Ţegar árásir sigra skynsemina

242472

“Ad hominem árás gegn einstaklingi, ekki gegn hugmynd, er mikiđ hrós. Ţađ ţýđir ađ manneskjan hefur ekkert gáfulegt fram ađ fćra um skilabođ ţín." - Nassim Nicholas Taleb, Svarti svanurinn, 2007.

 

Ein ţekktasta rökvilla rökfrćđinnar er kölluđ "Ad-Hominem", en í stuttu máli merkir hún ađ ţegar rökrćđur eiga sér stađ ţá reynir gjarnan annar ađilinn ađ brjóta gegn lögmálum rökfrćđinnar og fara frekar í manninn en boltann, svo fótboltamál sé notađ.

Ţetta afbrigđi mćlskulistarinnar á sér stađ ţegar mćlandi reynir ađ varpa skugga á manngerđ, vilja eđa eitthvađ í fari viđmćlanda frekar en ađ taka á málefninu sjálfu.

Ţađ er mjög óţćgilegt ađ verđa fyrir slíkum árásum, sérstaklega ef viđmćlandinn hefur ekkert til ađ verja sig annađ en röksemdir og góđan vilja. Hann mun aldrei svara í sama mćli ţví ţađ er ekki hans eđli ađ sannfćra ađra um hvađ honum finnst, heldur sýna fram á hvernig málum er háttađ í raun og veru.

Vandinn er sá ađ ţađ er mun auđveldara ađ vekja eftirtekt og sannfćra fólk međ skýrum tilfinningum og hörđum dómum frekar en röksemdarfćrslum og hófsemi. 

Samt er ţađ skylda allra ţegna í lýđrćđisríki ađ fella ekki dóm nema rökin hafi fullnćgjandi forsendur. Var ríkissáttasemjari hlutdrćgur eđa ekki í sínum málflutningi? Óháđ sannleikanum hefur orđspor hans var flekkađ af andstćđingum hans, honum gefnar upp sakir sem eiga ekki viđ rök ađ styđjast. 

Slíkt getur gerst ţegar heitar tilfinningar og köld rök rekast á. 

 

Sjá Wikipedia síđu um Ad-hominem rökvilluna: Persónuníđ

Mynd: Svarti Svanurinn eftir Taleb á amazon.com

 

 


mbl.is „Ég hygg ađ ég hafi gert allt rétt“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 13. febrúar 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband