80. Óskarsverðlaunin: Spáð í spilin
24.2.2008 | 13:00
Þá er komið að Óskarsverðlaunadeginum og að spá í spilin. Ég geri mér fulla grein að vonlaust er að vita hvað fólkið er að pæla sem gefur atkvæði, en oft held ég að verðlaunin fái sú mynd sem hefur verið best markaðssett af framleiðendum. Ég held að Atonement muni sópa til sín verðlaunum í kvöld, ekki vegna þess að hún er góð kvikmynd, heldur vegna þeirrar gífurlega öflugu auglýsingaherferðar sem hefur verið í gangi til að tryggja henni atkvæði. En þetta kemur allt fljótlega í ljós.
Ég nenni ekki að spá í kjóla eða klæðnað á rauða dreglinum.
Ég mun ekki spá í bestu stuttmyndir eða heimildamyndir, enda hef ég ekki séð neinar þeirra. Hins vegar er ég búinn að fylgjast nokkuð vel með kvikmyndum í fullri lengd á árinu, en þar sem ég er að fylgjast með þessu í tómstundum, næ ég náttúrulega ekki að sjá allt það sem mig langar til að sjá. Ég hef ekki heldur fylgst mikið með kvikmyndum utan Hollywood, þannig að ég ræð engan við að velja bestu erlendu myndina, fyrir utan Persepolis.
Don Hugur kemur með þá spá sem Don Hrannar heldur að vinni, sem kalt mat burtséð frá eigin smekk. Don Hjarta byggir á tilfinningu Don Hrannars, og Don Uppreisn stingur upp á mynd sem var ekki einu sinni tilnefnd, og hefði átt að vera það og ætti meira að segja jafnvel að vinna. Endanleg spá er hins vegar sú mynd sem Hrannar trúir að muni vinna, en hefur engan tíma til að útskýra hvers vegna.
Besta teiknimyndin:
Tilnefndar eru:
Persepolis | Ratatouille | Surf's Up |
Don Hrannar pælir:
Don Hugur velur: Ratatouille | Don Hjarta velur: Persepolis | Don Uppreisn velur: Beowulf |
Don Hrannar spáir: Ratatouille
Bestu tæknibrellur:
Tilnefndar eru:
The Golden Compass | Pirates of the Caribbean: At World's End | Transformers |
Don Hrannar pælir:
Don Hugur velur: Transformers | Don Hjarta velur: The Golden Compass | Don Uppreisn velur: 300 |
Don Hrannar spáir: Transformers
Besta frumsamda handrit:
Diablo Cody (Juno) | Nancy Oliver (Lars and the Real Girl) | Tony Gilroy (Michael Clayton) | Brad Bird, Jan Pinkava, Jim Capobianco (Ratatouille) | Tamara Jenkins (The Savages) |
Don Hrannar pælir:
Don Hugur velur: Ratatouille | Don Hjarta velur: Juno | Don Uppreisn velur: Hot Fuzz |
Don Hrannar spáir: Juno (Diablo Cody)
Besta handrit byggt á áður útgefnu efni:
Christopher Hampton (Atonement) | Sarah Polley (Away from Her) | Ronald Harwood (Le Scaphandre et le Papillon) | Joel Coen og Ethan Coen (No Country for Old Men) | Paul Thomas Anderson (There Will Be Blood) |
Don Hrannar pælir:
Don Hugur velur: No Country for Old Men | Don Hjarta velur: No Country for Old Men | Don Uppreisn velur: Stardust |
Don Hrannar spáir: Atonement (Christopher Hampton)
Besta leikkona í aukahlutverki:
Cate Blanchett (I'm Not There) | Ruby Dee (American Gangster) | Saoirse Ronan (Atonement) | Amy Ryan (Gone Baby Gone) | Tilda Swinton (Michael Clayton) |
Don Hrannar pælir:
Don Hugur velur: Cate Blanchett (I'm Not There) | Don Hjarta velur: Cate Blanchett (I'm Not There) | Don Uppreisn velur: Romola Garai (Atonement) |
Don Hrannar spáir: Saoirse Ronan (Atonement)
Besti leikari í aukahlutverki
Casey Affleck (The Assassination of Jesse James by the Coward Robert Ford) | Javier Bardem (No Country for Old Men) | Philip Seymour Hoffman (Charlie Wilson's War) | Hal Holbrook (Into the Wild) | Tom Wilkinson (Michael Clayton) |
Don Hrannar pælir:
Don Hugur velur: Javier Bardem | Don Hjarta velur: Javier Bardem | Don Uppreisn velur: Nick Frost (Hot Fuzz) |
Don Hrannar spáir: Javier Bardem (No Country for Old Men)
Besta leikkona í aðalhlutverki:
Cate Blanchett (Elizabeth: The Golden Age) | Julie Christie (Away from Her) | Marion Cotillard (La Vie en Rose) | Laura Linney (The Savages) | Ellen Page (Juno) |
Don Hrannar pælir:
Don Hugur velur: Ellen Page | Don Hjarta velur: Ellen Page | Don Uppreisn velur: Angelina Jolie (A Mighty Heart) |
Don Hrannar spáir: Julie Christie (Away from Her)
Besti leikari í aðalhlutverki:
George Clooney (Michael Clayton) | Daniel Day-Lewis (There Will Be Blood) | Johnny Depp (Sweeney Todd: The Demon Barber of Fleet Street) | Tommy Lee Jones (In the Valley of Elah) | Viggo Mortensen (Eastern Promises) |
Don Hrannar pælir:
Don Hugur velur: Daniel Day-Lewis | Don Hjarta velur: Johnny Depp | Don Uppreisn velur: Simon Pegg (Hot Fuzz) |
Don Hrannar spáir: Daniel Day-Lewis (There Will Be Blood)
Besta leikstjórn:
Paul Thomas Anderson (There Will Be Blood) | Ethan Coen og Joel Coen (No Country for Old Men) | Tony Gilroy (Michael Clayton) | Jason Reitman (Juno) | Julian Schabel (Le Scaphandre et le Papillon) |
Don Hrannar pælir:
Don Hugur velur: Ethan Coen og Joel Coen | Don Hjarta velur: Ethan Coen og Joel Coen | Don Uppreisn velur: Edgar Wrigth (Hot Fuzz) |
Don Hrannar spáir: Ethan Coen og Joel Coen (No Country for Old Men)
Besta kvikmynd 2007
Atonement | Juno | Michael Clayton | No Country for Old Men | There Will Be Blood |
Don Hrannar pælir:
Don Hugur velur: No Country for Old Men | Don Hjarta velur: No Country for Old Men | Don Uppreisn velur: 3:10 to Yuma |
Don Hrannar spáir með óbragð í munni: Atonement
Flokkur: Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 16:51 | Facebook
Athugasemdir
Verulega rangt kallinn minn og hvað er með ást þína á Atonement eina sem hún vinnur er fyrir músik kallinn minn.
Ég meina ef að mynd vinnur ekkert nema besta myndin í UK og er frá UK think about it.
Eigum við svo að ræða um Blade Runner eða
Keep up the good work alltaf gaman að lesa bloggið þitt það er kjöt á beinunum.
Kíktu á mína spá og sjáðu hvort að ég sé útá túni , við erum ekki ósammála um allt.
Besta kvikmynd ef ekki No Country þá verður það JUNO ef ekki þá er næst í röðinni hjá akademíunni Michael Clayton þannig að Atonement Ekki séns , ég ét það ofan í mig ef ég hef rangt fyrir mér.
Ómar Ingi, 24.2.2008 kl. 13:25
Atonement vann á BAFTA (British Academy of Film and Television Arts) sem besta kvikmyndin, en ekki sem besta breska kvikmyndin.
Hrannar Baldursson, 24.2.2008 kl. 13:41
Frábært hjá þér Hrannar og gaman að sjá kommentið hjá Omma, ég er búin að lesa spána hjá honum. Nú ætla ég sko að vaka í nótt og horfa á hann Óskar. Mey the best men win.
Ásdís Sigurðardóttir, 24.2.2008 kl. 15:18
Hrannar já BAFTA þú vissir hvað ég meinti ekki satt
Ómar Ingi, 24.2.2008 kl. 21:50
Ómar: Ég fattaði þetta, en ekki fyrr en ég var búinn að skrifa athugasemdina.
Ásdís: Verð að vinna í fyrramálið, og kíki bara á fréttirnar á morgun. Ég missti hvort eð er töluverðan áhuga í fyrra þegar The Departed vann. En hann vaknar aftur. Ég held bara að Atonement vinni af því að mér finnst hún lélegust af þeim sem eru í boði, rétt eins og The Departed í fyrra. :)
Polly: Ég hafði bara ekki tíma til að setja saman pælingar mínar um myndatöku og hljóð. Reyndar skil ég ekki alveg muninn á hljóðtæknibrellum og hljóðklippingu - finnst þetta ætti að vera ein grein, - en No Country for Old Men hafði frábæra hljóðblöndun. Myndatakan var sjálfsagt best í 300.
Hrannar Baldursson, 24.2.2008 kl. 22:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.