Gran Torino (2008) ***1/2
14.3.2009 | 16:21
Ímyndaðu þér nafnlausa kúrekann í spaghettívestrum Sergio Leone, Will Munny úr Unforgiven og allar hinar hetjurnar sem Clint Eastwood hefur túlkað í vestrum, blandaðu þeim saman við Dirty Harry Callahan, hrærðu vel saman þannig að út komi ein persóna sem lifir í nútímanum á áttræðisaldri, en með öll gömlu persónueinkennin og útkoman verður Walt Kowalski í Gran Torino.
Gran Torino er sérlega vel heppnaður nútímavestri um gamlan og fordómafullan kúreka sem í stað þess að ríða um á hestum, notar mest ruggustól, pallbíl og Gran Torino glæsibifreið. Hann þarf ekki að leita upp vandamálin, því að þau koma til hans með breyttu samfélagi. Í gömlu vestrunum riðu hetjur um héruð og björguðu fólki sem lentu í vanda vegna glæpaklíka eða stórkaupmanna. Í nútímanum þarftu ekki að fara út fyrir eigin lóð til að takast á við spillingu í samfélaginu og glæpaklíkur.
Walt Kowalski (Clint Eastwood) hefur misst eiginkonu sína og sér fram á rólega ellidaga á veröndinni með bjór í hendi. Samfélagið hefur breyst. Gömlu nágrannarnir hafa fallið frá og nýir komnir í staðinn, af Hmong ættum - sem er ættbálkur frá Suður Kína.
Þegar glæpaklíka reynir að fá nágranna Kowalski, hinn hógværa Thao (Bee Vang) til að ganga í gengið og plata hann til að stela Gran Torino bifreið Kowalskis, fer aðeins að hitna í kolunum. Kowalski tekst að koma í veg fyrir ránið en kynnist þess í stað Thao, og ákveður að kenna honum að meta það sem er einhvers virði í lífinu.
Að sjálfsögðu flokkar Cowalski Hmung fólkið sem asíubúa og tengir það við alla þá fordóma sem söfnuðust saman við þátttöku hans í Kóreustríðinu. Þegar hann uppgötvar að nágrannarnir eru ágætis fólk, verður hann jafnt sem nágrannar hans frekar undrandi.
Kowalski upplifir sín eigin börn og barnabörn sem afskræmingu þeirra gilda sem hann hefur barist fyrir alla sína ævi, og það kemur honum á óvart að hann finnur meira af þessum gildum hjá nágrönnum sínum en eigin fjölskyldu.
Þegar nágrannarnir og Sue Vang Lor (Ahney Her), systir Thao, stúlka sem Kowalski kann sérlega vel við, verða fyrir fólskulegri stórskota- og líkamsárás gengisins, ákveður hann að taka til eigin ráða, finnur gömlu skammbyssurnar og tekur til við að hreinsa þær.
Gran Torino er meistaralega upp byggð og vel sögð saga. Frásagnarstíllinn er ekki skreyttur með miklum tæknibrellum eða skrautlegum klippingum, heldur er undirstaðan í traustu handriti, góðri leikstjórn og rafmögnuðum leik Clint Eastwood í hugsanlega síðasta hlutverki ferilsins. Ef sú verður raunin, get ég ekki hugsað mér betri útgöngu en Gran Torino.Flokkur: Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 16:23 | Facebook
Athugasemdir
Hann hefur ekki ákveðið ennþá hvort að þetta er hans síðasta hlutverk en gæti meira en vel verið enda Leikstjórinn hans aðall i dag ásamt músikinni sinni.
En GRAN TORINO er kvikmynd sem allir ættu að sjá enda án efa með þeim betri sem er í sýningum í dag.
Don svo er það Watchmen mig hlakkar til að vita hvað þér finnst ...
Ómar Ingi, 14.3.2009 kl. 16:41
Sammála þér með þessa mynd Hrannar. Ein af betri myndum Eastwood að mínu mati og aðdáendur Dirty Harry hljóta að hafa gaman af þessum karakter.
Hér í Minnesota er mikið af Hmong fólki frá Víetnam og það hefur reynst þrautin þyngri fyrir það að aðlagast samfélaginu og því miður þarf það að þola mikla fordóma. Þessi mynd hjálpar vonandi til með að auka skilning fólks á sérstöðu þessa hóps.
Róbert Björnsson, 14.3.2009 kl. 21:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.