Nýjustu færslur
- Um líkama og sál - Í tilefni áttræðisafmælis föður míns, Bald...
- Hrós til þjónustuborðs Costco
- Hætturnar sem felast í fáfræði
- Mistök og það sem við getum lært af þeim
- Heimspeki í morgunmat: að byrja hvern dag með krefjandi spurn...
- Af hverju trúum við stundum blekkingum frekar en því sanna?
- Meðan bærinn okkar brennur
- Ekki er allt gull sem glóir, en samt veljum við það
- Ofurkraftar okkar
- Hvernig veljum við hvort við verðum góðar eða slæmar manneskjur?
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Eldri færslur
2024
2023
2021
2020
2019
2018
2017
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Atonement (2007) **1/2
17.2.2008 | 11:36
Hin þrettán ára Briony Tallis (Saoirse Ronan) verður vitni að atburðum sem hún misskilur svo hrikalega að vitnisburður hennar eyðileggur fjölmörg líf. Hún heldur að Robbie Turner (James McAvoy) hafi nauðgað frænku hennar, vegna þess að hún hafði lesið bréf sem hann hafði skrifað um kynfæri systur hennar, Cecilia Tallis (Keira Knightley) og síðan komið að þeim í eldheitum ástaratlotum.
Vitnisburður Briony verður til þess að Robbie er sendur í fangelsi þar sem hann þarf að dúsa í þrjú og hálft ár, þar til seinni heimstyrjöldin hefst, en þá velur hann að fara frekar í herinn og berjast í Frakklandi við nasista heldur en að dúsa lengur bakvið rimla.
Þegar Briony (Romola Garai) hefur náð 18 ára aldri áttar hún sig á eigin misgjörðum og leitar leiða til að bæta fyrir þær. En það eru miklar hindranir á vegi hennar sem koma í veg fyrir að hún geti nokkurn tíma náð sáttum við eigin samvisku. Hvernig er nokkurn tíma hægt að bæta fyrir nokkuð sem hefur eyðilagt svo mikið?
Það er mikið lagt í umgjörð Atonement. Umhverfið er fallegt og ljóðrænt, og svo er eitt langt skot í Frakklandi sem nær yfir nokkrar mínútur, sem er gífurlega vel gert. Mér fannst Romola Garai afar góð sem hin átján ára Briony, en leikur Knightley, sem tilnefnd er til Óskarsverðlauna, þótti mér bara ósköp venjulegur, ekkert spes - ekki nóg til að fá tilnefningu.
Satt best að segja finnst mér Atonement vera frekar tilgerðarleg kvikmynd sem teygir alltof mikið lopann. Hún er greinilega framleidd með Óskarinn í huga, þar sem búningadrömu fá oft tilnefningar. Mér fannst hinn óvænti endir ekkert sérlega sniðugur, og held að úr hefði orðið betri mynd ef höfundar hefðu ekki reynt að blekkja áhorfendur með trikkum.
Ég hafði alltaf á tilfinningunni að einhver væri að kalla til mín og segja mér - sjáðu hvað þetta atriði er flott gert, sjáðu smáatriðin, sjáðu hvað mikið var lagt í sviðsmyndina fyrir hið hernumda Frakkland, sjáðu - endirinn útskýrir allt. Atonement er meðalmynd eins og Queen var í fyrra, búningadrama sem virðist ætla að ná góðum árangri á verðlaunaathöfnum, enda engin mynd jafnvel auglýst.
Mér finnst trikkið með óáreiðanlega sögumanninn ekki ganga upp, en skil samt hvað höfundarnir voru að fara.
Sýnishorn:
Flokkur: Kvikmyndir | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 777739
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- AK-72
- ThoR-E
- Agnar Freyr Helgason
- Alfreð Símonarson
- Alvy Singer
- Anna
- Anna Þóra Jónsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Berglind Steinsdóttir
- Birgitta Jónsdóttir
- Birna Dís
- Birna Guðmundsdóttir
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Sæmundsson
- Björgvin Gunnarsson
- Björn Ingi Hrafnsson
- Bleika Eldingin
- Blogblaster
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brynjar Hólm Bjarnason
- Bwahahaha...
- Börkur Gunnarsson
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Davíð
- Davíð Logi Sigurðsson
- Dofri Hermannsson
- Edda Sveinsdóttir
- Einar Indriðason
- Einar Jón
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eygló Sara
- Eymar Plédel Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fararstjórinn
- FreedomFries
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gudrún Hauksdótttir
- Gulli litli
- Gunnar Björn Björnsson
- Gunnar Björnsson
- Gunnar Freyr Rúnarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Guðbjörn Jónsson
- Guðfríður Lilja
- Guðmundur Pálsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur Sverrir Þór
- Guðmundur Óli Scheving
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Guðrún Erla Sumarliðadóttir
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Guðrún Þorleifs
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Foster Hjartarson
- Gísli Tryggvason
- Hafrún Kristjánsdóttir
- Hafsteinn Karlsson
- Halldór Sigurðsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haukur Viðar
- Heidi Strand
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hulda Haraldsdóttir
- Ingvar Þór Jóhannesson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Johnny Bravo
- Jonni
- Jóhann Björnsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Steinar Ragnarsson
- Jón V Viðarsson
- Jón Viktor Gunnarsson
- Jón Þór Bjarnason
- Jón Þór Ólafsson
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Karl Gauti Hjaltason
- Karl Tómasson
- Katan
- Ketill Sigurjónsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kolbrún Heiða Valbergsdóttir
- Kolbrún Hilmars
- Konráð Ragnarsson
- Kristján B. Jónasson
- Kristján Hreinsson
- Kristján Kristjánsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Kári Harðarson
- Leikhópurinn Lotta
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Magidapokus
- Magnús Árni Magnússon
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- María Kristjánsdóttir
- Millablog
- Neddi
- Pálmi Gunnarsson
- Pétur Kristinsson
- Ragnar Gunnarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Rannveig H
- Ransu
- Rut Sumarliðadóttir
- Róbert Björnsson
- Rúnar Már Bragason
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigríður Jónsdóttir
- Sigrún Jónsdóttir
- Sigurbjörn Friðriksson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Skafti Elíasson
- Skák.is
- Snorri Bergz
- Snuddi
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Jón Hafstein
- Steingerður Steinarsdóttir
- Þorsteinn Briem
- Steinki
- Steinn Hafliðason
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sveinn Arnarsson
- Sverrir Stormsker
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sævar Helgason
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Sólveig
- TARA
- Toshiki Toma
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Tómas Þráinsson
- Vefritid
- Vilhjálmur Árnason
- Villi Asgeirsson
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Víðir Ragnarsson
- arnar valgeirsson
- gudni.is
- kiza
- mongoqueen
- Ásgerður
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Íslendingur
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ómar Ragnarsson
- Ómar Örn Hauksson
- Óskar Arnórsson
- Óskar Þorkelsson
- Óttar Felix Hauksson
- ÖSSI
- Þarfagreinir
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Þröstur Helgason
- Þröstur Unnar
- Þóra Sigurðardóttir
- Þórarinn Eldjárn
- Þórdís Guðmundsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Helgi Þórðarson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Agný
- Ari Jósepsson
- Árni Karl Ellertsson
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarki Þór
- Davíð Pálsson
- Dominus Sanctus.
- DÓNAS
- ESB og almannahagur
- Eygló
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- G Helga Ingadottir
- Gísli Sigurðsson
- Grétar Eiríksson
- Guðni Karl Harðarson
- Hafþór Baldvinsson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Haraldsson
- Hörður Halldórsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Jónatan Gíslason
- Jón Lárusson
- Jón Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Lúðvík Lúðvíksson
- Marta B Helgadóttir
- Morgunblaðið
- Omnivore
- Róbert Badí Baldursson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Sigurður Antonsson
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Styrmir Reynisson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sævar Már Gústavsson
- Sölvi Breiðfjörð
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valur Arnarson
- Vestarr Lúðvíksson
Athugasemdir
Það er ekki hægt að "bæta fyrir" svona. Hvernig? Og hvað kemur fólkinu sem fyrir varð eiginlega við hvort stelpan hefur samviskubit eða ekki. Það breytir ekki þeim skaða sem hún gerði á hvorn vegin sem er. Annars er þetta bara skáldfskapur sem óþarfi er að hugsa nokkuð um. Ef þetta væri byggt á sönnum atburðum væri kannski einhver ástæða til að gefa því gætur.
Sigurður Þór Guðjónsson, 17.2.2008 kl. 11:59
Alveg geturðu gert mig brjálaðan stundum Hrannar
Ómar Ingi, 17.2.2008 kl. 13:36
Nú er ég mikið sammála þér. Ég varð fyrir hálfgerðum vonbrigðum með þessa mynd, því hún er einfaldlega of löng. Þetta er góð saga sem hefi mátt gera skil án þess að koma með langdregna kafla.
Andrúmsloftið minnti mig óneitanlega á meistaraverkið "English Patient" en munurinn er meðal annars sá, að í "Atonement" er enginn Ralph Fiennes...
Víðir Ragnarsson, 17.2.2008 kl. 15:14
ÉG hef einmit verið að spá mikið í þessa mynd, takk fyrir pistilinn, sé að ég get sleppt henni þangað til hún kvemur í TV. kær kveðja.
Ásdís Sigurðardóttir, 17.2.2008 kl. 20:02
Ég las bókina á sínum tíma og hún heillaði mig ekki. Mér heyrist að ekki sé myndin betri.
Steingerður Steinarsdóttir, 20.2.2008 kl. 10:15
Ég er sammála, hún er ekki að virka nógu vel þessi saga, en einnar töku atriðið á ströndinni var virkilega flott.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 23.2.2008 kl. 00:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.