Er rangt að segja það sem satt reynist?

Frjálsir fjölmiðlar geta verið góðir eða slæmir, en það er nánast öruggt að án frelsis verða fjölmiðlar aldrei neitt annað en slæmir. (Albert Camus) 

Þessar upplýsingar máttu ekki leka út úr Kaupþingi, og fréttastofu RÚV bannað að nota þær til að upplýsa þjóðina. 

Þegar sett er lögbann á fréttaflutning fréttastofu Ríkisútvarpsins, hlýtur maður að velta fyrir sér hvaða hagsmunir eru settir í forgang. Eru það sömu hagsmunir og hafa kerfisbundið verið í forgangi síðan bankahrunið átti sér stað og hinn almenni íslenski launamaður á að borga möglunarlaust?

Ríkjandi stjórnvöld hafa að mínu mati ekki starfað með almannahag í forgangi frekar en síðasta ríkisstjórn, heldur hafa þau með eða óvitað styrkt stoðir undir áframhaldandi fjármálasvik og pretti, með því að setja ekki nógu mikinn kraft í rannsóknir á landráði því sem átt hefur stað, og með því að berjast ekki með kjafti og klóm fyrir orðspori þjóðarinnar erlendis - og í stað þess að þakka Evu Joly fyrir góða grein um ástandið, hallmæla henni fyrir skoðanir hennar. 

Ljóst að þörf er á endurmati lífsgæða og gilda á Íslandi, og hugsanlega regluverkinu öllu, og einhvern veginn frelsa almenning undan oki þeirra sem skófla takmörkuðum auði þjóðarinnar til sín og sinna án þess að bera nokkuð skynbragð eða áhuga á almannahag. 

Hugsaðu sjálfstætt og leyfðu öðrum að njóta sömu forréttinda. (Voltaire) 

mbl.is Lögbanni mögulega hnekkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sammála!  Undir eðlilegum kringumstæðum er ég fylgjandi bankaleynd, þ.e. að hver og einn geti ekki fengið upplýsingar um stöðu annarra viðskiptamanna bankans.  En þetta eru svo langt frá því að vera "eðlilegar" kringumstæður.  Banki sem er gjaldþrota og undir stjórn skilanefndar og (vonandi) til rannsóknar hjá saksóknara er ekki rekinn við "eðlilegar" kringumstæður.  Ef einhver hefði átt að óska eftir að þessar upplýsingar væru ekki birtar hefði það átt að vera sérstakur saksóknari. 

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 2.8.2009 kl. 18:56

2 identicon

Sammála! Lögbann á gögn sem eru á netinu og allir geta kynnt sér. Það á eingöngu við um RÚV ekki Stöð 2? Almannahagsmunir ættu að vera ofar hagsmunum lántaka í þessu tilviki. Breyta þarf lögum sem kveða á um þetta þannig að skýrt sé að bankaleynd skuli aflétta við aðstæður sem þessar. Hver er staða þessara lána nú spyrjum við. Borga þessi fyrirtæki eða félög lánin til bankans að hluta eða verða þau afskrifuð og reikningurinn sendur ríkissjóði? Almenningur á rétt á að vita allt um staðreyndir málsins. Hnekkja ber þessu banni það er siðlaust.

Guðbjörn

gudbjoern (IP-tala skráð) 2.8.2009 kl. 22:28

3 Smámynd: Finnur Bárðarson

Nei engin bankaleuynd takk húnn er bara til fyrir glæpona til að hylma yfir glæpsamlegt athæfi.

Finnur Bárðarson, 2.8.2009 kl. 22:50

4 Smámynd: Billi bilaði

Nákvæmlega.

Billi bilaði, 3.8.2009 kl. 03:11

5 identicon

hvad med launin hja ollum logfr  'i skilanemdinni.

gisli (IP-tala skráð) 3.8.2009 kl. 10:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband