Sherlock Holmes (2009) **

photo_16_hires

Robert Downey Jr. er frábćr "Sherlock Holmes", Jude Law frekar dapur Dr. Watson í frekar slakri leikstjórn Guy Ritchie, í handriti sem virđist hafa veriđ illilega misţyrmt eftir ađ hafa veriđ samţykkt til ađ létta tóninn í mynd sem hefđi mátt vera myrk og svöl.

Hugsađu ţér:

Sherlock Holmes er vel túlkađur sem dópisti, ömurlegur fiđluleikari og kung-fu meistari, ţar sem snilligáfa hans og ofvirk athyglisgáfa hans fćr ađ njóta sín umfram mannleg samskipti.

Í nokkrum slagsmálaatriđum í upphafi kvikmyndar er skyggnst inn í huga Holmes, ţar sem sýnt er hvernig hann reiknar út af nákvćmni hverja einustu hreyfingu sína og andstćđingsins, međ eđlisfrćđi og sálfrćđi algjörlega á hreinu, áđur en hann rotar andstćđinginn. Ţađ hefđi getađ veriđ sniđugt ađ nota ţetta í fleiri atriđum og láta hann hafa misreikna sig svolítiđ líka.

photo_07_hires

Ţví miđur er handritiđ frekar klisjukennt, og minnir satt best ađ segja meira á Scooby Doo teiknimynd en Sherlock Holmes sögu, ţar sem dularfullt illmenni ađ nafni Lord Blackwood (Mark Strong) ćtlar ađ nota sér frímúrarareglu í Englandi til ađ ná auknum völdum. Hann ţarf ađ komast í gegnum ýmsar ţjáningar á leiđ sinni til valda: dúsa í fangelsi, láta hengja sig, deyja, rísa upp frá dauđum, allt ţetta gamla góđa.

Dularfullur og vel klćddur en enginn sérstakur herramađur rćđur konuna sem Holmes elskar, Irene Adler (Rachel McAdams) til ađ fá honum verkefni. Ţessu sambandi er ćtlađ ađ bćta smá kómedíu í myndina, og ţar ađ auki er trođiđ í söguna ađ Dr. Watson (Jude Law) hefur trúlofast og hefur ţví engan sérstakan áhuga á ađ lenda í frekari ćvintýrum međ Holmes.

Ţađ er hrein synd hvađ Robert Downey Jr. er framúrskarandi góđur í ţessari mynd. Allt annađ fölnar í samanburđi. Stóru mistökin er ađ bćta léttleika í myndina sem passar einfaldlega alls ekki inn í sögu handritsins og skemmir frekar fyrir mynd sem hefđi getađ orđiđ góđ, ţví Holmes er einfaldlega ódrepanlegasti karakter í heimi bókmenntanna, sem sannast á ţví ađ höfundur hans drap hann, en neyddist til ađ lífga hann viđ nokkrum árum síđar vegna áreitis ađdáenda.

Sjáđu ţessa í sjónvarpi eđa DVD. Langi ţig í bíó, farđu frekar aftur á "Avatar".


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garđarsdóttir

Robert Downey JR,  Er örugglega besti leikari tuttugustu aldarinnar.  Hann getur túlkađ hvađ sem er og hvern sem er.  Minn uppáhalds leikari í áratugi. 

Jóna Kolbrún Garđarsdóttir, 9.1.2010 kl. 02:52

2 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Takk fyrir Ţessa gagnrýni Hrannar. Ţetta er sem sagt ruslmatur.

Ţađ sagđi viđ mig Amerísk stelpa fyrir nokkrum árum, ekki spyja mig um fjölda, ađ henni fyndist ég líkur Robert Downey jr. Hann var í tómu tjóni á ţessum tíma en ég tók strax ásatfóstri viđ hann í kjölfariđ og ţađ hefur veriđ gaman ađ sjá hvađ ferill hans hefur legiđ upp á viđ. Klárlega hćfileikaríkur piltur. Ég mun sjá ţessa mynd ađeins vegna hans sem sagt. Á flakkara eđa DVD og mun ţví fylgja gagnrýninni í ţaula.

Gísli Foster Hjartarson, 11.1.2010 kl. 21:58

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband