Réđist múgurinn snaróđur og öskrandi gegn Obama eđa voru ţessi "svokölluđ" mótmćli fyrirsögn í ćsifréttastíl?
10.12.2009 | 21:39
Ég var á stađnum.
Ef ţađ kallast mótmćli ţegar um 20 manns halda á kröfuspjöldum og mótmćla stríđi, en ţúsundir hrópa af einhvers konar fögnuđi til ađ bjóđa gest velkominn og samfagna honum, "Obama, Obama, Obama!" og unglingsstúlkur skrćkja ţegar fyrst hann og síđan Will Smith birtast stundarkorn, ţá má fullyrđa ađ búsáhaldabyltingin hafi veriđ svo blóđug ađ helmingur íslensku ţjóđarinnar lét lífiđ á Austurvelli. Ţetta var meira eins og 17. júní, jólastemmning eđa slíkt, heldur en pirruđ mótmćli.
Fréttin segir:
Ţúsundir manna gengu um götur Óslóarborgar í mótmćlaskyni viđ stríđsrekstur Bandaríkjamanna í Afganistan eftir ađ Barack Obama Bandaríkjaforseti tók viđ friđarverđlaunum Nóbels.
Mótmćlendur gengu fylktu liđi međ kyndla um götur borgarinnar, en göngunni lauk fyrir framan hóteliđ ţar sem Obama gistir.
Ţetta var í mínum huga svokallađur samstöđu- og fagnađarfundur. Ţeir sem segja annađ eru ađ slá ryki í augu fólks, enda međ eitthvađ allt annađ í huga en ađ segja sannleikann. Hagrćđing sannleikans kemur yfirleitt sumum vel sem duglegir eru ađ nćla sér í athygli fjölmiđla. Kannski ţađ sé lögmál? Flest fólk var brosandi međ friđarkyndla, en örfáar hrćđur tróđu sér fremst međ kröfuspjöld til ađ mótmćla fjölgun hermanna í Afganistan.
Konan mín kom á stađinn ađeins á undan mér og varđ vitni ađ kveđju hans heilagleika, og sagđi hún mér međ stjörnurnar í augunum, hvernig hann hafđi kinkađ vinsamlega kolli til ţeirra sem héldu á kröfuspjöldunum og síđan lotiđ höfđi í virđingarskyni. Ţessi mađur hafđi fullkomna stjórn á fjöldanum.
Ég mćtti á stađinn nokkrum mínútum síđar til ađ samfagna manninum ásamt dóttur minni. Hún var yfir sig ánćgđ ţegar hún sá Obama bregđa fyrir í nokkrar sekúndur úr glugga hótelsins og veifa til mannfjöldans, sem skrćkti af fögnuđi. Ţeir fáu sem höfđu kröfuspjöld í hendi hlupu strax ađ átt ađ skrćkjunum, en samkvćmt dóttur minni var hann örugglega ekki lengur en fjórar sekúndur bakviđ sína skotheldu rúđu. Ég missti af ţví ađ sjá ţennan merkilega svip bregđa fyrir eitt augnablik, en er samt ekkert ađ fara yfir um vegna ţess missis. Hins vegar ţótti mér gaman ađ sýna manninum samstöđu, en hann og starfsfólk hans hafa lyft Grettistaki međ ţví ađ lagfćra málstađ ţjóđar sem lá í rúst eftir ađ W. fór frá eftir 8 ár í valdastól og tókst ađ gera Bandaríkin ađ óvinsćlasta ríki heims.
Ţegar rapparinn og Hollywoodstjarnan svokallađa Will Smith steig út úr hótelinu voru skrćkirnir ekkert minni. Ţetta minnti mig töluvert á augnablik sem ég upplifđi í London fyrir nokkrum árum, ţegar Sylvester Stallone og félagar gengu um rautt teppi til ađ frumsýna "Rocky Balboa". Svipađ tóbak.
Mér ţótti merkilegt ađ vera umkringdur ađ minnsta kosti hundrađ manna lögreglu- og hermannaliđi međ öflugar vélbyssur og merkilegt ađ sjá votta fyrir svokölluđum leyniskyttum í turnum og hótelgluggum. Ef ţetta voru ekki raunverulegar leyniskyttur, ţá var ímyndunarafl mitt ađ minnsta kosti nógu öflugt til ađ fylla ţessa lífsreynslu. Einnig voru ţó nokkrir sköllóttir menn í svörtum síđfrökkum á sveimi, og varđ mér ţá allt í einu hugsađ til hversu lélegar "Matrix Reloaded" og "Matrix Revolutions" voru í samanburđi viđ upprunalegu myndina, en ég ţóttist viss um ađ ţetta vćru ţrautţjálfađir öryggisverđir á vegum CIA, enda stökk ţeim ekki bros á vör og voru byggđir eins og Arnold áđur en hann varđ ríkisstjóri.
Mynd: HB
Mótmćlaganga í Ósló | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Athugasemdir
Bara týpiskt bull í fréttamönnum sem skilja kannski tungumáliđ takmarkađ og geta í eyđurnar!
Sigrún (IP-tala skráđ) 10.12.2009 kl. 22:10
Takk Hrannar, fyrir skemmtilega frásögn.
Voru ekki fréttir af "Uppreisninni og Byltingunni" hér, sama marki brenndar? Jú, án efa.
Eftir ţann fréttaflutning horfi ég alltaf, full tortryggni, á "blóđug mótmćli" í ýmsum löndum. Reyni ađ sjá hvort myndavélin sé ekki höfđ svo nálćgt ađ öruggt sé ađ ekki sjáist ađ "mannfjöldinn" er kannski 10-15 manns.
Hef veriđ alltof trúgjörn á fréttir undanfariđ og er örugglega í mörgum tilvikum enn.
Eygló, 12.12.2009 kl. 18:56
Góđur
Ómar Ingi, 14.12.2009 kl. 23:53
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.