Eru ofurhetjusögur, eins og sagan um The Dark Knight, gođ- og hetjusögur nútímans?

 

Sögur um forna guđi, hetjur og skrímsli hafa síđan mannkyniđ man eftir sér skemmt okkur. Fyrr á öldum sat kannski sögumađurinn viđ eld og sagđi sögur sem hann hafđi erft frá öđrum sögumönnum, og breytti ađeins til ađ höfđa til nýrrar kynslóđar. Ţessar sögur vekja áhuga fólks, sérstaklega ţegar vel er sagt frá, viđ ţurfum af einhverjum ástćđum ađ hlusta á sögur, viđ nćrumst á ţeim.

Sögurnar eru eitthvađ órjúfanlegt frá hinu mannlega. Ţó ađ formiđ breytist, ţá finna sögumennirnir alltaf nýjar leiđir til ađ birta ţćr, sama ţó ađ ţćr séu nánast alltaf um sama hlutinn - átök manneskju gegn umhverfi sínu eđa öđrum manneskjum.

Ţannig urđu gođasögurnar til, ţar sem ađ eina leiđ manneskja var ađ vinna sér inn punkta hjá guđunum til ađ hafa einhverja stjórn á náttúruöflunum, eđa ađ minnsta kosti einhverja von.

Hómerskviđurnar voru einmitt um ofurmenni eins og Akkíles, sem er fyrirmynd Superman, og Ódysseif, sem er fyrirmynd Batman.

 

Viđ höfum fćrst frá ţví ađ segja sögur á köldum kvöldum viđ heitan varđeld, yfir í ađ horfa á tjald ţar sem sögunni er varpađ myndrćnt og lifandi á skjá, ţar sem sögumađurinn er ţađ myndrćnn ađ hann hverfur nánast algjörlega, fyrir utan kannski einstaka manneskju sem svarar í gemsann og fólk sem kann sig ekki á ađra vegu. Auk auglýsingahlés og texta, sem taka ţátt í ađ fćra upplifunina aftur til fortíđar. Einmitt ţess vegna er svo gaman ađ fara í bíó í Bandaríkjunum: enginn texti, ekkert hlé - og kvikmyndasalirnir hreinir og međ ţćgileg sćti.

Af hverju höfum viđ svona gífurlegan áhuga á ofurhetjum?

Allir, og nú alhćfi ég, virđast hafa einlćgan áhuga á ađ heyra góđa sögu vel sagđa.

Af hverju ćtli ţađ sé?

 

Myndir:

Batman:  DC Comics

Ódysseifur: The Odyssey Hotlist


mbl.is Leđurblökumađurinn geysivinsćll
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband