Nýjustu færslur
- Um líkama og sál - Í tilefni áttræðisafmælis föður míns, Bald...
- Hrós til þjónustuborðs Costco
- Hætturnar sem felast í fáfræði
- Mistök og það sem við getum lært af þeim
- Heimspeki í morgunmat: að byrja hvern dag með krefjandi spurn...
- Af hverju trúum við stundum blekkingum frekar en því sanna?
- Meðan bærinn okkar brennur
- Ekki er allt gull sem glóir, en samt veljum við það
- Ofurkraftar okkar
- Hvernig veljum við hvort við verðum góðar eða slæmar manneskjur?
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Eldri færslur
2024
2023
2021
2020
2019
2018
2017
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Þegar kjörnir stjórnmálamenn brjóta af sér
5.12.2018 | 15:02
Það er ekki hægt að krefja stjórnmálamann um afsögn eða reka hann úr starfi, sama hvað á dynur. Það verður að bíða í nokkur ár þangað til kosið verður að nýju.
Ætti þetta að vera svona?
Er hægt að laga biluð kerfi?
Þegar þú stendur ekki við kosningaloforð þín er sjálfsagt að þú fáir ekki kosningu aftur. Samt gerist það oft. Lítið við því að gera.
En þegar stjórnmálamaður brýtur gegn siðareglum eða lögum er málið mun alvarlegra. Þegar stjórnmálamaður brýtur gegn alvarlegri siðareglu, gengur bókstaflega fram af fólki, þá er engin leið til að losna við viðkomandi önnur en að þvinga hann eða hana til að segja af sér, sem annað hvort gerist eða ekki. Sé viðkomandi siðspilltur og eigingjarn, mun hann sitja sem fastast. Hafi hann smá vit í kollinum, segir hann af sér og fer að gera eitthvað betra við tíma sinn.
Væri ekki betra að hafa ferli fyrir svona lagað?
Það er áhugaverður stigsmunur, og kannski eðlismunur á siðareglum annars vegar og lögum hins vegar, og það má spyrja hvort sé mikilvægara fyrir þá sem setja okkur reglur, að hafa siðferðið í lagi eða fara eftir lögum. Kannski bæði. Siðferðið er nefnilega alltaf grundvöllur laganna.
Það er ljóst að með siðferðilega vafasamri hegðun tapa stjórnmálamenn trausti umbjóðenda sinna. Það er svo augljóst að ekki þarf að útskýra það. Það sést úr flugvél. Þegar stjórnmálamaður er ásakaður um slíka hegðun, væri þá ekki réttast að senda málið til umfjöllunar siðanefndar, sem fjallar um málið af hlutleysi, og getur síðan metið hvort að viðkomandi verði hugsanlega vikið úr stjórnmálum, og þá með lýðræðislegum hætti, hugsanlega með sérstökum kosningum? Stjórnmálamaður sem brýtur lög ætti ekki að geta setið áfram af eigin vilja, af sömu ástæðu.
Myndi slíkt ferli hefta frjálsa tjáningu, eða gera það að verkum að fólk í leiðtogastöðu gætti sín aðeins betur, talaði betur um annað fólk? Myndi það byrja á að forðast spillingu og berjast gegn henni í stað þess að falla í meðvirkni?
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 777735
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- AK-72
- ThoR-E
- Agnar Freyr Helgason
- Alfreð Símonarson
- Alvy Singer
- Anna
- Anna Þóra Jónsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Berglind Steinsdóttir
- Birgitta Jónsdóttir
- Birna Dís
- Birna Guðmundsdóttir
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Sæmundsson
- Björgvin Gunnarsson
- Björn Ingi Hrafnsson
- Bleika Eldingin
- Blogblaster
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brynjar Hólm Bjarnason
- Bwahahaha...
- Börkur Gunnarsson
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Davíð
- Davíð Logi Sigurðsson
- Dofri Hermannsson
- Edda Sveinsdóttir
- Einar Indriðason
- Einar Jón
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eygló Sara
- Eymar Plédel Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fararstjórinn
- FreedomFries
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gudrún Hauksdótttir
- Gulli litli
- Gunnar Björn Björnsson
- Gunnar Björnsson
- Gunnar Freyr Rúnarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Guðbjörn Jónsson
- Guðfríður Lilja
- Guðmundur Pálsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur Sverrir Þór
- Guðmundur Óli Scheving
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Guðrún Erla Sumarliðadóttir
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Guðrún Þorleifs
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Foster Hjartarson
- Gísli Tryggvason
- Hafrún Kristjánsdóttir
- Hafsteinn Karlsson
- Halldór Sigurðsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haukur Viðar
- Heidi Strand
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hulda Haraldsdóttir
- Ingvar Þór Jóhannesson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Johnny Bravo
- Jonni
- Jóhann Björnsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Steinar Ragnarsson
- Jón V Viðarsson
- Jón Viktor Gunnarsson
- Jón Þór Bjarnason
- Jón Þór Ólafsson
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Karl Gauti Hjaltason
- Karl Tómasson
- Katan
- Ketill Sigurjónsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kolbrún Heiða Valbergsdóttir
- Kolbrún Hilmars
- Konráð Ragnarsson
- Kristján B. Jónasson
- Kristján Hreinsson
- Kristján Kristjánsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Kári Harðarson
- Leikhópurinn Lotta
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Magidapokus
- Magnús Árni Magnússon
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- María Kristjánsdóttir
- Millablog
- Neddi
- Pálmi Gunnarsson
- Pétur Kristinsson
- Ragnar Gunnarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Rannveig H
- Ransu
- Rut Sumarliðadóttir
- Róbert Björnsson
- Rúnar Már Bragason
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigríður Jónsdóttir
- Sigrún Jónsdóttir
- Sigurbjörn Friðriksson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Skafti Elíasson
- Skák.is
- Snorri Bergz
- Snuddi
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Jón Hafstein
- Steingerður Steinarsdóttir
- Þorsteinn Briem
- Steinki
- Steinn Hafliðason
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sveinn Arnarsson
- Sverrir Stormsker
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sævar Helgason
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Sólveig
- TARA
- Toshiki Toma
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Tómas Þráinsson
- Vefritid
- Vilhjálmur Árnason
- Villi Asgeirsson
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Víðir Ragnarsson
- arnar valgeirsson
- gudni.is
- kiza
- mongoqueen
- Ásgerður
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Íslendingur
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ómar Ragnarsson
- Ómar Örn Hauksson
- Óskar Arnórsson
- Óskar Þorkelsson
- Óttar Felix Hauksson
- ÖSSI
- Þarfagreinir
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Þröstur Helgason
- Þröstur Unnar
- Þóra Sigurðardóttir
- Þórarinn Eldjárn
- Þórdís Guðmundsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Helgi Þórðarson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Agný
- Ari Jósepsson
- Árni Karl Ellertsson
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarki Þór
- Davíð Pálsson
- Dominus Sanctus.
- DÓNAS
- ESB og almannahagur
- Eygló
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- G Helga Ingadottir
- Gísli Sigurðsson
- Grétar Eiríksson
- Guðni Karl Harðarson
- Hafþór Baldvinsson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Haraldsson
- Hörður Halldórsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Jónatan Gíslason
- Jón Lárusson
- Jón Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Lúðvík Lúðvíksson
- Marta B Helgadóttir
- Morgunblaðið
- Omnivore
- Róbert Badí Baldursson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Sigurður Antonsson
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Styrmir Reynisson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sævar Már Gústavsson
- Sölvi Breiðfjörð
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valur Arnarson
- Vestarr Lúðvíksson
Athugasemdir
Blessaður Hrannar.
Veikleiki röksemda þinna er gildismatið.
Hver á að dæma??
Og reyndu ekki að halda því fram að meirihlutaskoðanir séu alltaf réttar, almannarómur er ágætur, en út frá réttri eða siðaðri hegðun, oft ákaflega sorglegur.
Lýðræðið er langt í því frá fullkomið, en það er ákveðinn mekanismi sem setur skýrar leikreglur, og það er ekki einfalt að breyta þeim.
Og svo á ekki að vera þó einhverjir meintir vitrir menn kalli á gerræði, eða vitræði, og vísa þá sjálfsagt í Platon. Eða þeir telji sig hafna yfir vestrænan menningararf og eru orðnir global, og vísa þá í Konfúsíus.
En gerræði virkar ekki betur, hefur aldrei gert.
Fólk getur haft mismunandi skoðanir á hver á að víkja, og hver á að sitja. En í fulltrúalýðræði er endanleg ákvörðun komin undir viðkomandi þingfulltrúa sem hefur umboð í síðustu kosningum.
Og hvernig á það að geta verið öðruvísi??
En það að þurfa að sækja umboð til kjósenda reglulega, fær stjórnmálaflokka til að íhuga hvað kemur þeim best í næstu kosningum. Eitt að því er að virða augnabliks umræðuna.
En spáðu í það hvernig við værum stödd í dag sem vestræn siðmenning, ef Churchill hefði brotnað undan henni???
Þú ert það vel gefinn, sem og að þú býrð yfir þekkingu á sögu og hugmyndafræði til að vita, að nálgun þín er röng í þessum pistli.
Skoðanafasismi er ekki svarið.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 5.12.2018 kl. 17:25
Þannig sé ég ferlið:
1. Það er grunur á siðferðis- eða lögbroti.
2. Málið er rannsakað af siðanefnd.
3. Ef um lögbrot er að ræða fer málið áfram til lögreglu og í kosninga.
4. Ef um alvarlegt siðabrot er að ræða fer málið áfram til kosninga.
Þannig er mögulegt að leysa þetta. Veit vel að það er einhver sem þarf að dæma, og lýðræðislegasta leiðin er ef kjósendur sem gáfu viðkomandi umboð, geta valið að draga það til baka.
Hrannar Baldursson, 5.12.2018 kl. 19:06
Ókey, ef boðað er til kosninga, þá er ferlið lýðræðislegt.
En þú veist það jafn vel og ég að þetta er útópia, stjórnmálamenn hætta ekki sæti sínu vegna spillingarmála annarra þingmanna.
Eða gefa nefnd útí bæ vald yfir örlögum sínum.
En vegna lögbrota er hægt að svipta þingmann þinghelgi, og ekki sinna menn þingstörfum úr grjótinu.
Kjarninn er samt sá að menn verða að virða leikreglur lýðræðisins, og virða rétt annarra til að hafa aðrar skoðanir. Það sem einum finnst ógeðfellt, finnst öðrum í lagi, sbr uppgangur Svíþjóðardemókrata, sem sannarlega eru með rætur í sænsku nýnasistahreyfingunni.
Og hvernig sem slíkt er metið, þá getur gerræði eða fasismi ekki verið svarið.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 5.12.2018 kl. 22:37
Staðreyndin er sú að okkur kemur þetta ekkert við, þetta er þeirra vinnustaður og þeirra vinnufélagar. Þetta eru persónuleg mál og það var eingin laminn.
Það hefur hefur verið farið verr með konur og karla, miklu verr en eingin frétt og dómari lætur málið jafnvel niður falla. Ég er ekki að mæla því bót en væntanlega veit dómari betur en ég, En það slasaðist engin á klaustrinu.
Það sem okkur kemur við er hvort þingmenn vinni sitt verk samviskulega og af ærlegheitum gagnvart okkur. En þetta RUV hefur enga æru.
Hrólfur Þ Hraundal, 6.12.2018 kl. 00:13
Ómar og Hrólfur,
Nú er ég ekki bara að hugsa um Ísland og Klausturmálið, heldur lýðræðið hvar sem er í heiminum og hvaða siðferðilegt álitamál eða lögbrot stjórnmálamanns sem er, en takk fyrir athugasemdirnar.
Hrannar Baldursson, 6.12.2018 kl. 08:12
Enda var ég ekki að tala við þig um Klaustursmálið, þó við báðir vitum að það er tilefni orða okkar beggja.
Ég var að vara við gerræði, og þú útskýrðir fyrir mér í athugasemd þinni að þannig hafðir þú ekki hugsað þér nálgun þína.
Fátt meir um málið að segja.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 6.12.2018 kl. 08:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.