Nýjustu færslur
- Af hverju krefjast raunveruleg góðverk alltaf áreynslu?
- Um líkama og sál - Í tilefni áttræðisafmælis föður míns, Bald...
- Hrós til þjónustuborðs Costco
- Hætturnar sem felast í fáfræði
- Mistök og það sem við getum lært af þeim
- Heimspeki í morgunmat: að byrja hvern dag með krefjandi spurn...
- Af hverju trúum við stundum blekkingum frekar en því sanna?
- Meðan bærinn okkar brennur
- Ekki er allt gull sem glóir, en samt veljum við það
- Ofurkraftar okkar
Des. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Eldri færslur
2024
2023
2021
2020
2019
2018
2017
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Ólafur Stefánsson: Við hleypum engum neikvæðum hugsunum að. Það er annaðhvort sigur eða BLEEP!
20.8.2008 | 08:34
Það var gaman að fylgjast með lokamínútum leiksins, en spennan var óbærileg og ómetanlegt þegar Björgvin Páll Gústavsson varði hvert skotið á fætur öðru og Alexander Petterson, Guðjón Valur Sigurðsson og Snorri Steinn Guðjónsson skáru sig í gegnum pólsku vörnina eins og hnífur gegnum volga smjörklípu.
Það allra besta við íslenska liðið finnst mér hið góða hugarfar sem birtist í fyrsta leik þeirra gegn Þjóðverja. Þeim hefur tekist að halda í það, og gera sitt allra besta til að hugsa um hvern leik sem æfingaleik fyrir þann næsta. Þannig halda þeir ró sinni, en maður veit að sigurviljinn er þeim í brjósti borinn þannig að það er engin þörf til að hamra alltaf á mikilvægi þess að sigra. Við vitum það öll.
Næsti æfingaleikur verður annað hvort við Suður Kóreu eða Spán. Það verður spennandi að fylgjast með þeim leik, og óskandi að íslenska landsliðið taki honum einfaldlega sem æfingaleik fyrir næsta leik á eftir, sama hvort að það verður um 1. sætið eða 3. sætið.
Mér fannst einstaklega gaman að hlusta á Ólaf Stefánsson segja frá hugarfarinu eftir leikinn, þar sem hann tók skýrt fram að þeir hleyptu engum neikvæðum hugsunum að. Og notaði orðið BLEEP í stað þess að minnast á þann möguleika að hægt væri að tapa.
Það er ljóst að íslenska þjóðin getur lært heilmikið af strákunum okkar, og þeim til heiðurs ætla ég ekki að hleypa neinum neikvæðum hugsunum að í dag, - ekkert frekar en aðra daga.
Ísland í undanúrslit á ÓL | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Íþróttir | Breytt s.d. kl. 21:19 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 778033
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- AK-72
- ThoR-E
- Agnar Freyr Helgason
- Alfreð Símonarson
- Alvy Singer
- Anna
- Anna Þóra Jónsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Berglind Steinsdóttir
- Birgitta Jónsdóttir
- Birna Dís
- Birna Guðmundsdóttir
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Sæmundsson
- Björgvin Gunnarsson
- Björn Ingi Hrafnsson
- Bleika Eldingin
- Blogblaster
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brynjar Hólm Bjarnason
- Bwahahaha...
- Börkur Gunnarsson
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Davíð
- Davíð Logi Sigurðsson
- Dofri Hermannsson
- Edda Sveinsdóttir
- Einar Indriðason
- Einar Jón
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eygló Sara
- Eymar Plédel Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fararstjórinn
- FreedomFries
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gudrún Hauksdótttir
- Gulli litli
- Gunnar Björn Björnsson
- Gunnar Björnsson
- Gunnar Freyr Rúnarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Guðbjörn Jónsson
- Guðfríður Lilja
- Guðmundur Pálsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur Sverrir Þór
- Guðmundur Óli Scheving
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Guðrún Erla Sumarliðadóttir
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Guðrún Þorleifs
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Foster Hjartarson
- Gísli Tryggvason
- Hafrún Kristjánsdóttir
- Hafsteinn Karlsson
- Halldór Sigurðsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haukur Viðar
- Heidi Strand
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hulda Haraldsdóttir
- Ingvar Þór Jóhannesson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Johnny Bravo
- Jonni
- Jóhann Björnsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Steinar Ragnarsson
- Jón V Viðarsson
- Jón Viktor Gunnarsson
- Jón Þór Bjarnason
- Jón Þór Ólafsson
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Karl Gauti Hjaltason
- Karl Tómasson
- Katan
- Ketill Sigurjónsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kolbrún Heiða Valbergsdóttir
- Kolbrún Hilmars
- Konráð Ragnarsson
- Kristján B. Jónasson
- Kristján Hreinsson
- Kristján Kristjánsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Kári Harðarson
- Leikhópurinn Lotta
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Magidapokus
- Magnús Árni Magnússon
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- María Kristjánsdóttir
- Millablog
- Neddi
- Pálmi Gunnarsson
- Pétur Kristinsson
- Ragnar Gunnarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Rannveig H
- Ransu
- Rut Sumarliðadóttir
- Róbert Björnsson
- Rúnar Már Bragason
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigríður Jónsdóttir
- Sigrún Jónsdóttir
- Sigurbjörn Friðriksson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Skafti Elíasson
- Skák.is
- Snorri Bergz
- Snuddi
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Jón Hafstein
- Steingerður Steinarsdóttir
- Þorsteinn Briem
- Steinki
- Steinn Hafliðason
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sveinn Arnarsson
- Sverrir Stormsker
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sævar Helgason
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Sólveig
- TARA
- Toshiki Toma
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Tómas Þráinsson
- Vefritid
- Vilhjálmur Árnason
- Villi Asgeirsson
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Víðir Ragnarsson
- arnar valgeirsson
- gudni.is
- kiza
- mongoqueen
- Ásgerður
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Íslendingur
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ómar Ragnarsson
- Ómar Örn Hauksson
- Óskar Arnórsson
- Óskar Þorkelsson
- Óttar Felix Hauksson
- ÖSSI
- Þarfagreinir
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Þröstur Helgason
- Þröstur Unnar
- Þóra Sigurðardóttir
- Þórarinn Eldjárn
- Þórdís Guðmundsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Helgi Þórðarson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Agný
- Ari Jósepsson
- Árni Karl Ellertsson
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarki Þór
- Davíð Pálsson
- Dominus Sanctus.
- DÓNAS
- ESB og almannahagur
- Eygló
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- G Helga Ingadottir
- Gísli Sigurðsson
- Grétar Eiríksson
- Guðni Karl Harðarson
- Hafþór Baldvinsson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Haraldsson
- Hörður Halldórsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Jónatan Gíslason
- Jón Lárusson
- Jón Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Lúðvík Lúðvíksson
- Marta B Helgadóttir
- Morgunblaðið
- Omnivore
- Róbert Badí Baldursson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Sigurður Antonsson
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Styrmir Reynisson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sævar Már Gústavsson
- Sölvi Breiðfjörð
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valur Arnarson
- Vestarr Lúðvíksson
Athugasemdir
Ég hélt við hefðum unnið Rússa í fyrsta leik. En annars góð greining.
Marinó G. Njálsson, 20.8.2008 kl. 08:37
Þetta er náttúrulega mikill misskilningur hjá þér, Marínó. Við unnum Þjóðverja með góðu hugarfari gegn Rússum í 1. leiknum.
Nei, annars hárrétt hjá þér og takk fyrir leiðréttinguna.
Hrannar Baldursson, 20.8.2008 kl. 08:54
Jebb þetta er frábær frammistaða. Og gaman að sjá hve þeir virðiast vera samtaka í að gera bara sitt besta, með ánægju og jákvæðni.
Þröstur Unnar, 20.8.2008 kl. 15:23
Eins og smjör gegnum smjör?
Örn (IP-tala skráð) 20.8.2008 kl. 17:29
Örn: greinilegt að ég þarf að ráða mér prófarkarlesara - annars er þetta smjör gegnum smjör svolítið skemmtileg mynd. Auðvitað átti þetta að vera hnífur.
Þröstur: Já, gaman að þessu.
Hrannar Baldursson, 20.8.2008 kl. 21:21
Alltaf gaman að heyra viðtöl við Óla. Aldrei eins og þessi hefðbundnu íþróttaviðtöl. Hann var sérstaklega víraður í þessu viðtali og ég hlá dátt.
Páll Geir Bjarnason, 21.8.2008 kl. 00:45
Ólafur er einstaklega jákvædur drengur eins og fadir hans sem ég kannast vid frá í gamladaga tegar hann var læknir á Sudrueyri og spiladi fótbolta med mínum fyrrverandi.Leikgledin skín af tessum strákum og satt er tad vid skulum bara taka okkur tá til fyrirmyndarHlakka óstjórnlega til ad sá leikinn á morgunn.
Stórt knús inn í gódann dag og segjum áfram ísland
Gudrún Hauksdótttir, 21.8.2008 kl. 11:27
Hér er sko ekkert nema jákvæðni í gangi, allt bleep er bannað. Óska þeim góðs gengis áfram og bíð spennt eftir leiknum næsta.
Ásdís Sigurðardóttir, 21.8.2008 kl. 14:14
Hversu stór hluti þjóðarinnar heldur þú að muni fylgjast með á morgun? Mér finnst nefnilega allir vera að springa úr stolti og áhuga. Fólk er íi unnvörpum farið að plana áhorf á vinnustöðum og margir ætla að taka sér "frí" og skreppa heim eða kannski í Sambíó eða Smáralind. Drengurinn minn á t.a.m. að sækja stundartöfluna sína klukkan 13:30 - einhvernveginn held ég að hann (og fleiri)..muni mæta óvenju seint til þess.
Áfram Ísland!
Anna Þóra Jónsdóttir, 21.8.2008 kl. 18:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.