Stórmyndir: Pan's Labyrinth (El Laberinto del Fauno) (2006) ****

LaberintoDelFauno

Pan's Labyrinth kemur svolítið aftan að manni ef maður veit ekki fyrirfram um hvað hún fjallar. Áður en ég sá myndina hélt ég að hún væri ævintýri líkt Lísu í Undralandi. Þó að hún gefi Lísu ekkert eftir þegar kemur að ímyndunarafli, sköpunargáfu og áhugaverðum aðstæðum, þá er þessi mynd alls ekki ætluð börnum og inniheldur mörg atriði sem gætu verið erfið fyrir viðkvæma einstaklinga.

PansLabyrinth01Faðir Ofeliu (Ivana Baquero) hefur fallið í seinni heimstyrjöldinni, en hann var klæðskeri Vidal kafteins (Sergi López), en hann tekur móður Ofeliu, Carmen Vidal (Ariadna Gil) upp á arma sína, kvænist henni og barnar. Í upphafi myndar eru mæðgurnar á leið að herstöð Vidal kafteins, en hann er kafteinn meðal spænskra fasista árið 1944. Markmið þeirra er að útrýma uppreisnarmönnum sem leynast í grenndinnni. 

Ofelia verður var við undarlegar verur í skóginum og reynir að segja þeim fullorðnu að hún hafi fundið álf. Allir blása á sögu hennar og telja hana einfaldlega vera búna að lesa yfir sig af ævintýrum. Hún villist inn í völundarhús þar sem hún finnur brunn. Neðst í brunninum er forn vera sem gefur henni þrjú verkefni sem hún þarf að leysa, en samkvæmt honum er sál fornrar prinsessu læst í líkama hennar, og vilji hún sleppa úr prísundunni verður hún að leysa þessar þrautir með visku og vönduðu vali.

Það sem er frábært við þessa kvikmynd:

  • Leikur
  • Tæknibrellur
  • Myndataka
  • Hljóðsetning
  • Saga
  • Spenna
  • Dýpt
  • Sköpunargleði
  • Merking

Vidal kafteinn er upptekinn af nákvæmni og stundvísi. Hann passar upp á að úr sem ætti ekki að virka, gangi, er duglegur að pússa skóna sína og drepur þá sem passa ekki inn í hans sýn á lífið og tilveruna. Ofelia lendir strax í mikilli hættu þegar hún kynnist hinum nýja stjúpföður sínum, enda er hún draumórabarn, en stjúpi hennar lifir fyrir að útrýma draumum.

PansLabyrinth02Uppreisnarmennirnir reynast vera venjulegar manneskjur sem berjast fyrir því að geta lifað sínu lífi án ógnarvalds fasismans hangandi yfir sér; þar sem að þeir hátt settu geta drepið almenna borgara eða misþyrmt þeim án þess að þurfa réttlætingar við. Ofelia uppgötvar mikilvægi þess að styðja uppreisnarmennina í baráttunni við stjúpföður sinn, og verður þetta til þess að barnið og stjúpinn berjast við hvort annað upp á líf og dauða. 

Fantasían fléttast skemmtilega inn í atburðarrás sem virðist sönn og raunveruleg, og ekki nóg með það, heldur tekst leikstjóranum Guillermo del Toro að flétta fantasíuna það vel inn í veruleikann að á endanum er ekki auðvelt að gera greinarmun á hvað er hvað.

Þetta er frábær kvikmynd sem ég mæli eindregið með fyrir þá sem áhuga hafa á góðri frásögutækni og sögum sem skilja mikið eftir sig. Það er einfaldlega ótrúlegt að sami leikstjóri skuli hafa gert b-myndirnar Hellboy og Blade 2, en ljóst er að hann hefur lagt sig allan fram við gerð Pan's Labyrinth, sem minnir reyndar mikið á mynd hans frá 2001, El Espinazo del Diablo, eða Hryggur djöfulsins .

Vidal er eitt eftirminnilegasta illmenni kvikmyndasögunnar. Bara til þess að sjá gaur sem jafnast á við þá Hannibal Lecter og Svarthöfða, er það hrein skylda fyrir kvikmyndaáhugamenn að sjá þessa mynd. Ekki skemmir fyrir að hún var tilnefnd til sex Óskarsverðlauna, og mér að óvörum var hún ekki valin besta erlendi kvikmyndin fyrir árið 2006.

Frábær mynd og stórgóð skemmtun. 

Smelltu hér til að lesa gagnrýni um fleiri kvikmyndir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hmmm

Athyglisvert, hafði engan áhuga á að sjá þessa mynd fyrr en nú!

Spurning um að skreppa út á leigu í kvöld.

Kveðja

Gerða M 

Gerða M (IP-tala skráð) 9.3.2007 kl. 21:48

2 identicon

Ótrúlegir þessir danir.

Þeir hafa ekkert úrval hérna í Esbjerg á kvikmyndum, hvorki í bíó né á vídeoleigum. Þessi mynd mun sennilega aldrei koma í bíó hér og þar sem að aðeins myndir í bíó koma út á leigu þá mun ég sennilega aldrei sjá þessa mynd.

Hvar er Laugarásvideo þegar maður þarfnast þess?

Ísland best í heimi?

Annars sá ég 21 grams í gær, stórgóð mynd. Skemmtileg þessi flash-forward, sem einkenna myndina.  Ég er í kvikmyndafræði hérna í skólanum og við horfðum á mynd sem heitir Don´t look now með Donald Sutherland í aðalhlutverki. Þetta er svona sálfræðitryllir síns tíma og gengur svona mest út á : "Nothing is what it seems".

Veit ekki hvort þú hefur séð hana en það er stórgóð myndataka og klippingar, en þessi mynd hefur verið notuð til kennslu víðsvegar um heiminn í kvikmyndafræðslu.

kv. Oddur Ingi 

Oddur Ingi (IP-tala skráð) 10.3.2007 kl. 12:13

3 Smámynd: Hrannar Baldursson

Don't Look Now er náttúrulega hrein snilld. Það er mjög langt síðan ég sá hana síðast, og ég man enn skýrt hvað mér var brugðið í lokin.

Hrannar Baldursson, 10.3.2007 kl. 13:44

4 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Er einmitt að fara sjá þessa mynd í kvöld. Hlakka til :-)

Kristján Kristjánsson, 10.3.2007 kl. 16:22

5 Smámynd: Hrannar Baldursson

Það væri gaman að heyra hvernig þér fannst myndin, Kristján.

Hrannar Baldursson, 12.3.2007 kl. 07:54

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

heppin var ég að detta inn á þína síðu (í gegnum Eyþór) frábært að fá svona góð skrif um mynd sem ég mundi kannski ekkert spá í annars, held mig langi að vera bloggvinur þinn og fylgjast með skrifum þínum

Ásdís Sigurðardóttir, 20.3.2007 kl. 14:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband