Beowulf (2007) ****
25.11.2007 | 12:30
Beowulf (2007) ****
Beowulf er fjórða myndin sem ég hef séð árið 2007 sem maður verður að sjá í bíó. Hinar þrjár voru Meet the Robinsons (í þrívídd), Hot Fuzz og 300. Til eru þrjár útgáfur af þessari Beowulf mynd; í venjulegri tvívídd, gerða fyrir IMAX kvikmyndahús í þrívídd, og síðan í þrívídd þar sem nota þarf þrívíddargleraugu sem fylgja miðanum. Sambíóin í Kringlunni bjóða upp á síðastnefnda kostinn og mæli ég eindregið með að hann verði notaður til að sjá þessa mynd á Íslandi, fyrst við höfum ekki neitt IMAX bíó á landinu.
Ég hef lesið ljóðið Bjólfskviðu nokkrum sinnum, og síðast í nútímaþýðingu og stafsetningu Seamus Heaney. Rétt eins og Peter Jackson tókst að grípa andrúmsloft The Lord of the Rings eftir Peter Jackson, tekst hér leikstjóranum Robert Zemeckis að ná andrúmslofti ljóðsins eins og það birtist manni í útgáfu Nóbelskáldsins Heaney. Snillingurinn Neil Gaiman sem meðal annars hefur skrifaði hinar mögnuðu Sandman bækur á framtíðina fyrir sér í Hollywood. Hans magnaða og myndræna ímyndunarafl skilar sér fullkomlega á tjaldið. Nú bíð ég spenntur eftir að aðrar sögur hans eins og American Gods og Good Omens verði gerðar að bíómyndum af hendi góðra leikstjóra.
Í meginatburðum fylgir myndin ljóðinu nokkuð nákvæmlega, þó að í smáatriðum og sambandi milli persóna hafa höfundar tekið sér skáldlegt leyfi, sem mér finnst sérlega vel heppnað. Rétt eins og ljóðinu er kvikmyndinni skipt í þrjá kafla; bardaga Beowulf við tröllið Grendel, og síðan móður hans og þar á eftir eldspúandi dreka. Tæknibrellurnar eru algjörlega óaðfinnanlegar, og í fyrsta sinn sér maður dreka í bíó sem flýgur á sannfærandi hátt og er jafn óhugnanlegur og drekar eiga að vera.
Ray Winstone stendur sig hreint frábærlega í titilhlutverkinu, en mér hefur þótt hann spennandi leikari síðan ég sá hann í hinni mögnuðu The Proposition (2005), í að mörgu leyti sambærilegu hlutverki. Tölvutækni gerir hinn fimmtuga Winstone það íþróttamannlegan í útliti að hann gefur Schwarzenegger ekkert eftir frá því hann var upp á sitt besta. Anthony Hopkins og Angelina Jolie skila sínum hlutverkum vel, en Hopkins leikur Hrothgar konung, en Jolie er móðir Grendels. John Malcowitch og Robin Wright Penn skapa einnig eftirminnilegar persónur.
Minntist ég á að Beowulf er teiknimynd? Hún er það samt ekki í hefðbundnum skilningi. Leikarar leika sín hlutverk, en síðan eru þeir og umhverfi þeirra teiknuð í tölvu til að ná fram nákvæmlega þeirri mynd sem leikstjórinn vill fá á skjáinn. Þetta er gífurlega spennandi tækni, sem hefur þróast skemmtilegasta síðustu árin. Reyndar hefur hugtakið verið til lengi. Mjallhvít (1937) var upphaflega teiknuð af Walt Disney og félögum með svipaðri hugmynd, og síðan muna sjálfsagt margir eftir Final Fantasy: The Spirits Within (2001) þar sem reynt var að ná fram raunverulegum andlitsdráttum í framandi umhverfi, og þar á eftir kom The Polar Express (2004) sem ofnotaði Tom Hanks í alltof mörgum hlutverkum.
Loksins smellur tæknin saman og úr verður þessi eftirminnilega klassík sem á í fyrsta lagi eftir að skila gífurlegum hagnaði í kvikmyndahúsum, og þar á eftir spái ég því að hún muni eiga mikinn þátt í því hvort High Definition DVD eða BlueRay DVD verði ofaná í baráttu staðlanna., Fólk mun mæla með Beowulf, þrátt fyrir töluvert ofbeldi og frekar ógeðslegt skrímsli (Grendel), enda var klappað í lok sýningarinnar sem ég var á, sem maður upplifir sjaldan á Íslandi,
Beowulf er að mínu mati mesti kvikmyndaviðburður síðan Hringadróttinssaga kom út þrjú skemmtileg jól í röð, og verður líklega ekki toppuð fyrr en Peter Jackson færir okkur The Hobbit í bíó eftir nokkur ár.
En aftur að sögunni sjálfri. Beowulf er ein af fyrstu ofurhetjum bókmenntanna, en hann berst klæða- og vopnalaus gegn ógurlegum skrýmslum, sem vekur reyndar töluverða kátínu og minnir á upphafsatriði Austin Powers: The Spy Who Shagged Me (1999), þar sem fjölskyldudjásn Beowulf eru sífellt meistaralega falin sýn áhorfenda. Beowulf er mikill víkingur sem kemur frá Geatlandi til Danmerkur þar sem hann hefur heyrt sögur af skrímslinu Grendel. Hann ætlar að vinna sér inn frægð og frama fyrir að drepa skrímslið. Þegar það tekst er sagan þó ekki búin. Beowulf þarf að borga dýrt gjald fyrir eigin hégóma og mannlegan breyskleika, sem blæs sál í þessar teiknuðu persónur. Þegar hann biður konu sína að minnast sín sem manneskju með veikleika en ekki óstöðvandi hetju, komumst við í snertingu við kjarna málsins, hvað virðing og heiður snýst í raun um.
Texti úr þýðingu Seamus Heaney á Bjólfskviðu, þar sem lýst er heiðri víkingsins á snilldarlegan hátt.
It is always better
To avenge dear ones than to indulge in mourning.
For every one of us, living in this world
Means waiting for our end. Let whoever can
Win glory before death. When a warrior is gone,
That will be his best and only bulwark.
[13849]
Þessa mynd verðurðu að sjá í bíó!
Hvorki kvikmyndin né sýnishornið hér á eftir er ætlað börnum eða viðkvæmum:
Flokkur: Kvikmyndir | Facebook
Athugasemdir
þetta er greinilega hin mesta upplifun og maður heyrir bara gott af myndinni. það verður upplifun að sjá þrívíddarbíó í fyrsta sinn í langan, langan tíma. væri nú agalega gott að gleyma aðeins jólahorrornum yfir ævintýradrama í þrívídd eitthvert kvöldið.
hlakka til.
arnar valgeirsson, 25.11.2007 kl. 21:19
...ætla bókað á þessa.
Páll Geir Bjarnason, 26.11.2007 kl. 00:17
100% sammála þér , þessa verða allir kvikmyndáhugamenn að sjá í 3D Digital .
Ómar Ingi, 26.11.2007 kl. 20:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.