Source Code (2011) ****
22.5.2011 | 07:42
Tímaflakkstryllirinn "Source Code" hefđi getađ heitiđ "Quantum Leap: The Movie" og sjálfsagt fengiđ betri ađsókn fyrir vikiđ. Hún er skemmtilegur og vel gerđur samtíningur úr snilldar kvikmyndum og sjónvarpsţáttum. Ţađ má segja ađ umgjörđin komi úr "Quantum Leap" (1989-1993) og "24" (2001-2010), en söguţráđurinn úr "Groundhog Day" (1993), "Avatar" (2009) og "Star Trek" (2009). Öll ţessi blanda heppnast vel.
"Source Code" er önnur kvikmynd leikstjórans Duncan Jones í fullri lengd. Sú fyrri var "Moon" (2009) og báđar međ eftirminnilegum söguţrćđi og persónum sem fá áhorfandann til ađ velta hlutunum fyrir sér. Ţađ er eins og loks hafi stigiđ fram á sviđiđ leikstjóri sem getur gert fyrir kvikmyndir ţađ sem Philip K. Dick (1928-1982) gerđi fyrir smásögur.
Colter Stevens (Jake Gyllenhaal) vaknar í lest, í líkama annars manns og hefur átta mínútur ţar til lestin springur í loft upp. Hann hefur veriđ sendur til ađ finna upplýsingar um ţá hryđjuverkamenn sem stóđu fyrir sprengjunni. Hann ţarf ađ upplifa ţessar sömu átta mínútur óteljandi sinnum til ađ ná valdi á ađstćđum og kynnast fólkinu í lestinni, sérstaklega hinni ađlađandi Christina Warren (Michelle Monaghan). Eftir ţví sem hann kynnist fólkinu betur, og sérstaklega dömunni, vaknar hjá honum áhugi á ađ bjarga öllum í lestinni, sem er náttúrulega ómögulegt verkefni (eđa "Mission Impossible" (1996)), enda tilvistin í lestinni ekkert annađ en minning.
En máliđ er ekki einfalt. Samkvćmt dr. Rutledge (Jeffrey Wright) er Colter ađeins ađ upplifa síđustu átta mínútur í lífi kennara sem staddur var í lestinni, og hann á engu ađ geta breytt, ţar sem ţetta er bara minning.
Ţegar Colter skýst yfir í veruleikann í hvert skipti sem hann deyr á áttundu mínútu er hann lokađur inni í einhvers konar tanki, og hefur ađeins samskipti viđ tvćr manneskjur, annars vegar Goodwin (Vera Farmiga) og hins vegar dr. Rutledge (Jeffrey Wright), en sá síđarnefndi er jafnframt hálfgerđur Frankenstein, svo enn sé bćtt viđ vísunum.
Reyndar leikur Scott Bakula lítiđ hlutverk í myndinni, en Bakula lék ađ sjálfsögđu ađalhlutverkiđ í ţáttunum "Quantum Leap". Hann talar meira ađ segja eins og dr. Sam Becket gerđi í ţeim ţáttum, en honum var títt ađ segja "Oh boy!".
Jake Gyllenhaal keyrir söguna áfram og er jafn góđur í "Source Code" og hann var slakur í "Prince of Persia" (2010), og jafn góđur og hann var í hinni afar góđu "Brothers" (2009) ţar sem hann var í ađalhlutverki ásamt Natalie Portman og Tobey Maguire.
Eins og títt er um góđar vísindaskáldsögur, ţá spyr hún heimspekilegra spurninga sem virđast viđ fyrstu sýn frekar einfaldar, en ţegar pćlt er í ţeim leynast hugmyndir sem hafa kannski ekki flotiđ upp á yfirborđiđ hjá okkur öllum. Stóra spurningin er hvađ minningar séu, hvort ađ minning sé eitthvađ meira og merkilegra en hugarburđur? Skapa sameiginlegar minningar heim okkar eđa er heimurinn bara efnislegt tóm?
Ţađ er alltof sjaldan sem mađur sér svona góđan vísindatrylli í bíó.
Allgjör snilld!
Flokkur: Kvikmyndir | Breytt 18.12.2014 kl. 10:25 | Facebook
Athugasemdir
Rétt Don , án efa ein af betri myndum ársins , sonur hans Bowie er ađ standa sig vel sem leikstjóri.
Ómar Ingi, 22.5.2011 kl. 14:18
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.