Er Evróvisjónlagið í ár svanasöngur íslensku þjóðarsálarinnar?
13.5.2009 | 09:13
11 ára dóttir mín hefur verið dugleg að mæla með íslenska Evróvisjónlaginu hérna í Noregi, og segir öllum sem vilja heyra að þetta sé ekkert venjulegt lag, að það sé eins og Ísland sjálft sé að syngja og gera upp við fortíð sem var meiri blekking en veruleiki.
Sjálfum er mér nokkuð sama í hvaða sæti lagið lendir. Ég læt það duga að mér finnst lagið fallegt og að börnin mín séu hrifin af því. Ekkert sæti eða stig getur breytt því.
Mér finnst túlkun dóttur minnar áhugaverð, enda hefur hún upplifað íslensku kreppuna á frekar dramatískan hátt, séð föður sinn missa vinnuna, og upplifað þá erfiðu ákvörðun foreldra sinna að flytja frá Íslandi. Hún hefur byrjað í nýjum skóla þar sem framandi tungumál er talað, og stendur allt í einu frammi fyrir gjörbreyttum heimi.
Ég læt texta lagsins og lagið sjálft fylgja með svo að þú getir dæmt um hvort að túlkun dóttur minnar gangi upp eða ekki. Til þess að gera þetta almennilega langar mig að þýða textann yfir á íslensku, og biðst fyrirfram afsökunar reynist hann klaufalegur, en þýðingar á söngtextum er ekki ein af mínum sterku hliðum.
Ég ímynda mér að sögumaður sé hinn almenni Íslendingur sem hefur upplifað sig svikinn eins og í ástum af stjórnmálamönnum, fjárglæframönnum og útrásarvíkingum sem tókst að blekkja alþjóð með því nánast að múta þjóðinni allri með þeirri sögu sem flestir Íslendingar vildu trúa; að engin þjóð væri betri, klárari, fallegri, hamingjusamari eða ríkari en sú íslenska. Það er hægt að deila um hvort að með Hruninu hafi Íslendingar þegar glatað sjálfstæði sínu. Ef svo er, gæti þetta lag verið réttnefnt sem svanasöngur íslensku þjóðarsálarinnar.
Is It True? | Er það satt? |
You say you really know me Falling out of a perfect dream Is it true? If you really knew me Falling out of a perfect dream Is it true? Is it true? Is it real? Did I dream it? Ooh is it true | Þú segist hug minn skilja Að vakna eftir fagran draum Er það satt? Ef þú skildir hug minn Að vakna eftir fagran draum Er það satt? Er það satt? Er það satt? Var það draumur? Ó... er það satt? |
Jóhanna verður 7. í röðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nákvæmlega það sama og mér fannst þegar ég heyrði lagið í fyrsta sinn. Kreppusöngurinn okkar!!!! BTW, þýðingin þín er þrusu góð :-)
Gangi ykkur vel í Noregi.
ASE (IP-tala skráð) 13.5.2009 kl. 09:36
Það segja alla Evróvision viftur hérna að Noregur vinni !!.
Ómar Ingi, 13.5.2009 kl. 10:43
Lucky 7 baby...LUCKY SEVEN!!
Annars er thad rétt sem thú segir....thad er sama hvar lagid endar hvad stigagjöf vardar. Thetta er gott lag og mög vel sungid.
Ég át upp allan mygluostinn....ég gat bara ekki stödvad mitt át. (IP-tala skráð) 13.5.2009 kl. 12:02
Snilld hjá þér, heyrði einmitt þessa túlkun í gær, að þjóðin væri að syngja þetta í tilefni horfins góðæris. Heia Norge.
Ásdís Sigurðardóttir, 13.5.2009 kl. 16:24
Hef upplifað þetta fallega, vel sungna lag sem afsökunarbeiðni Íslendinga til umheimsins.
Margrét Sigurðardóttir, 13.5.2009 kl. 18:58
Þetta virðist nú bara vera ástarvellutexti og hafa ekkert með kreppu að gera.
Sigurður Þór Guðjónsson, 13.5.2009 kl. 21:37
Ég tel textan ekki hafa með kreppu að gera
Hilmar Gunnlaugsson, 13.5.2009 kl. 21:44
Sjálfssagt hafði þetta blessaða lag ekkert átt að hafa með kreppu að gera, en textinn minnir samt óneitanlega á afneitun Íslendinga - Is it true, is it over? Fékk þessa tilfinningu líka þegar ég heyrði lagið. Gangi ykkur vel í Norge.
Linda (IP-tala skráð) 14.5.2009 kl. 08:11
Segi ekki annad en ad stelpan er einstaklega skýrt og hugsandi barn! Gaman ad fá textann á íslensku hjá thér. Heylsur í bæinn til "næturdrottningarinnar" gangi ykkur allt í haginn -hvar sem er í heiminum! Muna svo ad kjósa á laugardaginn!
Birna Guðmundsdóttir, 14.5.2009 kl. 09:39
kreppa í ástarlífinu
Brjánn Guðjónsson, 14.5.2009 kl. 14:08
Varstu nokkuð að fá þér norskt hóstasaft þegar þú vippaðir þessu yfir?
Hafliði Ingason (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 22:56
Takk fyrir athugasemdirnar.
Áfram Ísland!
Hrannar Baldursson, 16.5.2009 kl. 00:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.