Hreinskilni í orðavali: hvernig orðin skapa heimsmynd okkar
7.12.2023 | 08:59
Ímyndaðu þér ef þú kallaðir kött hund, og hund mús, og mús rottu. Hvað myndi gerast? Myndir þú rugla sjálfan þig í rýminu og kannski í leiðinni byrja að rugla aðra í rýminu? Segjum að þú kallaðir gulan rauðan og rauðan bláan og bláan grænan. Fljótlega færi allt í hnút, sérstaklega ef þú reyndir að ræða dýr og liti við annað fólk.
Það að nota réttu nöfnin yfir hlutina er eins og að vera hreinskilinn á eigin tungumáli, það snýst um að blekkja hvorki aðra né sjálfan sig. Ímyndaðu þér að einhver leggi aðra manneskju í einelti, og síðan þegar hún er ásökuð fyrir það, stígur eitt skref til baka og segir afsakandi: djók! Væri sú manneskja að kalla hlutina réttu nafni? Væri hún að beita öðru nafni til að rugla nærstadda í rýminu, varpa smá vafa á hlutina til að hún geti hugsanlega sloppið? Mögulega.
Þegar við höfum samskipti við annað fólk eru nákvæmni í orðavali og hreinskilni algjörlega nauðsynleg. Það er nefnilega vandasamara en margur heldur að geta rætt málin þrátt fyrir að allar forsendur séu á hreinu. Það er hægt að misheyrast og misskilja, þó að fólk geri sitt besta til að ræða saman af skynsemi. Það krefst þjálfunar og aga að ræða vel saman, sem felur í sér að hlusta á orð hinnar manneskjunnar og velja rétt eigin orð, og tengja síðan saman í það sem við viljum segja, hugsanir okkar, og í eðlilegu samhengi við samræðuna.
Þegar við veljum réttu orðin þá erum við að byggja forsendur fyrir góðri ákvarðanatöku og trausti. Þetta tryggir að við erum að ræða það sem við í raun og veru viljum ræða.
Fyrir manneskju sem vill rækta eigin hug, nálgast þekkingu og visku, og velta fyrir sér hugmyndum sem ná þúsundir ár aftur í tímann, þarf hún að þjálfa sig í að sjá hugmyndirnar skýrt fyrir sér og af heilindum. Hún þarf kannski að átta sig á því að orð yfir sömu hlutina breytast stundum, út frá samhengi orðræðunnar, og jafnvel út frá hefðum ólíkra menningarheima. Með því að greina og skilja forna og nýja texta, þjálfum við okkur í að hugsa rökrétt, en besta þjálfunin er samt þegar við beitum þessum orðum með okkar eigin hætti.
Það að velja réttu orðin er tengt því að sjá hlutina skýrt og greinilega, hreinskilni, skilningi og góðum samskiptum.
Því miður gætir stundum að óvarkáru orðavali í daglegu tali, og þá þurfum við að vera á varðbergi, og gæta þess að kalla hlutina réttum nöfnum. Til dæmis þegar við sjáum einhvern beita mikilli hörku er betra að gagnrýna það sem manneskjan gerði fyrir að beita of mikilli hörku frekar en að kalla viðkomandi fasista, því slíkt orð er merkingarhlaðið og getur þýtt ólíka hluti fyrir ólíkt fólk. Það er nógu slæmt að beita of mikilli hörku, og það að bæta hugtaki eins og fasisti við mun aðeins gera eitt, ýfa upp ófyrirsjáanlegar tilfinningar og reiði.
Það er nákvæmlega þetta sem gerist þegar við köllum hlutina ekki réttu nöfnunum, það verður til þess að umræðan fer í rugl og fólk verður ringlað, í stað þess að halda sig við staðreyndir og átta sig á hlutunum.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.