Sherlock Holmes (2009) **

photo_16_hires

Robert Downey Jr. er frábær "Sherlock Holmes", Jude Law frekar dapur Dr. Watson í frekar slakri leikstjórn Guy Ritchie, í handriti sem virðist hafa verið illilega misþyrmt eftir að hafa verið samþykkt til að létta tóninn í mynd sem hefði mátt vera myrk og svöl.

Hugsaðu þér:

Sherlock Holmes er vel túlkaður sem dópisti, ömurlegur fiðluleikari og kung-fu meistari, þar sem snilligáfa hans og ofvirk athyglisgáfa hans fær að njóta sín umfram mannleg samskipti.

Í nokkrum slagsmálaatriðum í upphafi kvikmyndar er skyggnst inn í huga Holmes, þar sem sýnt er hvernig hann reiknar út af nákvæmni hverja einustu hreyfingu sína og andstæðingsins, með eðlisfræði og sálfræði algjörlega á hreinu, áður en hann rotar andstæðinginn. Það hefði getað verið sniðugt að nota þetta í fleiri atriðum og láta hann hafa misreikna sig svolítið líka.

photo_07_hires

Því miður er handritið frekar klisjukennt, og minnir satt best að segja meira á Scooby Doo teiknimynd en Sherlock Holmes sögu, þar sem dularfullt illmenni að nafni Lord Blackwood (Mark Strong) ætlar að nota sér frímúrarareglu í Englandi til að ná auknum völdum. Hann þarf að komast í gegnum ýmsar þjáningar á leið sinni til valda: dúsa í fangelsi, láta hengja sig, deyja, rísa upp frá dauðum, allt þetta gamla góða.

Dularfullur og vel klæddur en enginn sérstakur herramaður ræður konuna sem Holmes elskar, Irene Adler (Rachel McAdams) til að fá honum verkefni. Þessu sambandi er ætlað að bæta smá kómedíu í myndina, og þar að auki er troðið í söguna að Dr. Watson (Jude Law) hefur trúlofast og hefur því engan sérstakan áhuga á að lenda í frekari ævintýrum með Holmes.

Það er hrein synd hvað Robert Downey Jr. er framúrskarandi góður í þessari mynd. Allt annað fölnar í samanburði. Stóru mistökin er að bæta léttleika í myndina sem passar einfaldlega alls ekki inn í sögu handritsins og skemmir frekar fyrir mynd sem hefði getað orðið góð, því Holmes er einfaldlega ódrepanlegasti karakter í heimi bókmenntanna, sem sannast á því að höfundur hans drap hann, en neyddist til að lífga hann við nokkrum árum síðar vegna áreitis aðdáenda.

Sjáðu þessa í sjónvarpi eða DVD. Langi þig í bíó, farðu frekar aftur á "Avatar".


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Robert Downey JR,  Er örugglega besti leikari tuttugustu aldarinnar.  Hann getur túlkað hvað sem er og hvern sem er.  Minn uppáhalds leikari í áratugi. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.1.2010 kl. 02:52

2 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Takk fyrir Þessa gagnrýni Hrannar. Þetta er sem sagt ruslmatur.

Það sagði við mig Amerísk stelpa fyrir nokkrum árum, ekki spyja mig um fjölda, að henni fyndist ég líkur Robert Downey jr. Hann var í tómu tjóni á þessum tíma en ég tók strax ásatfóstri við hann í kjölfarið og það hefur verið gaman að sjá hvað ferill hans hefur legið upp á við. Klárlega hæfileikaríkur piltur. Ég mun sjá þessa mynd aðeins vegna hans sem sagt. Á flakkara eða DVD og mun því fylgja gagnrýninni í þaula.

Gísli Foster Hjartarson, 11.1.2010 kl. 21:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband