The Adventures of Tintin (2011) ****
31.10.2011 | 19:59
"The Adventures of Tintin" er besta ćvintýramynd úr smiđju Steven Spielberg síđan "Raiders of the Lost Ark". Mér finnst "Tintin" betri en hinar ţrjár Indiana Jones myndirnar, "E.T.", "Jurassic Park" (báđar), "Minority Report" og "War of the Worlds", ţó ađ hún komist ekki í sama klassa og "Munich", "Color Purple" og "Schindler's List". Spielberg hefur veriđ frekar slappur síđasta áratuginn og kominn tími til ađ hann sýni aftur klćrnar.
Flestir Íslendingar hafa kíkt í Tinnabćkurnar. Ţeir sem féllu fyrir ţeim munu falla fyrir ţessari mynd, enda nćr hún persónunum einstaklega vel, sérstaklega Tinna, Kolbeini Kafteini og ţeim Skafta og Skapta.
Ef "Tintin" hefđi ekki veriđ jafn tćknilega fullkomin og hún er, hefđi hún samt veriđ stórskemmtileg kvimynd. Sagan er góđ samansuđa úr nokkrum Tinnabókum, og játa ég mig sigrađan ađ geta ekki nefnt vísanir úr öllum ţeim bókum sem vísađ var í međ einum eđa öđrum hćtti.
Persónurnar og umhverfiđ er í fullkomnu listrćnu samrćmi viđ Tinnabćkurnar, bara ađeins fágađra. Og ţá er mikiđ sagt. Hergé hafđi ţróađ persónuna og söguumhverfiđ međ sífellt betri teikningum gegnum árin og einhvern veginn virkar ţessi kvikmynd eins og rökrétt skref fram á viđ.
Ég fór á "Tintin" međ tveimur börnum mínum og konu. Konan mín sagđi ađ andlit mitt ljómađi af gleđi međan myndin var í gangi. Ţrjú okkar gáfu "Tintin" 10 í einkunn, en sonurinn gaf henni 9. Góđ međaleinkunn!
Ţrívíddin er vel gerđ. Gleraugun sem viđ fengum voru ţćgileg gúmmígleraugu og engar truflanir í ţrívíddinni. Ţađ var óvenju ţćgilegt ađ horfa á hana, og síđan var henni líka beitt skemmtilega til ađ leysa eina af ráđgátum sögunnar.
Sagan fjallar um fyrstu kynni Tinna og Kolbeins, og ţessi fyrstu kynni eru vafin í skemmtilega ráđgátu um skip sem fórst fyrir hundruđum ára og tengist gleymdri fjölskyldusögu Kolbeins kafteins. Tinni getur ekki annađ en rannsakađ ráđgátuna, látiđ rota sig, og sífellt hársbreidd frá byssukúlum harđsnúna ţrjóta. Vinátta ţeirra Kolbeins er vel útfćrđ, og ljóst ađ ţeir ţurfa hver á hinum ađ halda, Tinni vegna ţess ađ annars vćri líf hans frekar dauft og leiđinlegt, en Kolbeinn til ađ leysa öll ţau vandamál sem hann ţarf stöđugt ađ takast á viđ; en hann hefur átt í stríđi viđ áfengisvanda, lent í slćmum félagsskap og tapađ sjálfum sér algjörlega, áđur en hann hittir ţessa ungu hetju.
Ţeir eiga eitt sérstaklega gott atriđi saman ţar sem Tinni aldrei ţessu vant efast um eigiđ ágćti, og Kolbeinn flytur í ţví tilefni ţrumurćđu sem hittir beint í mark.
Myndin er vel leikin, sérstaklega af Jamie Bell í hlutverki Tinna, Andy Serkis sem Kolbeinn, og af ţeim öflugu grínfélögum Simon Pegg og Nick Frost sem tvíburalöggurnar seinheppnu. Ekki má gleyma Tobba, en hann á margar góđar senur.
Ţađ er ekki hćgt ađ segja annađ en ađ "Tintin" sé unnin af sönnu draumaliđi. Bara ţađ ađ Edgar Wrigth kemur ađ handritsgerđinni er mikill gćđastimpill, en hann er ađal mađurinn á bakviđ snilldarmyndirnar "Shawn of the Dead" og "Hot Fudge", og ekki má gleyma framleiđandanum, sjálfum leikstjóra "Lord of the Rings", Peter Jackson. Ţetta er einvalaliđ.
Ţegar myndinni lauk ţótti mér ţađ frekar leitt, ţví mig langađi ađ fylgjast međ fleiri ćvintýrum Tinna. Ţađ verđur spennandi ađ bíđa eftir nćstu verkum Peter Jackson, ţví hann mun leikstýra nćstu Tinnamynd, en í millitíđinni taka ađ sér leikstjórn einnar skemmtilegustu skáldsögu allra tíma: "The Hobbit". Ţađ er til einhvers ađ hlakka í náinni kvikmyndaframtíđ.
Myndir: Rotten Tomatoes
Flokkur: Kvikmyndir | Breytt 16.12.2014 kl. 18:33 | Facebook
Athugasemdir
Mig langar ađ sjá Tinna en ég ţoli bara ekki ţrívíddar myndir. Mér finnst ákaflega leiđinlegt ađ horfa á ţćr. Ég fór t.d. á Grćna fólkiđ hans Cameron held ég, ţótti gaman í byrjun myndar en mikiđ afskaplega varđ ţetta ţreytandi ţegar líđa fór á myndina.
Rafn Haraldur Sigurđsson (IP-tala skráđ) 31.10.2011 kl. 20:22
Nú erum viđ SAMmála DON , Frábćr skemmtun og HRIKALEGA vel gerđ Kvikmynd.
Ómar Ingi, 31.10.2011 kl. 22:49
Tinni, must see mynd alveg; Eiga líka á blu-ray og alles :)
DoctorE (IP-tala skráđ) 1.11.2011 kl. 12:47
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.