In Memoriam
Charlton Heston (4. október 1924 - 5. apríl 2008)
Charlton Heston er þekktastur fyrir hlutverk sín í stórum kvikmyndum, sem hafði rándýrar tæknibrellur, góða listræna leikstjórn, flotta búninga og magnaða tónlist. Hann lék Móses, Michaelangelo og Ben-Hur, en Michael Moore gagnrýndi hann harkalega í kvikmynd sinni Bowling for Columbine, þegar Heston var reyndar byrjaður að fá einkenni Alzheimer sjúkdómsins.
Charlton Heston hafði á sínum yngri árum verið þekktur fyrir baráttu sinni gegn vanhugsuðum styrjöldum og var demókrati af Guðs náð. Síðan skipti hann um stefnu og varð harður repúblikani sem studdi Ronald Reagan til forsetakosninga.
Síðar varð hann formaður bandaríska byssusambandsins og hans frægustu orð í því starfi var þegar hann sló því fram að hann myndi aldrei gefa eftir í réttinum til að eiga og vera með byssu á sér:
Ég hef ekki séð allar kvikmyndir Charlton Heston, og nota því einkunnir frá IMDB til að raða þeim eftir einkunnum sem notendur Internet Movie Database hafa gefið þeim yfir árin.
22. Major Dundee (1965) 6.7
Leikstjóri: Sam Peckinpah
Þarna leikur Heston ásamt stórstjörnunum Richard Harris og James Coburn í mynd sem gerist á síðustu dögum bandarísku borgarastyrjaldarinnar.
21. The Greatest Show on Earth (1952) 6.7
Leikstjóri: Cecil B. DeMille
Vann óskarinn sem besta mynd ársins og fyrir besta handritið. Var tilnefnd fyrir bestu búninga, leikstjórn og klippingu.
Ótrúlegt að hún skuli hafa fengið öll þessi verðlaun, þar sem persónurnar eru ekkert sérstaklega spennandi og myndin er ofhlaðin tilgangslausum fjölleikahúsatriðum sem gera hana óendanlega langa og leiðinlega.
20. The Naked Jungle (1954) 6.8
Leikstjóri: Byron Haskin
Milljónir hermaura ráðast á plantekru í Suður Ameríku. Charlton Heston er bóndinn sem þarf að berjast við pláguna.
19. The Agony and the Ecstasy (1952) 6.8
Leikstjóri: Carol Reed
Charlton Heston leikur engan annan en listamanninn Michelangelo. Rex Harrison leikur páfann.
Tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir bestu listrænu leikstjórnina, bestu kvikmyndatöku, bestu búninga, bestu tónlist og besta hljóð.
18. A Man for All Seasons (1988) 6.8
Leikstjóri: Charlton Heston
Heston leikstýrir sjálfum sér í endurgerð óskarsverðlaunamyndar. Hann leikur Thomas More, mann sem þarf að standa uppi í hárinu á hinum gjörspillta Englandskonungi Henry VIII, sem tekur fólk af lífi fyrir litlar sakir hægri og vinstri.
17. The Omega Man (1971) 6.8
Leikstjóri: Boris Sagal
Heston leikur síðasta manninn í jörðinni eftir sýklastyrjöld. I Am Legend (2007) með Will Smith er gerð eftir sömu skáldsögu. Hann þarf að berjast við manneskjur sem hafa breyst í skrímsli.
16. In the Mouth of Madness (1995) 6.9
Leikstjóri: John Carpenter
Stórskemmtileg hrollvekju-fantasía um rithöfund (Sam Neil) sem uppgötvar að hann hefur með bókum sínum opnað aðgang fornra vera inn í heiminn. Charlton Heston leikur útgefandann.
15. The Four Musketeers (1974) 6.9
Leikstjóri: Richard Lester
Charlton Heston endurtekur hlutverk sitt sem hinn illi Richelieu kardináli. Úrvals leikaralið í þessari mynd, meðal annarra Oliver Reed, Raquel Welch, Richard Chamberlain, Christopher Lee, Faye Dunaway og Geraldine Chaplin.
Tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir bestu búninga.
14. Soylent Green (1973) 7.0
Leikstjóri: Richard Fleischer
Framtíðarmynd sem gerist árið 2022 þegar matarskortur er að ganga af mannkyninu dauðu. Vísindamenn hafa fundið upp fæðuefnið Soylent Green, en lögga, leikin af Charlton Heston kemst að óvæntum hlutum um fæðuefnið og miklu samsæri þegar hann vinnur að lausn á morðmáli í Soylent fyrirtækinu.
13. Will Penny (1968) 7.0
Leikstjóri: Tom Gries
Ástarsaga um kúrekann Will Penny (Charlton Heston) og konu í fjallakofa við erfiðar aðstæður.
12. Treasure Island (1990) 7.14
Leikstjóri: Fraser C. Heston (sonur Charlton Heston)
Charlton Heston leikur hér sjóræningjann lævísa Long John Silver. Enginn annar en Christian Bale leikur hinn unga Jim Hawkins. Oliver Reed og Christopher Lee leika einnig stór hlutverk.
11. El Cid (1961) 7.2
Leikstjóri: Anthony Mann
Charlton Heston leikur eina mestu hetju spænskra bókmennta, El Cid. Uppáhalds mynd pabba míns. Sophia Loren leikur eftirminnilegt aðalhlutverk á móti Heston. Ein af bestu epísku myndunum sem fjallar um hvað það þýðir að vera hetja.
Tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir besta listræna leikstjórn, bestu tónlistina og besta lagið.
10. True Lies (1994) 7.2
Leikstjóri: James Cameron
Ég sé hlutverk Charlton Heston í True Lies sem táknrænt. Hann var mesta hasarhetja sinnar kynslóðar, en Arnold Schwarzenegger tók við þeim kyndli, enda er margt líkt með þessum stórvöxnu hetjutröllum. Heston leikur yfirmann Schwarzenegger í bandarísku leyniþjónustunni. Stórskemmtileg spennu/grín um ofurnjósnara sem hittir alltaf, enginn ætti að láta þessa framhjá sér fara.
Tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir bestu tæknibrellur.
9. The Three Musketeers (1973) 7.5
Leikstjór: Richard Lester
Heston leikur lítið hlutverk sem hann endurtók svo tveimur árum síðar. Reyndar er hasarinn mikilvægari í þessum myndum en leikurinn, sem er synd, því það var frábært leikaralið í þessum tveimur myndum.
8. Hamlet (1996) 7.6
Leikstjóri: Kenneth Branagh
Charlton Heston leikur hér lítið en mikilvægt hlutverk, sem leikari í uppsetningu Hamlets á morði föður síns.
Tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir besta listrænu leikstjórn, bestu búninga, bestu tónlist og besta handrit byggt á áður útgefnu verki.
7. Tombstone (1993 7.6
Leikstjóri: George P. Cosmatos
Ein af bestu myndunum sem gerðar hafa verið um Wyatt Earp, og þær hafa verið nokkuð margar. Myndin er skreidd frábæru leikaraliði, en Charlton Heston leikur Henry Hooker, bónda sem veitir aðalhetjunum Wyatt Earp (Kurt Russell) og Doc Holiday (Val Kilmer) húsaskjól á flótta þeirra undan illmennum.
6. The Big Country (1958) 7.7
Leikstjóri: William Wyler
Charlton Heston í aukahlutverki sem harður bóndi í villta vestrinu, en Gregory Peck leikur hetju sem þorir að láta kalla sig heigul án þess að vera það.
Burl Ives vann óskarsverðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki og tilnefnd fyrir bestu tónlistina.
5. The Ten Commandments (1956) 7.9
Lekstjóri: Cecil B. DeMille
Charlton Heston leikur sjálfan Móses. Það að hann skuli hafa verið trúverðugur í hlutverkinu er stórsigur út af fyrir sig.
Vann óskarsverðlaun fyrir bestu tæknibrellur. Tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir bestu listrænu leikstjórn, bestu kvikmyndatöku, bestu búningahönnun, bestu klippingu, bestu kvikmynd og bestu hljóðupptöku.
4. Chiefs (1983) 8.1
Leikstjóri: Jerry London
Ekki stórmynd, heldur sjónvarpsþættir. Ég man eftir að hafa séð þá og fannst þeir frábærir. Ég er ekki dómbær á þá í dag, alltof langt liðið. Charlton Heston leikur Hugh Holmes, fyrstan af þremur kynslóðum lögreglustjóra í smábæ sem þarf að takast á við erfið mál.
3. Planet of the Apes (1968) 8.0
Leikstjóri: Franklin J. Schaffner
Charlton Heston leikur geimfara og tímaflakkara sem lendir á Apaplánetunni, er handsamaður af öpunum og þarf að berjast fyrir frelsi sínu og annarra manneskja sem eru í svipaðri aðstöðu. Minnir mig töluvert á ferðasögur Gullivers þar sem hetjan lendir í Hestalandi.
Tilnefnd til óskarsverðlaun fyrir bestu búninga og bestu tónlist. Heiðursóskar fyrir bestu föðrun.
2. Ben-Hur (1959) 8.2
Leikstjóri: William Wyler
Ein af mínum uppáhalds myndum. Charlton Heston leikur Judah Ben-Hur, ríkan gyðing sem svikinn er af rómverskum vini sínum og gerður útlægur. Sagan fjallar ekki bara um hvernig Ben-Hur vinnur sig út úr þrælkun og verður meðal mestu hestvagnaknapa Rómar, sem verður einnig vitni að krossfestingu Krists.
Tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir besta handrit byggt á áður útgefnu efni, en vann óskarinn fyrir besta hljóð, bestu kvikmynd, bestu tónlist, bestu klippingu, bestu tæknibrellur, bestu leikstjórn, bestu búningahönnun, bestu kvikmyndatöku, bestu listrænu leikstjórn, og Hugh Griffith vann óskarinn sem besti leikarinn í aukahlutverki, og Charlton Heston tók óskarinn sem besti leikarinn í aðalhlutverki.
1. A Touch of Evil (1958) 8.4
Leikstjóri: Orson Welles
Charlton Heston leikur mexíkóskan lögreglustjóra sem er nýgiftur bandarískri konu. Hann blandast inn rannsókn á eiturlyfjamáli og morði, og kemst að því að hans mesti andstæðingur er bandarískur lögreglumaður sem hefur slíka ofsatrú á réttlætið að hann gerir allt til að framfylgja því, sama hvað það kostar. Mér finnst þessi mynd ekki jafn mögnuð og Ben-Hur, fyrir utan að hún er heilsteypt, vel leikin og nánast gallalaus mynd.
Myndin kom ekki út í endanlegri útgáfu fyrr en 1998, 40 árum eftir að hún var gerð, vegna valdafólks sem líkaði illa við Orson Welles.
Flokkur: Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 13:41 | Facebook
Athugasemdir
Semsagt er þessi listi af IMDB og þú ekki alveg sammála honum eða ?
Samanber að þú segir að Touch Of Evil sé ekki jafn góð og Ben Hur , en erfitt að líkja þessum mjög svo óliku myndum saman.
En ég er reyndar þér sammála Ben Hur stendur í minningunni uppúr , þrátt fyrir að Kirk Douglas eigi Spartacus meiri sess í minni drengjaminningu sérstklega þegar hann dýfir manninum ofan í súpupottinn
.
En flott færsla hjá þér as usual
R.I.P CH
Ómar Ingi, 6.4.2008 kl. 13:54
Takk Ómar. Jamm, ég er ekki alltaf sammála IMDB, en raða eftir þeim, þar sem ég hef ekki séð allar myndirnar hans. En samt hef ég séð þær flestar, margar áður en ég fór að skrifa um allar myndir sem ég hef litið.
Hrannar Baldursson, 6.4.2008 kl. 14:10
Stórleikari þar á ferð, sá margar af þessum myndum. Fannst hann alltaf fremur ófríður og því ekki endilega í ,uppáhaldi" framan af en það breyttist síðar.
Frábær samantekt, var ekki búin að lesa um andlát hans
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 6.4.2008 kl. 22:14
P.S. finn reyndar ekkert um andlát leikarans.Er ég að misskilja
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 6.4.2008 kl. 22:15
nei, ekkert að misskilja. hann er död.
en fín samantekt sem fyrr, veit þó ekkert hverju ég er sammála enda ekki séð nema nokkrar af þessum.
flottur kall en fremar íhaldssamur í lokin, kallanginn.
arnar valgeirsson, 6.4.2008 kl. 22:42
Fín samantekt á helstu verkum Hestons.
En, endilega taka burt hugtaka- eða orðskrípið "listræn leikstjórn". Það er ekki til í íslensku og er aðeins léleg þýðing úr ensku.
Kveðja!
Þorfinnur Ómarsson (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 12:52
Þorfinnur: ertu með tillögu um annað orð?
Hrannar Baldursson, 9.4.2008 kl. 13:08
Já, það er réttast að segja einfaldlega "leikmynd", því þetta er hönnun á settinu, hvort sem það er innan eða utan dyra. Undir það flokkast reyndar líka "Set Decoration", en þessir tveir hönnuðir vinna í raun saman að leikmynd myndarinnar. Af þeim sökum flokkast Art Director og Set Decorator undir ein og sömu Óskarsverðlaunin, svo dæmi sé tekið.
Smá fróðleikur á því sviði: Allt til ársins 1966 voru veitt Óskarsverðlaun fyrir leikmynd, þ.e. í lit og í svart/hvítu. Það sama átti við um kvikmyndatöku og búninga.
Art Director er þannig ekki "listrænn leikstjóri", enda hefur hann ekkert með leikstjórn myndarinnar að gera...
Annars takk fyrir fína samantekt!
Þorfinnur Ómarsson (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 15:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.