36 Quai des Orfčvres (Lögreglustöđ 36) (2004) ***1/2


Stórtćkir rćningjar hafa framiđ sjö vel heppnuđ rán á tćpum tveimur árum. Lögreglustjórinn á Stöđ 36 hvetur tvo bestu menn sína til ađ ná ţessum rćningjum áđur en hann hćttir störfum. Sá sem nćr ţeim mun verđa nćsti lögreglustjóri. Ţessir tveir lögregluforingjar eru ţeir Léo Vrinks (Daniel Auteuil) og Denis Klein (Gerard Depardieu).

Vrinks er hörđ lögga sem leggur sig allan fram til ađ ná glćpamönnunum, hann er vinsćll međal starfsfélaga sinna og líklegastur til ađ verđa nćsti lögreglustjóri. Klein er hins vegar metnađarfullur og agalaus lögregluforingi sem hugsar um ţađ eitt ađ ná sem mestum frama.

Vrinks fréttir ađ uppljóstrarinn Hugo Silien (Roschdy Zem) sé tilbúinn ađ koma til hans gögnum um rćningjana, en ţegar á reynir er Vrinks svikinn á hrikalegan hátt, sem á eftir ađ hafa alvarlegar afleiđingar fyrir framtíđ hans innan lögreglunnar. En hann fćr upplýsingarnar og nýtir ţćr til ađ skipuleggja umsátur um rćningjana. Klein kemst á snođir um áćtlunina og er langt frá ţví ađ vera sáttur viđ ađ Vrinks fari fyrir árásinni, og í örvćntingu drekkur Klein sig fullan og ćđir inn í rćningjahópinn međ skammbyssu ađ vopni, en áttar sig ekki á ţví ađ hann er ađ búa til harmleik ţar sem hann leiđir marga af félögum sínum í dauđann.

Rćningjarnir sleppa og ljóst er ađ hegđun Klein verđur rannsökuđ, enda er Vrinks fokillur út í hann og vill fá hann rekinn af stöđinni. En ţá kemst Klein yfir viđkvćmar upplýsingar um Vrinks, og nýtir sér ađstćđurnar til ađ rústa starfi, máli, fjölskyldu og frama Vrinks, og jafnframt til ađ hreinsa orđspor sitt og ná starfi lögreglustjórans. Ţegar eiginkona Vrinks, Camille (Valeria Golino), reynir ađ sanna sakleysi hans fer allt í bál og brand. Ljóst er ađ Vrinks er beittur órétti og ţarf ađ jafna sakirnar.

Fyrir utan truflandi tónlist í upphafi myndarinnar, er henni vel leikstýrt. Ţađ tekst ađ magna upp spennu og samúđ međ ađalhetjunni, og andúđ gegn illmenninu. Hinir morđóđu rćningjar eru aukaatriđi. Skilin á milli glćpamanna og lögreglumanna verđa mjög óljós ţegar lögreglumenn fá ađ gera nánast hvađ sem er til ađ leysa glćpi, jafnvel fremja ţá.

Umfram allt fjallar myndin um afleiđingar ţess ađ láta tilganginn helga međaliđ, ađ allt hefur afleiđingar og ţađ illa eđa góđa sem ţú gerir mun koma í hausinn á ţér í lokin, annađ hvort sem byssukúla eđa ljúfur koss.

 

Sýnishorn:


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurđardóttir

 
 







Ásdís Sigurđardóttir, 17.1.2008 kl. 01:09

2 Smámynd: Steingerđur Steinarsdóttir

Ţessi hljómar spennandi.

Steingerđur Steinarsdóttir, 17.1.2008 kl. 10:21

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband