Milk (2008) **1/2
20.2.2009 | 16:58
Milk er því miður meiri formúlumynd en það frumlega stórvirki sem hefur verið talað upp síðustu vikurnar fyrir Óskarsverðlaunahátíðina. Mikið hefur verið rætt um snilld Sean Penn, en fyrir þá sem hafa séð I Am Sam (2001) þar sem hann leikur hinn þroskahefta Sam í baráttu um forræði yfir dóttur sinni, og All The King's Men (2006) þar sem hann leikur pólitíkusinn Willie Stark, þá erum við í raun ekki að sjá neitt nýtt, heldur í raun blöndu af þessum tveimur hlutverkum, þar sem að Harvey hefur hægan málróm Sam og pólitíska útgeislun Willie Stark.
Samkynhneigðir í Milk hafa flestir frekar hægan talandi og annarlegt látbragð, sem er einfaldlega klisjukennd staðalímynd af samkynhneigðu fólki. Ég á bágt með að trúa því að kynhneigð fólks spili svona stóra rullu í látbragði þess. En kannski hef ég rangt fyrir mér.
Harvey Milk (Sean Penn) hefur verið lokaður í skáp eigin kynhneigðar áratugum saman og ákveður loks að sprengja sig út úr skápnum með því að berjast fyrir því að rödd samkynhneigðra fái að heyrast í bandarísku samfélagi. Hann velur að flytja til San Francisco ásamt elskhuga sínum Scott Smith (James Franco) þar sem að umburðarlyndi gagnvart samkynhneigðum á að vera meira en annars staðar, en þó ekki nógu mikið til að þessi ákveðni hópur fólks geti gengið óáreitt um götur borgarinnar.
Sagt er frá hvernig Harvey Milk með mikilli þrautseigju og persónulegum fórnum fær fyrstu kosningu í sögu Bandaríkjanna sem samkynhneigður einstaklingur, og þau djúpstæðu áhrif sem hann hefur á samfélagið í kringum sig, og þá einkum á hans helsta samstarfsfélaga Dan White (Josh Brolin) sem Milk telur vera einn af þeim, mann með bældar kynhneigðir.
Það má segja að Milk sé blanda af þemum sem birst hafa áður í myndum eins og American Beauty, Brokeback Mountain og Malcolm X. Allar þessar myndir eiga það sameiginlegt að þær fjalla á opinskáan hátt um viðkvæm baráttumál minnihlutahópa.
Málið er að Milk er miklu meira mynd um málefni heldur en snilldar kvikmyndagerð, það er einfaldlega vitað að viðurkenning á samkynhneigð er eitt af vinsælustu baráttumálunum í Hollywood þessa dagana og það er einkum þess vegna sem myndin nýtur svo mikils umtals og slíkrar athygli.
Ég verð að játa, að þó að mér hafi ekki þótt The Dark Knight besta mynd allra tíma, þá finnst mér hún eiga meira erindi á Óskarsverðlaunahátíð en Milk. En svona er sýndarheimur Hollywood. Þetta snýst um vinsældir og pólitík, rétt eins og Eurovision.
Milk er þrátt fyrir lengd sína ekki beinlínis leiðinleg eða langdregin. Mér fannst hún bara ekkert spes. Ævisögur og ádeiluefni hafa hins vegar alltaf þótt efnilegt verðlaunafóður. Spurning hvort að svo verði á ár.
Flokkur: Kvikmyndir | Facebook
Athugasemdir
Þú heldur áfram að leggja Dark Knight í einelti
Ómar Ingi, 20.2.2009 kl. 17:15
Ómar. Það eina sem ég viðurkenni er að mér finnst The Dark Knight mun betri mynd en Milk.
Hrannar Baldursson, 20.2.2009 kl. 20:16
penn er bæði stórkostlegur leikari sem og leikstjóri. þessi er ekki á forgangslistanum en langar samt að sjá. en það er gott að þú segir þína skoðun enda eru óskarsnómineringar ekkert að segja manni mikið yfirleitt. ef það er nógu andskoti amrískt þá dugir það oftast.
arnar valgeirsson, 20.2.2009 kl. 22:43
Maðurinn á þriðju myndinni með pistlinum er bara nákvæm eftirlíking af Jóni B. Hannibalssyni fyrir svo sem þrjátíu og fimm árum!
Flosi Kristjánsson, 21.2.2009 kl. 10:09
Sá Watchmen á fösstudagsmorgunin á prufusýningu uppí Sam
Vá ef þú fýlar hana ekki þá förum við með þig til læknis strax
Hefði smurt 1/2 stjörnu meira á MILK ekki bara fyrir frábæran leik Penn og Brolins heldur fyrir góða sögu sem þarft er að minna fólk á að minnihlutahópar þurfa að berjast fyrir sínu.
Hilmar orðar það vel þegar hann segir "Fannst hún bara mjög heiðarleg".
Ómar Ingi, 21.2.2009 kl. 12:45
Málið er að ef þú skoðar aðeins söguna á bakvið Milk, kemur í ljós að hún er ekki alveg jafn heiðarleg og hún þykist vera. Morðingi Milk virðist hafa framkvæmt verknaðinn af persónulegum ástæðum tengdum uppsögn hans í starfi, frekar en vegna kynhneigðar, eins og gefið er í skyn.
Hrannar Baldursson, 21.2.2009 kl. 13:38
Já, svei þessari Hollywood elítu...ekkert nema hommar og júðar alltaf að reyna að breyta sögunni og heimta svo verðlaun fyrir það!
Auðvitað var Dan White bara viti sínu fjær vegna ofneyslu sykurs eftir að hafa borðað of margar Twinkies! Þess vegna komst kviðdómur jafningja hans að þeirri ágætu niðurstöðu að 5 ára fangelsi fyrir tvöfallt manndráp væri viðeigandi. Voða íslenskt eitthvað!
Róbert Björnsson, 21.2.2009 kl. 20:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.