Af hverju verður að setja Evrópuaðild í forgang?

 

 

Þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort við ættum að ræða um aðild að Evrópusambandinu er álíka gáfuleg og að stofna rannsóknarnefnd til að finna grun um fjármálaglæpi.

Umsókn um aðild að Evrópusambandinu virðist snúast um ótta við að sjálfstæði Íslendinga sé í hættu. Skiptast fylkingar í tvo andhópa, annar þeirra flýgur í V en hinn í S. 

Þeir sem vilja inn í Evrópusambandið telja það tryggja sjálfstæði Íslendinga. Þeir sem vilja ekki inn í Evrópusambandið telja það tryggja sjálfstæði Íslendinga. Hvor hefur rétt fyrir sér?

Raddir sem eru á móti halda að samningar við Evrópusambandið þýði að við glötum auðlindum okkar umsvifalaust. Raddir sem eru með telja þetta tóma vitleysu, og óska eftir aðildarviðræðum til að geta sýnt fram á það. Annars verður inngangan í ESB aðeins byggð á fordómum og hindurvitnum. 

 

 

Þegar við höfum ekki forsendur til að velja, þá er hvorki gott að segja af eða á, heldur leita sér frekari upplýsinga. Sé ákveðið að leita ekki frekari upplýsinga, er ljóst að verið er að hafna. Ef ákveðið er að kjósa um hvort eigi að leita upplýsinga er verið að kjósa á forsendum sem hafa ekkert sannleiksgildi og væri slík niðurstaða því byggð á fordómum einum.

Þessi umræða um Evrópumálin minnir mig svolítið á rifrildið um hvort að heimurinn sé hnöttóttur eða disklaga. Annar hópurinn óskar eftir að farið sé eftir rannsóknum og rökum, en hinn eftir trú og hindurvitnum. Hvora aðferðina ætlum við að nota? Hvor leiðin er sæmandi þjóðfélagi á 21. öldinni?

Ísland hefur þegar tapað sjálfstæði sínu. Það er bara ekki búið að gefa út sagnfræðibókina sem fullyrðir það og umræðan um glötun sjálfstæðisins er ekki farin almennilega í gang. Alþjóðlegi gjaldeyrissjóðurinn stjórnar framtíð landsins og mun gera það út frá sjónarmiði sem er alls ekki íslenskt, og ekki einu sinni evrópskt, heldur út frá viðmiði markaðshyggju, þeirri hugmyndi sem kom þjóðfélaginu á hvolf.

 

 

Ef við segjum okkur úr Alþjóða gjaldeyrissjóðnum verður hugsanlega valtað yfir okkur með hervaldi, eignir okkar gerðar upptækar og þjóðin gerð að ríki í því landi sem sigrar í stríðinu um íslensku auðlindirnar. Þetta hefur gerst víða um heim. Af hverju ekki hér? Þetta er lítill heimur og vegalengdir stuttar.

Ef við göngum í Evrópusambandið sem sjálfstjóð þjóð, fáum við staðfestingu á sjálfstæði okkar, nokkuð sem hægt er að deila um í dag. Við getum ekki gengið í Evrópusambandið með því hugarfari að "þeir" muni taka allt af okkur. Þannig virka hlutirnir ekki. Þegar við göngum í félag með öðrum, þá getum við ekki eingöngu ætlast til með hroka og vandfýsni að "þeir" eigi að gefa okkur eitthvað, að "þeir" ætli að taka auðlindirnar frá okkur, heldur líka um hvernig við getum hjálpað "þeim".

Miðað við umræðu síðustu daga mætti halda að Íslendingar séu eigingjarnasta þjóð í heimi. Það talar enginn um að gefa af sér, allt snýst um að fá sem mest út úr samningum. Það er ekki jafnslæmt að gefa af sér og sumir virðast halda. Það gæti nefnilega komið til baka síðar meir á óvæntan hátt.

 

 

Ég er ekki að segja að við eigum að vera barnaleg og einföld í samningsgerð, heldur ganga til samninga með opnum hug. Ekki allir í heiminum ganga með einkunnarorð íslensku þjóðarinnar í skauti sér: "Ég fyrst!" Það er fólk þarna úti sem sýnir umhyggju og hefur áhuga á að bæta samfélag manna um allan heim, og þeim þætti bara flott ef Ísland tæki þátt. Þetta er ekki allt einhver valdaklíka, þó að vissulega séu pólitískar hættur víða. Við getum einfaldlega ekki gert þá kröfu að Evrópusambandið sé Kardimommubærinn. Það er enginn slíkur fullkominn heimur, ekki einu sinni á Íslandi nútímans, framtíðar, né fortíðar. 

Stóra spurningin er: getum við bjargað íslensku þjóðinni frá skuldum óreiðumanna án þess að tapa sjálfstæði okkar, öðruvísi en með því að ganga í Evrópusambandið? Ef þú þekkir þá leið þætti mér vænt um að heyra hana.

Ef við getum ekki borgað 2000 milljarða á þremur árum, og lánið skuldfellur, þá þurfum við að gefa eitthvað annað en peninga, og við munum ekki hafa val um hvað það verður og hversu mikils virði það verður metið - en öruggt er að þar verður um náttúruauðlindir að ræða til að byrja með. Þær munu fara úr höndum okkar, ein á fætur annarri, þar til aðeins ein auðlind verður eftir: mannauðurinn.

 

 

Með slakara menntakerfi þar sem við getum ekki viðhaldið sterku menntakerfi án peninga, munu íslensk börn ekki ná að mennta sig til að verða það sem þau langar, heldur hverfa aftur í það far að mennta sig til að gera eitthvað ákveðið alla ævi, eða jafnvel ná ekki svo langt, fær ekki menntun og starfar þess í stað sem verksmiðjuþrælar erlendra valdhafa sem sífellt leita eftir ódýru vinnuafli. Af hverju ekki á Íslandi?

Kreppan er ekki enn byrjuð. Hún skellur á næsta vetur.

Hef ég einhver haldbær rök? Það eina sem ég hef fyrir mér er einhvers konar hundsvit, óseðjandi forvitni og spænsk skýrsla sem ég fékk í hendurnar um daginn.

Um daginn fékk ég skýrslu sem hét því dramatíska nafni "Crisis en Islandia" eða "Kreppa á Íslandi" í hendurnar sem unnin var úr spænskri rannsókn á íslenska bankakerfinu af OCEI (Observatorio de Coyuntura Económica Internacional). Þar var spáð fyrir um kreppu á Íslandi, að íslenskir bankar hefðu síðustu tvö árin stækkað margfalt umfram getu og að hrun þeirra væri óumflýjanlegt, að kreppa á Íslandi myndi vara í 10-15 ár. 

Þessi spænska skýrsla var skrifuð árið 2006! Höfundur hennar er Alejandro García Carrasco, skrifuð í Valencia, 22. mars 2006. Þetta er áhugaverður lestur fyrir leikmann eins og mig.

Til þessa hefur allt sem í skýrslunni kemur fram orðið að veruleika, nema árafjöldi kreppunnar, af augljósum ástæðum.

Samkvæmt eigin áhættumati eru ógnirnar og veikleikarnir á það alvarlegu stigi að mikilvægt er að gera alvarlegar ráðstafanir. Besta ráðstöfunin fyrir þjóðina tel ég vera þá að ganga í Evrópusambandið. Besta ráðstöfunin fyrir mig og mína fjölskyldu er að flytja úr landi og reyna að byggja mér bækistöð erlendis frá og koma þjóð minni einhvern veginn að gagni þaðan, sjálfsagt með greinaskrifum, pælingum og vonandi sífellt betri gagnrýnni hugsun.

 


Mér var bent á fyrir nokkrum mínútum af einum af mínum allra bestu vinum að það er ein smá villa í þessum pælingum: Evrópubúar hafa verið okkur mjög fjandsamir undanfarið vegna ICESAVE og vilja hugsanlega ekkert með okkur gera. Hann spurði, af hverju ræðum við ekki líka við Bandaríkjamenn um upptöku dollarans, enda hefur Obama ekki sýnt annað en mikla vinsemd gagnvart Íslendingum? 

Þetta finnst mér góð spurning, en leyfi henni að liggja hérna í kryddblöndu um sinn, áður en ég byrja að móta rökstudda skoðun um hana.

 

Myndir:

Photos that came via email, Page 5


Samsæri gegn Samfylkingu?

Í raunveruleikaþáttum sjónvarpsins um íslensk stjórnmál hef ég tekið eftir svolítið merkilegum tjáskiptum milli VG og Sjálfstæðisflokks, og fannst Steingrímur gefa Sjálfstæðisflokknum undir fótinn á föstudagskvöld, og Þorgerður Katrín svo gefa VG undir...

Önnur mynd sem ég verð að deila með ykkur

Össur heldur í hönd Ögmundar til hughreystingar, en allir voru frekar vondir við Ögmund í Kosningasilfri Egils. Það eina sem hann gerði af sér var að rökstyðja skoðun sína í smá snú-snú, en hann gerði greinarmun að það væri lýðræðislegt að leyfa þjóðinni...

Hverjir sigruðu í Alþingiskosningum 2009?

Lýðræðið á sér von. Djúpa von. Kosningaþátttaka var 85,1% sem hlýtur að vera met. Þetta þýðir að flestir þeir flokkar sem fengu kosningu hafa náð til þjóðfélagsins. Aftur á móti þykir mér undarlegt að þingmenn séu 63 fyrir jafn lítinn fólksfjölda. Það má...

Ég bara verð að deila þessari mynd með ykkur

Á þessari spaugilegu mynd eru Bjarni Benediktsson og Jóhanna Sigurðardóttir að rífast yfir hausamótum Þórs Saari, í kosningasjónvarpinu frá því í gærkvöldi.

Hvers vegna er verið að kjósa í dag? Einkunnir frá 0-10. Hverjir lenda í fallöxinni?

Ég reikna með að flestir séu búnir að gera upp hug sinn og ólíklegt að þessi greining hafi einhver áhrif. Samt vil ég birta hana, enda tel ég fátt mikilvægara en að við áttum okkur á því af hverju það eru kosningar í dag, en ekki á hefðbundnum tíma. Því...

Borgarahreyfingin með 41% fylgi í skoðanakönnun HH

Ef þú ætlar ekki að taka áhættu og gefa litlum flokki atkvæði þitt, kíktu þá á þetta. Þetta eru góð rök fyrir þá sem ákveða að kjósa ekki litla flokka, að kjósa Borgarahreyfinguna, því að hún er samkvæmt þessari könnun stór flokkur. Alltof margir kjósa...

Veistu hvað þú átt að kjósa?

Áðan skrapp ég í bíltúr. Kveikti á útvarpinu. Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Ég hlustaði ekki nema í um hálftíma, en þennan hálftíma fékk ég sterklega á tilfinninguna að kosningarnar á morgun væru einhvers konar sápuópera eða íþróttaleikur með þremur...

Af hverju mun ég kjósa X-O?

Ég hef tapað miklu síðan í október: eignir mínar í heimili og bíl hafa fuðrað upp. Ég missti vinnunna í janúar fyrir að verja 10 vinnustundum í október og nóvember við að hvetja aðra Íslendinga áfram með að stofna bjartsyni.is ásamt forseta Íslands en í...

Gúgglaði "Ísland" á kínversku, veistu hvað ég fann?

冰島 Ég prófaði að gúggla orðið "Ísland" á kínversku, sló inn orðið "冰島" (sem er að sjálfsögðu "Ísland" á kínversku. Efsta síðan á Google var Wikipedia á kínversku, og þar var þessi texti:

Hafa allir flokkar tekið eitt skref til hægri?

Þetta er bara tilfinning. Enginn rökstuðningur. Þetta poppaði bara upp í hausinn á mér þegar ég fékk tilkynningu frá Bjarna Harðarsyni um að hann ætlaði að kjósa VG. Mér finnst allir flokkar hafa gjörbreyst í áherslum frá kosningunum 2003, án þess að...

Hvernig gjöreyðum við fordómum?

Að hafa fordóma er afar eðlilegur hlutur. Að vinna ekki úr þeim er alvarlegt mál. Sumir sem hafa fordóma hafa fengið þá frá uppalendum sínum, úr skólastofunni, sjónvarpinu, tölvuleikjum, Internetinu - það er hægt að fá þá úr hvaða áreiti sem er. Það þarf...

Eitthvað fyrir alla! Eniga meniga, ég á enga peninga. Súkkadí púkkadí, kaupa meira fínerí. Kaupæði, málæði, er þetta ekki brjálæði?

Sérstakar þakkir fyrir myndirnar fær A Cool Friday. "Í vel stjórnuðu ríki ber að skammast sín fyrir fátækt. Í illa stjórnuðu ríki, ber að skammast sín fyrir auð." Confusius "Mesti auðurinn felst í að vera sáttur við lítið." Platón "Sé ríkur maður stoltur...

5000 sammála kl. 19:22 í dag!

Það fjölgar hratt í hópnum sem er sammála um að ganga til viðræðna við Evrópusambandið og leggja síðan þann samning sem býðst undir íslenska kjósendur. Ef íslenskum kjósendum er ekki treyst til að velja í þessu máli, þá er þeim varla treystandi til að...

Á að banna fóstureyðingar?

Það kæmi mér ekki á óvart ef fóstureyðingar yrðu bannaðar með öllu í næstu ríkisstjórn, bæði með þeim rökum að fóstureyðingar séu líkamlegt ofbeldi gegn börnum, í samræmi við lög sem sett voru um líkamlega og andlega refsingu í vikunni, sem fjallað hefur...

Er hægt að mæla heimsku?

HEIMSKA " Djöfull ertu klikkaður ," segir hann og reynir að finna veikan blett á sálarlífi viðmælanda þegar rök hans virðast standa af sér slagviðrið. Það furðulega er að persónuárásir virka oft ágætlega til að sannfæra fólk um ágæti eigin máls, en þær...

Hefurðu prófað kosningakompás Moggans?

Smelltu hér til að vera með og birtu niðurstöður þínar (ef þig langar í athugasemdakerfinu) og látta vita hvort mælingin sé marktæk að einhverju leyti. Ég tók þessa könnun. Það kom mér á óvart hversu nákvæmar niðurstöðurnar eru miðað við mínar pælingar...

Ný lög í boði VG: Foreldrum eða forsjáraðilum er óheimilt að beita barn líkamlegum eða andlegum refsingum, þ.m.t. refsingum í uppeldisskyni.

"Móðir fimm ára stúlku hefur verið handekin, en hún reif í handlegg dóttur sinnar og skammaði fyrir óhlýðni í Bónus. Einnig grunuð um að hafa ekki komið í veg fyrir einelti sem sjö ára sonur hennar lenti í. Minnst hálfs árs fangelsisdómur bíður hennar."...

Fara áróðursherferðir í gang þegar hitnar óþægilega undir grunuðu hvítflibbaglæpafólki?

"Allur áróður þarf að vera vinsæll og lagast vel að skilningi þeirra heimskustu sem reynt er að ná til." Adolf Hitler Í Morgunblaði dagsins birtist grein hæstaréttarlögmannsins Brynjars Níelssonar þar sem hann gagnrýnir Evu Joly fyrir að hafa fullyrt um...

Magnaðir hæfileikar hinnar 47 ára Susan Boyle - þú missir andlitið

Þú verður að sjá þetta! Þetta myndband getur kennt fólki heilmikið um sjálft sig. Veltu fyrir þér af hverju Susan Boyle hefur aldrei fengið tækifæri á allri sinni ævi til að sýna hvað í henni býr. Hún birtist á sviðinu frekar ræfilsleg kattahúsmóðir,...

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband