlyti að teljast vítavert gáleysi - nema ef þetta hefði verið löngu ákveðið í samráði við forseta Íslands, að ýfa upp reiði fólks og knýja þannig fram þjóðaratkvæði. 

Getur verið að ríkisstjórnin sé svona klók?

Ég efast um það og á auðveldara með að trúa því að um fúskara sé að ræða.

En hvað veit ég?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Karl

Frekar en að segja að kosningin snúist um 'Icesave I' og 'Icesave II' er líklega réttara að segja ða hún snúist um 'Icesave II' og 'Icesave III'. Verst að við vitum ekkert hvernig 'Icesave III' geti litið út.

Einar Karl, 9.1.2010 kl. 09:12

2 Smámynd: Hrannar Baldursson

Jamm. En þetta er samt töluvert einfalt. Höfnun eða samþykkt.

Hrannar Baldursson, 9.1.2010 kl. 09:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband