Hverjir eru sökudólgarnir? Ert það kannski þú?

 


Margir hafa þegar verið stimplaðir (hengdir af fjölmiðlum án dóms og laga): Davíð Oddsson, Hannes Hólmsteinn, Jón Ásgeir, Björgúlfsfeðgar, Darling og Brown, Árni Matt, Pétur Blöndal, og þannig heldur runan endalaust áfram.

Ég hef heyrt að ekki sé rétt að leita uppi sökudólgana vegna hruns fjármálaundursins, og velti fyrir mér hvers vegna ekki. Á meðan hinir raunverulegu sökudólgar hafa ekki verið dregnir til saka, verða áberandi embættismenn og heiðarlegt fólk stimpluð sem sökudólgar, á meðan hinir seku fá góðan tíma til að fela slóðina og koma sér undan.

Væri ekki skynsamlegt að hafa upp á raunverulegum sökudólgum til þess að hlífa þeim saklausu? Og þá meina ég fólk sem sannarlega hefur verið að selja sjálfu sér eignir til þess eins að blása upp verð þeirra, fólk sem hefur leikið sér að íslenska hagkerfinu til að láta ársfjórðungsútkomu líta vel út á kostnað gengis og verðbólgu? Fólk sem hefur haft alvarleg áhrif á heildina til eigin hagnaðar?

Ef ekki er rétti tíminn til að hafa uppi á sökudólgunum núna, hvenær er þá rétti tíminn til þess?

  • Þegar þjófur hefur farið um er best að hafa sem fyrst upp á honum til að hann steli ekki meiru eða komi sér ekki undan.
  • Þegar brennuvargur hefur brennt nokkur hús þarf að stöðva hann. Ef honum hefur tekist að brenna heila borg, þarf þá ekki að refsa honum?

Getur samt verið að sökudólgurinn sé ekki persóna, heldur hugmyndafræði? Að við höfum lifað í útópíu og hún einfaldlega ekki gengið upp frekar en aðrar útópíur, þrátt fyrir að okkur hafi virkilega langað til að hún væri sönn? Er sökudólgurinn þá við sjálf fyrir skort á gagnrýnni hugsun og viðeigandi aðgerðum?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jú það var eins og í Þriðja ríkinu,þetta var fólkinu að kenna, hinir báru enga ábyrgð.

Meiri vitleysan.

Egill Helgason (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 09:32

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Hrannar, jú, það eru sökudólgar og þeir eiga ekki að sleppa. Þótt nú séu einhverjir í að reyna að slökkva elda er ekki þar með sagt að annað fólk geti ekki snarað brennuvargana. Þetta er spurning um vilja.

Berglind Steinsdóttir, 12.10.2008 kl. 10:17

3 Smámynd: Neddi

Iss, þetta er allt Íbúðarlánasjóði að kenna og of miklum reglum um bankana. Það segja frjálshyggjupjakkarnir á andriki.is alla vega.

Neddi, 12.10.2008 kl. 10:22

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

pálmi haralds.. hannes smára td.. það ætti að frysta eigur þeirra á meðan verið er að kanna hvernig fjármunum þeirra er tilkomið.. 

Óskar Þorkelsson, 12.10.2008 kl. 10:24

5 Smámynd: Brattur

... það er kannski erfitt að benda á sökudólg í Stóra Kreppumálinu... en Vilhjálmur Bjarnason segir að það séu 28 einstaklingar... útrásar gengið sem fór svona með okkur... og hluti af þeim hafa verið nefndir í þinni færslu og í athugasemdum hér að ofan... svo er næsti sökudólgur "Eftirlitið" sem brást, þrátt fyrir allskonar aðvaranir... en kannski er undirrót vandans einkavæðing bankanna???

Brattur, 12.10.2008 kl. 11:09

6 Smámynd: Ómar Ingi

Cola klíkan og ansi margir tengdir henni það mætti byrja á því að frysta eigur þeirra.

Ómar Ingi, 12.10.2008 kl. 11:41

7 identicon

Getur einhver hér upplýst mig um hvað Ómar á við með Cola klíkunni?

Anna (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 13:20

8 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Það á auðvitað að sækja menn til saka hvort sem það er sem persónur eða hugmyndafræði eða persónur með hugmyndafræði. Það á ekki að fara í Pollýönnuleika og leyfa svo kannski þessu sama fólki að leika sama leikinn. Það á að frysta eigur þessa fólk og það á að taka skellinn, því miður er það ólíklegt að slíkt gerist á þessu landi. Þetta er Ísland og hér er ekki hefð fyrir því að hvítflibbar séu sóttir til saka.

Rut Sumarliðadóttir, 12.10.2008 kl. 13:24

9 identicon

Hrannar 

Hvernig er það má nokkuð kenna Sjálfstæðisflokknum þínum um þetta eða undanförnum ríksstjórnum, ha? Eða er það bara stranglega bannað og enginn ábyrgur, og/eða  hvað eiga allir dans eftir eyrum sjálfstæðisflokksins?

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 13:50

10 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Ég er blásaklaus.

Magnús Sigurðsson, 12.10.2008 kl. 14:18

11 identicon

Vissulega verður að draga menn til ábyrgðar fyrir að hafa valdið jafn miklum skaða og orðinn er. Málið er bara hvernig á að fara að því án þess að lenda á nornaveiðum til þess eins að sefja reiði þjóðarinnar. Spurningin er hverjir eru í raun ábyrgir. Þeir fyrstu sem koma upp í hugann eru að sjálfsögðu fjárglæframennirnir, þeir sem óðu hérna uppi án nokkurs eftirlits og byggðu upp fjármálaheim sem aldrei áður hefur sést á Íslandi. En áttu jafnframt þátt í að skapa eitt mesta góðæri Íslandssögunnar. Þá létum við vera að dæma þá heldur sátum að sumblinu með þeim. Og það gerðu stjórnmálamennirnir líka. Man ekki  eftir að Geir eða Ingibjörg eða Björgvin eða Árni hafi eitthvað verið að agnúast út í fjárglæframennina heldur þvert á móti. Gaman að lesa tilvitnun í Fréttablaðinu í morgun þar sem dregin eru fram orð varaformanns Samfylkingarinnar. Þar lofsyngur hann þessa menn og telur þá með metnaði sínum vera framtíð íslensku þjóðarinnar! Held hann ætti að þegja í dag... Hvar var eftirlit ríkisvaldsins fyrir sex mánuðum síðan? 9 mánuðum síðan? 24 mánuðum síðan? Hvar var fólkið sem kosið var á Alþingi og í ríkisstjórn þegar það átti að vera tryggja eftirlit með fjárglæframönnunum? Margir þeirra sem brugðust þessari skyldu sinni eru nú að gala hæst um aftöku fjárglæframannanna! Er fólk búið að gleyma hvernig forseti lýðveldisins lofsöng íslenska útrás og ferðaðist um allan heim til að liðka fyrir viðskiptasamningum fyrir fjárglæframennina? Hvaða ábyrgð ber forsetinn ef hann tók jafn beinan þátt í útrásinni og hann gerði? Hvað á að gera við þá sem tóku þátt í að auka erlendar skuldir heimilanna með því að taka erlend neyslulán, hvort sem var til íbúðakaupa eða bílakaupa? Gerðu lántakendur sér grein fyrir sveiflum á gengi krónunnar? Sögulegar sveiflur hennar hefði verið hægt að kynna sér á einu línuriti. Almenningur á sinn þátt í að kynda undir þenslu bankanna með neyslu sinni. Ef hann hefði hagað sér á ábyrgan hátt og séð hvaða kviksyndi erlend lán eru vegna sveiflna, hefðu bankarnir ekki getað boðið þau vegna þess að eftirspurnin hefði ekki verið nein. Hér þarf ekki að taka fram öll innlend neyslulánin sem voru fjármögnuð á fylleríinu...

Er alls ekki að segja að ekki eigi að draga menn til ábyrgðar. Veit bara ekki alveg hvar á að byrja! Kannski á Seðlabankanum þar sem menn reyndu eftir veikum mætti að spyrna fótum gegn ofþenslu og ábyrgðalausri útrás?

Kristbjörn H. (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 16:37

12 Smámynd: Pétur Hlíðar Magnússon

ég veit nú ekki hvad er rétt en skodid http://video.google.com/videoplay?docid=7065205277695921912&hl=en tetta lýsir í tad minnsta einum möguleika

kvedja

Pétur Hlíðar Magnússon, 12.10.2008 kl. 17:37

13 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Það er allavegana lágmark að þeir sem voru sofandi fyrir því sem óhjákvæmilega gerðist séu víðsfjarri í ákvörðunum um framhaldið, þegar menn gerast sekir um svona afdrifaríkan sofandahátt og vanhæfni á umsvifalaust að hleypa nýju fólki að, það er til nóg af hæfu fólki til að reyna að laga það sem hægt er...og nokkuð ljóst að Davíð býr ekki yfir þeirri fersku hugsun sem nú er þörf á. Einnig VERÐUR það að vera fólk sem er ekki með hagsmunatengls við stórbokka og arðræningja fortíðarinnar, það er alger lágmarkskrafa!

En auðvitað er þetta ekki Davíð að kenna í stóru myndinni þó að hann hafi verið dottandi gamalmenni í starfi sem hann réð ekki við, orsökin liggur djúpt í hinu kapítalíska kerfi, það virkar ekki nema að hrun verði með reglulegu millibili þar sem stærstu hákarlarnir geta sópað til sín fyrirtækjum og eigum millistéttanna á spottprís, þegar því ferli er lokið hefst uppbyggingin(auðvitað stjórnað af sömu hákörlum).

Hér má sjá hvernig þetta dásamaða kerfi er í hnotskurn, brauðmolakenningin er vonandi dáin í eitt skipti fyrir öll vona ég þó að sé últra bjartsýni að ætla það, elítan finnur nýjar leiðir til að arðræna almenning áfram eins og undafarnar aldir, þegar herlögum verður skellt á einhverntíman í þessum mánuði eða byrjun næsta í Bandaríkjunum og millistéttin gerir uppreisn(sem verður barin niður af mikilli hörku) hafa "svínin" frítt spil og blekkingarleikurinn getur byrjað upp á nýtt.

Georg P Sveinbjörnsson, 12.10.2008 kl. 17:52

14 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Goð margra frjálshyggjupostula, Adam Smith orðaði þetta svona í bók sinni "Auðlegð Þjóðanna" :

 "Allt fyrir okkur, og ekkert fyrir annað fólk, virðist, á hverri öld heimsins hafa verið hin ógeðfelda regla valdhafa mankyns (the masters of mankind)." Bók I, kafli IX. og "Hver sem ímyndar sér að valdhafar (masters) koma sér sjaldan saman um hlutina er eins fáfróður um heiminn og um umræðuefnið." Bók I, kafli VIII

Georg P Sveinbjörnsson, 12.10.2008 kl. 18:17

15 identicon

Davíð Oddsson var formaður Sjálfstæðisflokksins og stjórnaði einkavinavæðingu bankanna.
Hann gerðist síðan æðsti embættismaður fjármála Íslands.
Hann ber ábyrgð á því að skuld íslenska ríkisins í dag er 12 föld þjóðarframleiðsla þjóðarinnar.
Hann átti að sjá til þess að íslenska þjóðin væri ekki þátttakandií þeirri áhættu sem sem fylgdi bankastarfseminni.

Davíð Oddsson er maðurinn sem eyðilagði Ísland.

Ragnar (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 20:56

16 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ekki benda á mig

Sigrún Jónsdóttir, 12.10.2008 kl. 21:56

17 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þeir sem bjóða lausnirnar eru sekir, það er þumalfingursreglan hér er það ekki?

Það er stærra samhengi í þessu Hrannar.

Ef við semjum við IMF, þá er sjálfstæði Íslands farið og þar með ákvörðunarréttur okkar yfir auðlindunum. Það verður að stöðva þann gerning. Að senda borderline mongólíta í slíkar viðræður er algert sjálfsmorð.  Tökum boði Rússa ef skilyrðin eru ekki of bindandi og vonum svo að þeir afskrifi þær svo er betur árar. 

Það er orðið ansi undarlegt, þegar IMF er farinn að biðla til þjóðar um að fááð lána henni. Þeim díl fylgir yfirtaka efnahagstjórnar hér. Semsagt alger valdataka, manna með annarlega hagsmuni, Bildenbergera og hringborðsriddara Globalistanna, sem hafa það eitt að markmiði að koma öllum helvítins heiminum á eina hendi.

Ég vona að menn átti sig á hvað er í uppsiglingu hér.

Ágæt byrjun, er að lesa "Falið Vald," sem hægt er að nálgast á www.vald.org Lesið síðan um sjóðinn og sérstaklega um skilyrði hans og gagnrýni á hann hér: http://en.wikipedia.org/wiki/International_Monetary_Fund

Þetta heitir Globalismi - One world Goverment og hún er IMF.  Þetta monster er búið að halda vanþróuðum ríkjum í helgreipum skulda í marga áratugi með upptöku auðlinda og arðráni í gegnum ofurvexti og ofurskilyrði. Nú er kominn tími til að fólk hætti að rífa hvert annað á hol hér heima og sjái hið raunverulega samhengi.

Googlið reynslu Afríku og Suðurameríkuþjóða af IMF. Auðug lönd í raun, sem lepja dauðann úr skel. Mannfyrirlitningin alger og mannslíf einskis virði.

Þetta má ekki ske!

Jón Steinar Ragnarsson, 12.10.2008 kl. 23:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband