Aðeins um rasisma og gagnrýna hugsun

Rasismi er eitt af þessum erfiðu fyrirbærum sem við vitum að er illt í sjálfu sér. Það er fordómur sem segir að sumar manneskjur séu verri en aðrar og að sumar manneskjur séu betri en aðrar. Óháð kynþáttum, þjóðernum, trúarbrögðum, kyni, skoðunum eða skólun erum við öll nokkuð jöfn. Við getum öll lært, þau ungu hraðar en þau gömlu þar sem “leirinn” í hausnum þeirra er mýkri og auðveldara að hnoða, en með einbeittri þjálfun getur nánast hver sem er æft sig til að gera nánast hvað sem er. 

Við erum öll jöfn efnislega og siðferðilega vitum við að manneskjur ættu allar að vera jafnar, óháð hvaðan þær eru, hverju þær trúa, hvers kyns þær eru. Það eru augljós sannindi sem er ágætlega lýst í Mannréttindayfirlýsingu sameinuðu þjóðanna:

Sérhver manneskja er borin frjáls og jöfn öðrum að virðingu og réttindum. Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna kveður á um mannréttindi sem allir eiga jafnt tilkall til án tillits til kynþáttar, litarháttar, kynferðis, tungu, trúar, skoðana, þjóðernis, uppruna, eigna, ætternis eða annarra aðstæðna. Þetta eru þín mannréttindi. Kynntu þér þau. Leggðu þitt af mörkum til að efla virðingu fyrir mannréttindum – þínum eigin og annarra.

Almennt hugsum við um rasisma sem fyrirbæri í hugum okkar, að við dæmum einhverja sem verri en okkur sjálf, en ekkert endilega að einhverjir séu betri. En þegar við trúum að konungar, drottningar, prinsar, prinsessur, jarlar eða greifar sé betri manneskjur en aðrar erum við kannski að fordæma út frá rasisma? 

Rasistinn er manneskja föst í ákveðinni heimsmynd, trú um að heimurinn sé á ákveðinn hátt, þar sem sumir eru betri eða verri en aðrir, einfaldlega vegna þess hverra manna viðkomandi er. Hann er ekki líklegur til að velta fyrir sér hvaðan skoðanir hans koma, hvort þær hafi síast óvart inn í hugann og trúna, heldur hefur hann samþykkt þessa trú sem sanna og leyfir ekki eigin hugsunum að gagnrýna og efast um gildi þessarar trúar. Veikleiki rasistans er skortur á gagnrýnni hugsun, en styrkleikur hans óbilandi trú sem er viðhaldið af þrjósku. 

Þeir sem hugsa gagnrýnið geta orðið fyrir því að dæma annað fólk fljótfærnislega á röngum forsendum, til dæmis vegna rasisma eða annarra fordóma sem einhvern veginn hafa fest rætur í huga hennar, en slík manneskja getur leiðrétt eigin skoðanir með því að hugsa um þær og stilla sig af, og með því að hlusta á ábendingar annarra sem hugsanlega hafa skoðanir á skoðunum hennar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

"Rasisti" er núna bara orð sem úrkynjað fólk (woke) notar um þig ef þú segir eitthvað sem þeim líkar ekki. 

Ásgrímur Hartmannsson, 10.3.2021 kl. 08:03

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Er Karl Sigurbjörnsson Frv. BISKUP; rasisti ef að hann er

andvígur hjónaböndum samkynhneigðra? 

https://www.ruv.is/frett/vildi-ekki-kasta-hjonabandinu-a-sorphaugana

Jón Þórhallsson, 10.3.2021 kl. 08:54

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Hatursorðræða gegn samkynhneigðum er refsivert brot, enda þótt það sé ekki rasismi. cool

Racism

"233. gr. a.
Hver sem opinberlega hæðist að, rógber, smánar eða ógnar manni eða hópi manna með ummælum eða annars konar tjáningu, svo sem með myndum eða táknum, vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða, kynhneigðar eða kynvitundar, eða breiðir slíkt út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum."

Almenn hegningarlög nr. 19/1940

Þorsteinn Briem, 10.3.2021 kl. 09:45

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

11.6.2020:

"Mannréttindadómstóll Evrópu hefur vísað frá máli Carls Jóhanns Lilliendahl gegn íslenska ríkinu. Carl taldi íslenska ríkið hafa brotið á mannréttindum sínum er hann var sakfelldur fyrir hatursorðræðu. cool

Dómstólinn telur að ummæli Carls hafi falið í sér hatursorðræðu.

Málinu var vísað frá í morgun og í tilkynningu frá dómstólnum segir að niðurstaða dómsins hafi verið einróma. Segir í niðurstöðu Mannréttindadómstólsins að ekki sé ástæða til þess að efast um dóm Hæstaréttar í máli Carls frá árinu 2017. cool

Forsaga málsins er sú að Carl Jóhann lét tiltekin ummæli um samkynhneigð falla í athugasemd við frétt á Vísi.

Í fréttinni var fjallað um ályktun sem bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar hafði samþykkt og laut að gerð samstarfssamnings við Samtökin 78 um svokallaða hinsegin fræðslu í grunnskólum sveitarfélagsins." cool

Íslenska ríkið braut ekki á Carli Jóhanni Lilliendahl með hatursorðræðudómi

Þorsteinn Briem, 10.3.2021 kl. 09:48

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

17.10.2018:

"Í dómsorði segir að það sé hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og að útilokað sé að ummælin geti verið varin af skoðanafrelsisákvæði 73. gr. stjórnarskrárinnar." cool

"
Ummælin voru rituð í nafni Jónu Salmínu Ingimarsdóttur, sem í viðtali við DV nokkrum dögum síðar þvertók fyrir að hafa skrifað ummælin.

Í ljós að það var eiginmaður hennar, Snorri Jónsson, sem ritaði þau í nafni konu sinnar.

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum ákærði hann fyrir hatursorðræðu vegna ummælanna og í ákæru eru þessi orð talin fela í sér ógnun, háð, rógburð og smánun á opinberum vettvangi í garð ótiltekins hóps manna hér á landi vegna trúarbragða þeirra." cool

Snorri Jónsson sakfelldur fyrir hatursorðræðu

Þorsteinn Briem, 10.3.2021 kl. 09:50

6 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hérna er hann Karl biskup ekki að ógna eða að hóta neinum,

hérna er hann bara að standa vörð um KRISTIN GILDI,

=Hann er á annarri skoðun en gaypride-göngufólkið.

Alveg eins og fólk er annaðhvort með eða á móti esb.

=Hann er ekki að kasta steinum í neinn: 

https://www.ruv.is/frett/vildi-ekki-kasta-hjonabandinu-a-sorphaugana

Jón Þórhallsson, 10.3.2021 kl. 10:01

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Íslenska orðið yfir rasisma er kynþáttahatur.

Hvernig er hægt að hata eitthvað sem er ekki til?

Guðmundur Ásgeirsson, 10.3.2021 kl. 16:16

8 identicon

Jesús Kristur tók þá eindregnu afstöðu til hjónabandsins að það sé órjúfanlegt samband milli karls og konu.

Ekki veit ég til að Kristur hafi tekið einhverja afstöðu til sambands samkynhneigðra, en fráleitt er að hann hefði kallað það hjónaband. Samkynhneigðir eiga auðvitað að fá að lifa sínu lífi og fá lögbundinn rétt til sambúðar, mættu jafnvel fá einhverja blessun yfir hana. En ég tel það bara frekju að krefjast að það sé eins og "heilagt hjónaband" karls og konu eins og það var í augum Jesú Krists. Reyndar munu fáir, nú orðið, taka það eins hátíðlega og Kristur gerði.

Upprunaleg merking nafnsins "Gestur" er óvinur.  Tortryggni og ótti gagnvart framandi fólki hefur, allt frá upphafi, verið inngróinn í manneskjuna. Kannski er þessi ótti að einhverju leyti í genunum á okkur.  Alla tíð hafa verið meiri og minni róstur á milli ættflokka og þjóða og ekki hefur verið á það bætandi ef útlitið var ólíkt.  Segja má að það séu fremur áratugir en aldir síðan mannkynið fór að líta á sig sem eina heild og því ekki að undra þó að sumir séu ekki enn búnir að átta sig á því. Það er ástæðulaust að kalla þá alla "rasista".

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 10.3.2021 kl. 16:46

9 Smámynd: Jón Þórhallsson

Sæll Hörður!

Ertu ekki orðin TVÍ-SAGA með þessari yfirlýsingu þinni?

"Jesús Kristur tók þá eindregnu afstöðu til hjónabandsins

að það sé órjúfanlegt samband milli karls og konu.

Ekki veit ég til að Kristur hafi tekið einhverja afstöðu til sambands samkynhneigðra..,"?

Jón Þórhallsson, 10.3.2021 kl. 16:56

10 identicon

Jón Þórhallsson, hver er TVÍ-SAGAN?

Ekki var ég með neina yfirlýsingu þegar ég sagði að Jesús Kristur hafi talið hjónabandið órjúfanlegt, vísaði bara til orða Jesú að "maður og kona séu eitt hold". Var það ekki rétt?  

Dale Martin heldur því fram í Yale fyrirlestrum sínum um Nýja Testamentið að andstaða Jesú við hjónaskilnað hafi verið nýmæli og  vera meðal sterkra raka fyrir sögulegri tilveru hans.  

Ég veit ekki til að Jesús hafi minnst á samkynhneigða.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 10.3.2021 kl. 18:06

11 Smámynd: Jón Þórhallsson

Páll Postuli fordæmir samkynhneigð

 í hinu ljós-bláa NÝJA-TESTAMENTI sem að allir eiga

á bls.273.

Sem að á að vera málgagn allra KRISTINNA MANNA.

Jón Þórhallsson, 10.3.2021 kl. 19:19

12 identicon

Jón Þórhallsson.

Ég var að tala um Jesúm Krist, ekki Pál Postula. Kannski hef ég ekki lesið Nýja Testamentið nógu vel, en ég veit ekki hvar Jesús Kristur fordæmdi samkynhneigð, kannski þú gætir bent mér á það.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 10.3.2021 kl. 20:50

13 Smámynd: Hrannar Baldursson

Áhugaverðar samræður um fordóma gagnvart samkynhneigðum og um kristið siðferði. 

Guðmundur Ásgeirsson spyr hvernig hægt er að hata eitthvað sem ekki er til. Er það nokkuð mál? Er nokkuð mál að hata Mikka mús, drauma eða spegilmynd nágranna þíns? Er ekki einmitt auðvelt að hata fyrirbæri, en kannski erfiðara að hata einhver efni sem við gerum okkur enga hugmynd um? 

 

Hrannar Baldursson, 10.3.2021 kl. 21:26

14 identicon

Rasismi (racism) er kynþáttahattur eða kynþáttaníð. Það er ekki rasismi að vera á móti hjónabandi samkynhneigðra (sem ég er fylgjandi). Hatursorðræða vegna trúarbragða er ekki rasismi. Það er ekki rasismi að vera á móti múslimum á Íslandi. (Nema þeir séu af einum kynþætti, til dæmis arabar).
Annað verður að kalla sínu rétta nafni sem er þá annað hvort hatursorðræða eða einfaldlega að hafa skoðun á málinu. Sem er réttmætt þó sú skoðun sé önnur en ,,skoðanalögreglan" hefur gefið leyfi fyrir. 

Nonni (IP-tala skráð) 11.3.2021 kl. 02:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband