Harry Potter and the Half-Blood Prince (2009) *1/2

harry_potter_and_the_half_blood_prince

Enn þynnist þrettándinn.

Ég varð fyrir vonbrigðum með Harry Potter and the Half-Blood Prince. Þau mistök eru gerð að leggja meiri áherslu á tilhugalíf galdraunglinga en þá spennandi fléttu sem birtist á síðum bókarinnar eftir J.K. Rowlings. Ég er ekki að segja bókina vera eitthvað snilldarverk, en mér fannst rangar leiðir farnar. Í stað þess að grípa tækifærið og gera dramað dramatískt er skautað yfir lykilatriði eins og þau séu aukaatriði og aukaatriði sett í forgrunninn eins og þau væru aðalatriði. Útkoman er tæknilega vel gerð mynd, en með frekar óspennandi sögu.

Harry Potter finnur gamla bók sem merkt er Blendingsprinsinum, en í stað þess að sagan snúist um hver þessi dularfulli prins er, eins og vikið var mikið að í bókinni, snýst hún um að endurtaka myndir frá 1-4 með aðeins myrkari undirtón. Reyndar er eitt afar gott atriði í myndinni, þar sem Dumbeldore og Harry fara inn í ansi skuggalegan helli, en fyrir utan það er hún tómt miðjumoð. Það vantar allan kraft í frásögnina, spennu í kvikmyndatökuna og áhugaverðan leik.

Án efa versta Harry Potter myndin af þeim fimm sem komið hafa út, en síðustu tvær voru ágætar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Sæll Hrannar. Mér finnst þú vera full dómharður í garð unglingaástar, þótt galdraunglinga sé. Ein og hálf stjarna, tja? Þótt þetta sé að einhverju leyti rétt hjá þér tel ég óhætt að fara allavega í ** 1/2 vegna frábærrar tæknibrellna, myndatöku og auðvitað skemmtilegs handrits. Ég vona að þú hafir ekki verið að lesa um íslenskt efnahagslíf áður en þú "splæstir" stjörnunum svo rausnarlega :)

Guðmundur St Ragnarsson, 20.8.2009 kl. 20:55

2 Smámynd: Hrannar Baldursson

Guðmundur: Efnahagsmálin spila sjálfsagt einhverja rullu. Kannski er maður bara farinn að sjá svona vel gegnum sjónhverfingarnar.

Hrannar Baldursson, 20.8.2009 kl. 21:20

3 Smámynd: Einar Jón

Ég sé ekki betur en að það standi HP6 á myndinni.

Er þessi númer 5 eða 6?

Einar Jón, 21.8.2009 kl. 07:40

4 Smámynd: Hrannar Baldursson

Rétt hjá þér Einar. Þær eru bara orðnar það samdauna að maður er hættur að telja. :)

Hrannar Baldursson, 21.8.2009 kl. 07:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband