Hvernig útskýrum við kaup Ríkisstjórnar Íslands á Glitni fyrir 84 milljarða króna?

 

 

 

COPY / PASTE

 

 

 

 

 

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem íslensk stjórnvöld afrita hugmyndir eða gleypa hrátt það sem kemur frá George W. Bush og riddurum hans. 

Ég hefði frekar viljað sjá íslenskar fjölskyldur í forgangi sem hafa reynt að eignast þak yfir höfuðið, heldur en þá sem hafa verið að eyða um efni fram með óskynsamlegum fjárfestingum og smásukki. 

Til hamingju Ísland!

 

Heimildir:

Reuters: Bailout vote awaited

CNN: Bush Confident 'bold' bailout will pass

MBL: Sammála um aðgerðir

 

Myndir:

Wikipedia


mbl.is Ríkið eignast 75% í Glitni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Arrgggggggg. Á ekki orð.

Rut Sumarliðadóttir, 29.9.2008 kl. 12:16

2 Smámynd: Villi Asgeirsson

Er það eitthvað nýtt að DO geri eins og W gerir eða segir? Bandaríkin eru sennilega gjaldþrota. Ísland líka.

Til Hamingju Ísland!

Ég myndi segja að það væri kominn tím til að skipta út fólki, en ég sé ekki mikið val...

Bið að heilsa systu!

Villi Asgeirsson, 29.9.2008 kl. 12:18

3 identicon

Ekki gleyma hvað Bjarni Ármanns sogaði út úr fyrirtækinu.

jonas (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 12:49

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það er þó rétt hjá þér Hrannar að betra hefði verið að sjá skuldsettar íslenskar fjöskyldur í forgangi í opinberum björgunaragerðum, en sennilega verður einhver bið á því.

Magnús Sigurðsson, 29.9.2008 kl. 12:50

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sammála

Sigrún Jónsdóttir, 29.9.2008 kl. 13:13

6 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Mér sýnist sem sleggja hafi verið notuð þar sem hamar hefði dugað.

Marinó G. Njálsson, 29.9.2008 kl. 13:59

7 Smámynd: Jón Þór Ólafsson

Hræðsluraddirnar segja að ef ríkissjóður fleyti ekki bönkunum munu þeir stranda og brotna í fjörunni sem komi sér illa fyrir okkur öll og það er auðvelt að féfletta hrædda þjóð.

Rót vandans eru seðlabankar sem geta prentað peninga úr engu og flæða markaðinn með ódýru lánsfé.

Húsnæðisbólan með sitt óhjákvæmilega hrun hefði aldrei orðið meira en húsnæðis uppsveifla ef viðskiptabankarnir hefðu ekki haft aðgang að ódýru lánsfé að utan til að lána grunlausum landanum. Lánsfé í heiminum hefur verið ódýrt síðustu ár því seðlabanki bandaríkjanna (Federal Reserve) hélt stýrivöxtum langt undir raunvirði og prentaði alla þá peninga sem bankarnir gátu lánað með tilheyrandi verðbólgu og óhjákvæmilegu efnahagshruni.

Austurríska hagfræðin spáði fyrir um að efnahagsbólur og efnahagshrun væru óhjákvæmilegar afleiðingar "seðlabankakerfis sem prentar peninga úr engu". Þessir spádómar rættust fyrst eftir áratug af peninga prentun og ódýrum lánum sem leiddi til efnahagshrunsins 1929 og heims kreppunnar sem fylgdi í kjölfarið. Þessir spádómar eru enn að rætast í dag og munu halda áfram að rætast meðan seðlabankar geta prentað peninga úr engu.

Hér er ókeypis hljóðútgáfa á mannamáli hvers vegna við gátum tekið ódýr lán sem núna eru dýrt, hvers vegna krónan hrundi, hvers vegna hver Íslendingur var að tapa 280.000 krónum og hvernig hægt er að breyta kerfinu til að koma í veg fyrir bólur og kreppur í framtíðinni:

9: Inflation and the Business Cycle  (Verðbólga og Hagsveiflan)
 

Jón Þór Ólafsson, 29.9.2008 kl. 15:27

8 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Gleymum því aldrei hvað þessir menn voru nálægt því að eignast orkuauðlindir okkar, þeir ætluðu aldeilis að braska með þær og græða sbr. þetta.

Fl Group/Stoðir er hluthafi í Atorku. Atorka er hluthafi í Geysir Green Energy sem á  32% í Hitaveitu Suðurnesja. Árni Sigfússon, bæjarstjóri vill að GGE eignist meira í HS sbr. þetta.

VARÚÐ!

Lára Hanna Einarsdóttir, 29.9.2008 kl. 15:54

9 Smámynd: Ómar Ingi

Dabbi Kóngur

Sagði skák og svo mát

Ómar Ingi, 29.9.2008 kl. 19:08

10 Smámynd: Hrannar Baldursson

Til að bæta við þetta útspil, er áhugavert að sjá hvernig Bandaríkjaþing hafnaði tillögu Bush og í framhaldinu hvernig hlutabréfamarkaðir á Wall Street eru að hrynja. Er hin kapitalíska spilaborg að hrynja í fyrsta sinn síðan 1929, sem eftir það var bjargað með heimstyrjöld, bjartsýni í kvikmyndum og óvini í kommúnismanum.

Hrannar Baldursson, 29.9.2008 kl. 20:25

11 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Er ekki komið að því að öreigar allra landa sameinist og hætti að borga af lánunum sínum?

Magnús Sigurðsson, 29.9.2008 kl. 20:33

12 identicon

Sæll Hrannar.  Er yfirleitt sammála þér en nú ætla ég að vera ósammála.  Þetta var það eina rétta í stöðunni og allar aðrar leiðir hefðu leitt til hörmunga.  Þannig ég segi til hamingju Ísland að þessi leið var valin.

Svenni (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 20:52

13 Smámynd: Hrannar Baldursson

Svenni: ég virði það við þig að vera ósammála mér. Ég er það stundum sjálfur, sérstaklega þegar ég heyri rök sem fella mínar hugmyndir. Ég játa að mér finnst þetta mál frekar skondið, og velti fyrir mér hvort að þetta sé spunnið af leikfléttumeisturum eða hvort að vandamálið hafi virkilega verið raunverulegt. Hefði ég sagt að þetta væri raunverulegt vandamál fyrir viku síðan hefði verið hlegið að mér, nú er með réttu hægt að hneykslast fyrir að halda öðru fram.

Stundum er ég bara svolítið eftirá, og held að ég sé ennþá staddur í síðustu viku þar sem allt var í blóma nema fjárhagur íslenskra fjölskylda.

Stóra spurningin er kannski þessi: hver er raunveruleg undirstaða efnahagskerfisins: fólkið sem býr landið eða bankarnir?

Ég held að það sé fólkið.

Leiðréttu mig endilega ef ég fer með rangt mál.

Hrannar Baldursson, 29.9.2008 kl. 21:06

14 Smámynd: Hrannar Baldursson

Magnús: byltingar skila nú yfirleitt engu öðru en ömurleika segir sagan, en ljóst er að byltingar eiga sér stað þegar fólk þolir ekki lengur við. Spurning er hversu rík þrælslundin sé í okkur, hversu lengi við þolum að það sé gengið yfir okkur á takkaskóm? Ansi lengi grunar mig, enda er meirihluti þjóðarinnar ekki atvinnubílstjórar með þor.

Hrannar Baldursson, 29.9.2008 kl. 21:08

15 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ómar: Þú ert svalastur:

Lára Hanna: Flott samantekt hjá þér.

Jón Þór: Verðbólga er einmitt það þegar verðmæti hlutar verður meira í peningum af einhverjum ástæðum, og svo virðsist vera að önnur samsvörun um verðmæti tapist fyrir vikið.

Marínó: Þegar eina verkfærið er hamar eru öll vandamál skilgreind sem naglar.

Sigrún:

Jónas: Bjarni Ármanns er kapítuli út af fyrir sig. Hann gerði náttúrulega allt innan ramma laga, en það er spurning þegar raunin er að hagnaðurinn sem hann sýndi fram á var blekking ein, hvort að hann þurfi að svara fyrir það.

Ólafur: Fasmismi inniheldur nú aðeins meiri grimmd, er það ekki?

Villi: Spurning hvort að D hafi verið svolítið fljótfær fyrst að aldrei þessu vant fékk W ekki sínu fram.

Rut: Ég skal lána þér eitt orð, og fyrir það orð geturðu lánað einhverjum öðrum tíu orð. Svo rukka ég inn orðið sem ég lánaði þér með 20% vöxtum. Er það ekki sanngjarnt?

Hrannar Baldursson, 29.9.2008 kl. 21:15

16 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

"Fasmismi inniheldur nú aðeins meiri grimmd, er það ekki?"

Fasismi inniheldur sterkan valdhafa, afneitun frelsis og auðhringa - allt í boði hins sterka valdhafa.

Ásgrímur Hartmannsson, 29.9.2008 kl. 22:01

17 Smámynd: Jón Þór Ólafsson

Olíuverð hefur EKKI hækkað miðað við eina stöðuga gjaldmiðilinn: GULL.

Olíuverð hefur rokið upp miðað við pappírspeningana sem seðlabankar heimsins hafa prenta úr engu og ríra virði þeirra gagnvart önnur verðmæti eins og olíu.

Jón Þór Ólafsson, 30.9.2008 kl. 08:03

18 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hverjum til hagsbóta syndir þorskurinn við strendur Íslands? Stærstu tíðindi í þessari fjármálakrísu eru að mínu mati þau að viðhalda ofurverði á óveiddum fiski til hagsbóta hinum svonefndu sægreifum.

Þjóðin fagnaði þegar í það stefndi að hér yxi upp kynslóð lærdómsins sem kenndur var í háskólum. Fyrri kynslóðir höfðu það að leiðarljósi að bjarga sér og nýta sér þær auðlindir sem gerðu fólkinu í þessu landi kleift að lifa. Nú er snillingurinn Exel búinn að sýna fram á að það var röng aðferð.

Mín "pólitíska stefna" segir mér að lifa í þeim raunveruleika sem skilningarvitin birta mér á hverjum tíma. Stjórnendur bankanna á Íslandi lifðu í Exel. Íslensk stjórnvöld hafa orðið sammála um að gera það líka- allir nema Guðjón Arnar Kristjánsson alþingismaður.

Árni Gunnarsson, 30.9.2008 kl. 08:42

19 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Jú,jú, bara fínt, ég legg svo 25% á mín lán svo ég kem út í gróða. Og set vask á allt heila klabbið. Og ekki gleyma verðbótaþættinum...

Rut Sumarliðadóttir, 30.9.2008 kl. 12:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband