Rush Hour 3 (2007) **1/2
9.3.2008 | 13:19
Ţó ađ Rush Hour 3 sé illa uppbyggđ, međ órökréttri atburđarrás, og persónum sem eru á engan hátt trúverđugar, fannst mér hún bara nokkuđ skemmtileg. Ţađ er hreint kraftaverk ađ hćgt sé ađ gera sćmilega skemmtilega kvikmynd upp úr handriti sem er einskis virđi, en ţađ sem gerir Rush Hour 3 skemmtilega eru tvćr persónur leiknar af Jackie Chan og Yvan Attal.
Lee lögregluforingi (Jackie Chan) fer međ Sendiherranum Han á alţjóđlega glćpadómsráđstefnu í Los Angeles ţar sem hann ćtlar ađ uppljóstra fyrir opnum tjöldum hver er leiđtogi kínversku alţjóđamafíunnar. Áđur en honum tekst ađ ljúka rćđunni hefur hann veriđ skotinn úr launsátri og Jackie Chan stokkinn út um gluggann og farinn ađ hoppa og hlaupa eins og andskotinn sjálfur á eftir leigumorđingjanum, sem síđar kemur í ljós ađ er gamall ćskuvinur, Kenji (Hiroyuki Sanada) sem Jackie Chan vill ađ sjálfsögđu ekki skađa en umbreyta í betri manneskju.
Lögreglumađurinn agalausi og fordómafulli James Carter (Chris Tucker) heyrir tilkynningu um tilrćđiđ á kínverska sendiherranum og ţeysir af stađ til ađ hjálpa Jackie Chan. Leigumorđinginn sleppur, en ađeins ţar sem Jackie vildi ekki ţurfa ađ skjóta hann. Sem ţýđir samkvćmt mínum skilningi ađ Jackie er starfi sínu ekki vaxinn.
Í ljós kemur ađ dóttir sendiherrans, Soo Yung (Jingchu Zhang) hefur ađgang ađ upplýsingunum sem sendiherrann ćtlađi ađ uppljóstra, en Jackie og Tucker komast ađ ţví ađ kínverska mafían hefur ţegar náđ skjölunum. En ţeir eru orđnir ađ skotmarki og vilja einnig bjarga lífi Han sendiherra og dóttur hans frá byssuglöđum bófunum, og fara ţví til Parísar, ţar sem ađ fram fer innan tveggja daga innvígsla nýjustu foringja mafíunnar.
Ţađ tekur ţví varla ađ rekja söguţráđinn, sem er einfaldlega of vitlaus til ađ borgi sig ađ velta sér fyrir honum, en Max von Sydow ţráleikur mikilvćgt hlutverk í myndinni án nokkurrar áreynslu. Franski leigubílstjórinn George (Yvan Attaf) er langskemmtilegasti ţátturinn í ţessari mynd, sérstaklega ţegar hann ákveđur ađ haga sér eins og ofurnjósnari ţađ sem eftir er myndarinnar, ţá sýnir hann viđhorf sem vantar alltof oft í svipađar myndir - ćvintýrahug, hugrekki og húmor sem gaman er ađ fylgjast međ.
Jackie Chan er alltaf ađ eldast en er samt margfalt fimari en flestir yngri menn í heiminum. Hann er ekki nema svipur hjá sjón miđađ viđ hvađ hann var ţegar hann var upp á sitt besta. Jackie er 53 ára gamall, aldur sem mađur reiknar međ ađ menn standi kyrrir og í mesta lagi láti sig detta í sófa, en nei, hann er á hlaupum yfir götur, stekkur yfir bíla, forđast fljúgandi hnífa, og stekkur af Eiffelturninum á nokkuđ sannfćrandi hátt.
Jackie Chan er hreint ótrúlegur leikari - hann er sjaldan trúverđuglegur ţegar hann reynir ađ taka sig alvarlega, kann ekki ađ syngja en gerir ţađ samt, en hefur slík yfirráđ yfir líkamlegri tjáningu, ţar sem húmor, fimi og bardagalistir renna saman í eitt, ađ ţađ er sífellt yndi ađ fylgjast međ honum. Ef hćgt er ađ tala um líkamlegar gáfur, ţá er Jackie Chan fyrirmyndar fulltrúi fyrir ţann flokk greindar.
Fyrsta Rush Hour (1998) myndin var stórskemmtileg og frumleg, og ţá var Jackie Chan líka í fantaformi, enda ekki nema 43 ára, persónurnar sćmilega trúverđugar og sagan heilsteypt. Rush Hour 2 (2001) ( var lakari, en samt nokkuđ skemmtileg, og Rush Hour 3 enn lakari en önnur myndin, en samt gaman ađ henni, svo framarlega sem ađ kröfurnar eru í lćgri kantinum.
Myndir frá IGN.COM
Flokkur: Kvikmyndir | Facebook
Athugasemdir
Ţessi var horbjóđur einn beygluđ stjarna.
Ómar Ingi, 9.3.2008 kl. 16:24
Sammála ţér ađ hinar myndirnar voru fínasta skemmtun en mér leiddist ađ horfa á ţessa. Fannst hún vćgast sagt hrikaleg.
Oddur Ingi (IP-tala skráđ) 9.3.2008 kl. 20:32
Fín gagnrýni.
Annars kemur fram í ćfisögu Jacky Chan ađ hann lćrđi söng jafnframt öđru í kínverska óperuskólanum sem hann var í í 10 ár, og ţykir bara nokkuđ góđur söngvari í Hong Kong. (En ţar er náttúrlega ekki sami tónlistarsmekkur og á Vesturlöndum. ;-)
Billi bilađi, 10.3.2008 kl. 07:17
Takk fyrir skemmtilegar athugasemdir. Ég stend algjörlega viđ ţessa gagnrýni.
Hrannar Baldursson, 10.3.2008 kl. 21:41
Ţađ er nú illa sagt ađ einhver sé ekki starfi sínu vaxinn ef hann getur ekki uppfyllt skyldur sínar vegna vina- eđa fjölskyldutengsla viđ einhvern.
Ţetta kallast ađ vera vanhćfur, sem má ekki rugla saman viđ ađ vera óhćfur.
Annars fín gagnrýni á ómerkilega, en vel ásćttanlega, mynd.
Einar Jón, 12.3.2008 kl. 17:31
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.