Eiđur Smári og Liverpool sigruđu!

Ţessi leikur hefđi ekki getađ endađ betur. Okkar mađur fćr tćkifćri og nýtir ţađ vel, og vinnur leikinn fyrir Barcelona, en ţađ dugar ekki til ađ stoppa mína menn frá ţví ađ komast í 8 liđa úrslitin, á frekar mögru ári fyrir Liverpool.

Vonandi verđa ţjálfarar Barca gagnrýndir eitthvađ fyrir ađ nota Eiđ Smára alltof lítiđ, ţví ađ sjálfsögđu er hann bestur!

Gaman ađ ţessu! 


mbl.is Sigurmark Eiđs Smára ekki nóg fyrir Barcelona
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Johnny Dangerously (1984) ***

JohnnyDangerously02_000Michael Keaton skaust upp á stjörnuhimininn međ ţessari kvikmynd. Hann leikur Johnny Dangerously, glćpamann í New York sem er gífurlega drjúgur međ sig. Ef ţú hefur gaman af svona karakter og litríkum aukapersónum, ţá muntu hafa mjög gaman af ţessari mynd. Aftur á móti hef ég heyrt ađ auđvelt sé ađ láta ofsagleđina sem birtist í nánast hverju einasta atriđi fara í taugarnar á sér. Ţannig er Johnny Dangerously eins og gott áramótaskaup. Annađ hvort finnst ţér ţađ frábćrt eđa ţolir ţađ ekki.

Johnny er dreginn út á glćpabrautina til ađ eiga fyrir ađgerđum sem móđir hans ţarf ađ fara í. Einnig er hann í glćpum til ađ fjármagna lögfrćđinám bróđur síns, en hann reiknar ekki međ ađ bróđir hans snúist gegn honum ţegar laganámi lýkur.

Fyrst ţegar ég sá Johnny Dangerously sem unglingur ţótti mér hún frábćr. Í dag finnst mér hún  ennţá góđ. Ţađ sem mér fannst óbćrilega fyndiđ sem unglingur kom sérstaklega frá tveimur persónum, Roman Moroni (Richard Dimitri), snarklikkuđum bófa sem er í eilífu stríđi viđ gengiđ sem Johnny hefur gengiđ í og Danny Vermin (Joe Piscopo) illmenni sem nýtur ţess ađ láta ađra ţjást og gerst hefur međlimur í gengi Johnny, og ţráir ekkert heitar en ađ steypa Johnny af stalli.

JohnnyDangerously04_000Sagan hefst á ţriđja áratug tuttugustu aldar og gerir sitt besta til ađ ýkja sakleysi tíđarandans. Ofbeldisfullum árásum er tekiđ létt og ađ mestu látiđ eins og byssukúlur og sprengjur geti ekki drepiđ fólk, rétt eins og í teiknimyndasögum. Persónurnar gćtu reyndar veriđ dregnar upp úr sögum eins og um Tinna, Sval og Val, eđa Lukku Láka; svo ýktar eru ţćr.

Af öđrum aukaleikurum sem gefa myndinni skemmtilegan blć eru Peter Boyle sem mafíuforinginn Jocko Dundee, en hann tekur Johnny í vinnu fyrir glćpagengiđ frá barnsaldri. Griffin Dunne er góđur sem Tommy Kelly, bróđir Johnny og metnađarfullur starfsmađur saksóknara, sem allir bófar vilja drepa, nema Johnny ađ sjálfsögđu, og Danny DeVito sem gjörspillti saksóknarinn Burr. Dom DeLuise er einnig skondinn í smáhlutverki sem páfinn.

Ţađ er ekkert tekiđ alvarlega í ţessari mynd, nema ţá kannski mikilvćgi fjölskyldunnar, og má segja ađ bođskapur myndarinnar sé sá ađ ekkert skuli vera fjölskylduböndum yfirsterkara, og ţá alls ekki atvinna, réttlćti eđa glćpir, né mafíufjölskyldan. 

Stórskemmtileg grínmynd sem enginn húmoristi ćtti ađ láta fram hjá sér fara.

 Smelltu hér til ađ lesa gagnrýni um fleiri kvikmyndir. 


Bloggfćrslur 6. mars 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband