Predator 2 (1990) **

Síðasta mynd sem ég fjallaði um var Predator frá 1987. Hún hefur getið af sér tvö afkvæmi og það þriðja er á leiðinni. Fyrsta afkvæmið var hin alltof obeldisfulla og ósmekklega Predator 2, sem fjallað er um hér fyrir neðan. Næst kom hin hrykalega lélega Aliens vs. Predator (2004) og næsta jóladag verður framhaldið, Aliens vs. Predator: Requiem, frumsýnd. 


Predator 2 er sjálfstætt framhald. Það er minnst á atburði fyrstu myndarinnar í framhjáhlaupi.

Ófremdarástand ríkir í Los Angeles. Glæpaklíkur vaða uppi drulludópaðar og þrælvopnaðar. Margir lögreglumenn eru drepnir á dag og allt í upplausn. Það er engu líkara en að við séum stödd í heimi Robocop eins og hann birtist okkur í Paul Verhoeven útgáfunni.

Danny Glover leikur ofurlögguna Mike Harrigan. Hann veður inn í hóp glæpamanna sem drita eins og brjálæðingar úr öllum hugsanlegum byssutegundum. Danny Glover teppir gluggana á bílnum sínum með skotheldum vestum, brýtur af bílstjórahurðina og laumar sér þannig upp að þeim til að bjarga tveimur föllnum félögum. Honum tekst að komast aftan að bófunum og plaffar þá alla í spað.

Veiðivera úr geimnum fylgist spennt með hvernig Danny Glover leysir úr málunum. Þar hefur hún fundið verðugan andstæðing, finnst henni, en áhorfandinn á bágt með að trúa því. Veran drepur nokkur bófagengi á sinn yfirnáttúrulega hátt og þegar hún hefur drepið nokkrar löggur sem eru félagar Glovers, þá ákveður hann að þetta sé orðið persónulegt, og ætlar heldur betur að taka í lurginn á kvikindinu.

FBI fulltrúinn Peter Keyes (Gary Busy) truflar stöðugt rannsóknina, ásamt hópi þrjóta sem inniheldur meðal annarra Garber, sem leikinn er af Adam Baldwin, stórskemmtilegum leikara sem hefur ekki fengið nóg af góðum tækifærum. FBI gaurarnir vilja ná skrýmslinu lifandi og að sjálfsögðu renna aðgerðir þeirra úr í sandinn og reynast hið versta klúður, sem aðeins Danny Glover getur reddað.

Fínir leikarar birtast í aukahlutverkum, sem standa sig reyndar misjafnlega vel. Þar er væntanlega frægastur Bill Paxton, sem brá reyndar einnig fyrir í The Terminator sem pönkari, en hann ofleikur löggu sem hefur alltof mikið sjálfsálit. Maria Conchita Alonso og Ruben Blades eru hins vegar nokkuð góð sem aðstoðarmenn Danny Glover, en Danny kallinn stendur sig best þeirra allra. Hann sýnir flotta takta, þó svo að hann sé langt frá því að vera trúverðugur í sínu hlutverki.

Predator 2 er ekki jafn spennandi og hún er óhugnanleg. Það er alltof mikið af tilgangslausu drápi og tilviljunarkenndum augnablikum. Stundum er eins og geimskrýmslinu takist að vera á tveimur stöðum samtímis, sem gengur náttúrulega engan veginn upp. Það að skrýmslið leggi Danny Glover í einelti af öllum þeim vopnuðu gaurum sem birtast í myndinni er líka frekar ósennilegt.

Tæknilega er Predator 2 óaðfinnanleg, en hún hefur bara ekki upp á neitt nýtt að bjóða. Reynt var að blanda saman Lethal Weapon og Alien, en það gengur bara ekki alveg upp. Hugmyndin ágæt svosem, en sjálfsagt of erfið í framkvæmd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hmmm virkaði alveg fyrir mig:) Fín afþreying fannst mér.

Eggert Vébjörnsson (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 23:43

2 identicon

Bill Paxton birtist einnig í Aliens. Sem er, ofsögum sagt, frábær mahafakking mynd. Þa var leitað til ðe governeitor, en hann var upptekin við T2.

 En mér finnst að Predator 2 vera afar vanmetin mynd, annar frumskógur, önnur sýn/mynd. Ef Predator er þriggja og hálfs stjörnu mynd, þá er predator 2, sem framhald og áframhald af þeirri mýtu sem er "hinn geimverski veiðimaður", vera þriggja stjörnu mynd. 

Þórður Ingvarsson (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 00:49

3 Smámynd: Hrannar Baldursson

Smekkur okkar nær ekki alveg saman. Málið er að Predator 2 hefði getað verið mjög góð. Ef handritið hefði verið aðeins betur skrifað, og aukaleikararnir verið meira sannfærandi, og "geimverski veiðimaðurinn" haft eitthvað annað að gera en að drepa vopnað fólk og ef Arnold hefði verið í aðalhlutverki; þá hefði hún sjálfsagt náð 3 stjörnum. Ég viðurkenni að þegar ég sá hana fyrst fannst mér hún 3 stjörnu virði, en hún hefur einfaldlega elst mun verr en upprunalega myndin. Frábært að fá svona skoðanaskipti!

Hrannar Baldursson, 14.11.2007 kl. 01:25

4 identicon

innlitskvitt.

Hallgrimur Viðar Arnarson (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 12:50

5 identicon

Já, það hefði óneitanlega verið flott að fá Dutch aftur, en mér finnst Danny Glover standa sig ágætlega.

En það eru nokkur mögnuð atriði í myndinni, að mér finnst, byrjunaratriðið er ansi gott og fyrstu kynni Glovers við veiðimanninn, þegar veiðimaðurinn sér að konan er ólétt en vopnuð en ákveður að hlífa henni, bardaginn í kæliskápnum og eltingaleikurinn milli Glovers og veiðimannsins í kjölfarið og þó að lokabardaginn hafi ekki verið uppá marga fiska þá var samt gaman að sjá "the trophy case" með hauskúpunum af t.d. geimverunni úr Alien/s.

 Já, ég er sammála með að handritið mátti vera betur skrifað, en það voru óneitanlega nett touches í myndinni t.d. þetta code of honour hjá veiðimönnunum, karakterinn hans Paxtons var á nippinu að vera afar óþolandi og fleira er hægt að tína til.

 En, mér finnst vera kominn tími á Predator 3 - spurning hvar hún gæti gerst.

Þórður Ingvarsson (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 14:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband