Bloggað frá Bandaríkjunum # 6 - siðferði, verðlag og skattar
24.6.2007 | 23:30
í gær átti ég afmæli. Eins og oftast síðustu 14 árin dvaldi ég einn á hóteli þennan merkisdag í mínu lífi, í limbói milli Bandaríkjanna og Íslands.
Ég notaði daginn til að kíkja í kringum mig. Keyrði út um allt og komst að því að næstum hver einasti smábær í Minnesota er nákvæm eftirlíking af þeim síðasta. Sömu vörumerki út um allt, samskonar gatnakerfi, og fullt af vingjarnlegu fólki. Ég hitti ekki einn einasta einstakling sem ekki var vingjarnlegur og kurteis. Ég hef ekki heyrt neinn nöldra í tvær vikur. Hvílíkur lúxus!
Ég kíkti í nokkrar verslanir og velti fyrir mér muninum á verðlaginu í Bandaríkjunum og heima á Íslandi. Málið er að til er hugtak sem kallast götuverð á munum. Til dæmis gæti götuverð á geisladisk verið 30 dollarar, en útsöluverð verið 9, og þá oft með afslætti sem bætist ofan á, þar sem oft er hægt að finna afsláttarmiða í verslanir eins og, ef maður verslar fyrir 25 dollara, þá fær maður 10 dollara afslátt. Reyndar má taka fram að söluskatti er yfirleitt bætt á útsöluverð við kassa, og er hann yfirleitt um 6%.
Nú velti ég fyrir mér hvernig þessu er varið á Íslandi. Fara verslunareigendur nokkurn tíma undir götuverð í sölu á vörum? Er ekki alltaf einhver 100-300% álagning á öllu mögulegu heima? Er virkilega hægt að útskýra alla þessa álagningu með kostnaði á innflutningi (um kr. 200.000 gámur) + 10% tollur + 24,5% virðisaukaskattur. Þegar ég velti þessu fyrir mér lítur út fyrir að þetta gangi upp. En af hverju þarf að rukka toll af öllum vörum? Af hverju þarf að borga 24,5% virðisaukaskatt af vörum sem keyptar eru erlendis? Eru þetta óeðlilegir skattar sem lagðir eru á landan? Ef svo er, hver er tilgangurinn?
Er ekki ljóst að ef skattar eru lægri eykst flæði og þarmeð hagnaður og innstreymi? Er hér um einhverja sparnaðarstefnu að ræða sem á ekki heima í efnishyggjuóðu Íslandi dagsins í dag?
Þegar skattur á fyrirtæki var lækkaður í 10% jókst innkoma í ríkiskassann margfalt. Ef aðrir skattar væru lækkaðir á sama hátt, gæti ég vel trúað að innkoma aukist enn frekar, þar sem að þegar skattar eru ekki of háir, eru þegnar líklegri til að vera sáttir við þá. Er hægt að skera í burtu öll þessi aukagjöld sem eru ekkert annað en leyfar af menningu sem er algjörlega úrelt á Íslandi, stimpilgjöld, tollar og háir skattar meðal þeirra?
Hvernig viljum við hafa Ísland í dag? Í fylgni við nýja strauma, eða hökta í sama gamla farinu?
Ég hef fulla trú á að ríkisstjórnin í dag sé nýtískuleg og leiti leiða til að skera burtu óþarfa skatta; en spurning hvort að þeir hafi á hreinu hvar best er að skera næst. Fjármagnstekjuskatturinn var númer 1, virðisaukaskattur á matvælum og lækkur á tekjuskatti númer 2 og 3 (hefði verið hægt að gera betur samt); en hvað kemur næst?
Ég skil vel að fara þurfi hægt og varlega í þessa hluti en vona að sniglast verði áfram á sömu leið og stefnan virtist liggja fyrir kosningar. Það mætti reyndar líka ýta aðeins á eftir sniglinum. Öryggisverðir á flugvellinum í Minneapolis stóðu sérstaklega fagmannlega að verki. Þetta hefur verið ein af mínum ánægilegri ferðum til Bandaríkjanna, og hef ég nú heimsótt landið yfir 20 sinnum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)