Af hverju eru Íslendingar svona fljótir að gleyma?

Ég hef margoft heyrt minnst á að reiðiöldur Íslendinga verði að engu innan fárra vikna, enda erum við svo fljót að gleyma þegar einhver kemur illa fram við okkur.

Þjóðin hneykslaðist mikið þegar settur dómsmálaráðherra valdi mann í stöðu sem var ekki álitinn hæfastur að mati dómnefndar, en samt hæfur. Má taka fram, ákvörðun ráðherra til stuðnings (eða ekki) að umræddur einstaklingur hafði starfað í dómsmálaráðuneytinu og því þekkti ráðherra af störfum hans í stjórnsýslu hversu hæfur dómari hann hlýtur að vera.

Reykvíkingar hneyksluðust mikið þegar sjálfstæðismenn og frjálslyndir (Ólafur F.) kipptu borgarstjórastólnum undan Degi B. Eggertssyni þegar hann ætlaði að fá sér sæti þarsíðasta mánudag. Svokölluð skrílslæti, eða mótmæli um 1000 manns, truflaði fund um nokkrar mínútur - og þótti það alvarlegt mál, það alvarlegt að enginn hefur þorað að þykjast skríll upp frá því.  Þannig að nú starfar settur dómsmálaráðherra í friði sem fjármálaráðherra, Ólafur F. sem borgarstjóri, og Vilhjálmur Þ. bíður þolinmæður eftir að söðla undir sig stólinn. Og allir hafa gleymt Spaugstofuþættinum góða.

Ég velti fyrir mér hvort að þetta séu meðvitaðar aðgerðir, þar sem reiknað er með að hinn íslenski almúgi verði í fyrsta lagi fljótur að gleyma (enda valdarán Reykjavíkurborgar sviðsett á sama tíma og Evrópumót landsliða í handknattleik fór fram - en það er klassísk brella stjórnmálamanna víða um heim að framkvæma vafasama hluti þegar athygli fólks er annars staðar, - en núverandi borgarstjóra til mæðu gekk Íslandi illa í handboltakeppninni og fólk vildi hugsa um eitthvað allt annað en handbolta á þessu augnabliki).

Við höfum fengið þær fréttir að við erum ríkasta og hamingjusamasta fólk í heimi, og sjálfsagt erum við líka umburðarlyndust, frumlegust, klárust, fallegust og skemmtilegust líka, að minnsta kosti miðað við höfðatölu. Yfir hverju höfum við þá svosem að kvarta? Það er ekki eins og einhver hafi verið drepinn! Er ekki í lagi þó að einhverjir kallar fái sínu fram, svo framarlega sem að skaðleg áhrif eru ósýnileg í fljótu bragði?

Hvað með það þó að aðför sé gerð að lýðræðinu? Það veit hvort eð er enginn nema háskólamenntaðir nördar sem geta átt það til að leggja sig undir skriðdreka hvað lýðræði er hvort eð er. Þýðir lýðræði kannski það að við veljum manneskju til að kaupa handa okkur pizzu og svo höfum við ekkert með það að segja þegar hún kemur með gráðostapizzu með skinku, sveppum og humar? Það erum við sem völdum manneskjuna til að kaupa pizzuna, við gáfum frá okkur valdið til að hafa eitthvað um það að segja hvað verður á pizzunni okkar - og við megum bara þakka fyrir að við fáum pizzu yfir höfuð, en ekki súrt slátur. Sá sem við völdum, hann ræður... öllu!

Um hvað var ég aftur að tala? Ó já, gleymni.

Ef engin væri gleymnin væri alltof mikið af þekkingu til staðar í heiminum. Við lesum svo mikið, hlustum svo mikið á fréttir, og fylgjumst svo vel með því sem er að gerast í heiminum, og sérstaklega náunganum, að við höfum ekki tíma til að halda okkur við eitthvað eldgamalt mál sem gerðist fyrir þremur vikum, hvað þá tveimur mánuðum. Við lifum í alltof hröðu þjóðfélagi til að staðna í sama málinu. Það er óþarfi að teygja hugann margar vikur aftur í tímann þegar enginn tapaði aleigunni, enginn var meiddur og enginn drepinn. Við sjáum það bara á fréttum að okkar spillingarmál eru samasem ekki neitt miðað við það sem gerist úti í hinum stóra heimi. Þó að Reykjavíkurborg verður endurnefnd sem Litla-Ítalía, hverjum er ekki sama?

Svo er það spurningin. Er okkur kannski sama? Og er kannski allt í lagi að vera sama? Viljum við ekki bara fá eitthvað til að kjafta um af því að íslenski veturinn er svo leiðinlegur? Kvörtum við kannski bara af því að allir hinir gera það?

Festist ekkert í þjóðarsálinni nema harður dómur verði gerður, að ákvörðun verður tekin, að einhverjum verður refsað, að einhver fái að hirða pokann sinn? Ef ráðamenn gera hluti sem eru siðlausir en löglegir, skiptir það engu máli þar sem við erum svo fljót að gleyma?

Ég þekki fólk sem man ekki söguþráð kvikmyndar daginn eftir að það horfði á hana, og jafnvel ekki að það hafi verið að horfa á viðkomandi kvikmynd, og þrætir jafnvel fyrir það. Fer þannig fyrir verkum sem framkvæmd eru af siðleysi en án þess að vera kærð og dæmd? Að þau gleymist því við nennum ekki að eyða tíma í þau?

Er það siðferðileg skylda almennings að kæra slík mál til dómsstóla, til að þau gleymist ekki og að hugsað verði meira um þau og sams konar framkvæmdir í framtíðinni? Hver leggur línurnar um hvað má og hvað ekki má?

Skiptir kannski siðferði engu máli lengur? Hafa lögin tekið við siðferðisvitundinni?

Af hverju munum við það sem við munum og gleymum því sem við gleymum?


Bestu vísindaskáldsögurnar í kvikmyndum, 10. sæti: Abre los Ojos

Niðurtalningin heldur áfram. Í athugasemdum hefur verið hneykslast svolítið á því að Blade Runner skuli ekki komast hærra á blað hjá mér. Vissulega tel ég þá kvikmynd góða, og samþykki að um tímamótaverk sé að ræða sem umbylti vísindaskáldsögum á hvíta...

Spaugstofan og siðferðisþroski

Eftir að Spaugstofumenn birtust með háði og spotti á laugardagskvöldið hafa fjölmargir þyrlað ryki yfir almenning og í augu hans með því að átelja grínarana fyrir lágkúrulega árás á Ólaf borgarstjóra og geðsjúka, en gleymt því að ráðamenn hafa sýnt...

Guillermo Del Toro leikstýrir The Hobbit eftir J.R.R. Tolkien

Eins og flestir vita er The Hobbit forsaga The Lord of the Rings , sem Peter Jackson leikstýrði við fádæma undirtektir. Þar sem að Peter Jackson er fastur í öðrum stórverkefnum, meðal annars leikstjórn og framleiðslu á Tinna, ásamt Steven Spielberg,...

The Thing from Another World (1951) **1/2

Hópur hermanna úr bandaríska flughernum er sendur á rannsóknarstöð á Norðurpólnum þar sem vísindamenn urðu varir við fljúgandi furðuhlut. Stór hópur fer með herflugvél að svæðinu þar sem hluturinn lenti, og í ljós kemur að þetta er disklaga skip utan úr...

Eastern Promises (2007) ***1/2

Nikolai (Viggo Mortensen) er bílstjóri og útfararstjóri, eða með öðrum orðum hreingerningarmaður rússnesku mafíunnar í London. Hann starfar fyrir hinn óreglusama Kirill (Vincent Cassel) son mafíuforingjans.Semyon (Armin Mueller-Stahl). Kirill lætur myrða...

Stórleikari fallinn: Heath Ledger (1979-2008)

Þeir segja að þegar fræga fólkið deyr, þá eru það alltaf þrír í einu. Vonandi er það ósatt. Robert J. Fischer dó í síðustu viku, og Heath Ledger í gær. Heath Ledger var með betri leikurum í Hollywood og var honum spáð miklum frama með hans næstu mynd,...

Snillingur fallinn: Robert James Fischer (1943-2008)

Minningargrein um Bobby Fischer með hans eigin orðum. Hann var snillingur á skákborðinu en leiddist út í öfgafullar og ofsóknakenndar skoðanir gegn gyðingum, Bandaríkjamönnum, vestrænum læknavísindum, konum og öðrum skákmönnum, sem er nokkuð sem ég get...

Bestu vísindaskáldsögurnar í kvikmyndum, 11. sæti: The Thing

Þá er ég búinn að telja niður úr 20. sæti niður í það 11. fyrir þær vísindaskáldsögur sem mér finnst skemmtilegastar. Í ellefta sæti lendir hrollvekjan og vísindatryllirinn The Thing , sem leynir ansi skemmtilega á sér. Helsti styrkleikur myndarinnar er...

36 Quai des Orfèvres (Lögreglustöð 36) (2004) ***1/2

Stórtækir ræningjar hafa framið sjö vel heppnuð rán á tæpum tveimur árum. Lögreglustjórinn á Stöð 36 hvetur tvo bestu menn sína til að ná þessum ræningjum áður en hann hættir störfum. Sá sem nær þeim mun verða næsti lögreglustjóri. Þessir tveir...

The Brothers Grimm (2005) ***1/2

Í veruleikanum eru Grimms bræður þekktastir fyrir að safna saman þjóðsögum og ævintýrum. Terry Gilliam gerir þeim það sem þeir gerðu samtímamönnum sínum, semur ævintýri um þá sem fléttir saman mörgum af meginþemum sagnabálks þeirra. Í upphafi sögunnar er...

American Gangster (2007) ****

Frank Lucas (Denzel Washington) kemur frá bláfátækri fjölskyldu sem var borin út úr húsi þegar hann var aðeins fimm ára að aldri. Hann flytur sem unglingur til New York og gerist bílstjóri og aðstoðarmaður helsta mafíuforingjans í Harlem, Ellsworth...

The Golden Compass (2007) **1/2

The Golden Compass: hliðstæður veruleiki við okkar þar sem yfirvaldið er við það að ná völdum á frjálsum vilja í öllum mögulegum heimum, og það eina sem getur stoppað það frá því að gerast er lítil stúlka sem hefur í sínum fórum áttavita sem segir...

I Am Legend (2007) **1/2

Árið 2009 finna vísindamenn upp lyf sem læknar krabbamein. Eins og öllum lyfjum fylgja ákveðnar hliðarverkanir þessu nýja lyfi: Hárið losnar Hvíturnar í augunum roðna Rökhugsun fýkur Reiði tekur völd Sjúklingurinn verður mannæta sem þolir ekki sólarljós...

Bestu vísindaskáldsögurnar í kvikmyndum, 12. sæti: Brazil

Síðasta blogg mitt skrifaði ég á öðrum í jólum. Síðan þá hef ég flakkað mikið um Spán, komið við í Þýskalandi og Danmörku, og tekist að ná mér í hlustaverk með tilheyrandi fylgikvillum, en er að ná mér. Þessi færsla er óvenju löng, enda hef ég óvenju...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband