Nýjustu færslur
- Um líkama og sál - Í tilefni áttræðisafmælis föður míns, Bald...
- Hrós til þjónustuborðs Costco
- Hætturnar sem felast í fáfræði
- Mistök og það sem við getum lært af þeim
- Heimspeki í morgunmat: að byrja hvern dag með krefjandi spurn...
- Af hverju trúum við stundum blekkingum frekar en því sanna?
- Meðan bærinn okkar brennur
- Ekki er allt gull sem glóir, en samt veljum við það
- Ofurkraftar okkar
- Hvernig veljum við hvort við verðum góðar eða slæmar manneskjur?
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Eldri færslur
2024
2023
2021
2020
2019
2018
2017
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Um stjörnugjöf fyrir kvikmyndagagnrýni
9.4.2007 | 18:52
Stundum fæ ég athugasemdir um hvernig ég gef kvikmyndum einkunnir. Þessari færslu er ætlað að svara því.
Einkunnagjöfin er hugsuð þannig:
****
Mynd sem mér finnst frábær og uppfyllir fyllilega mínar væntingar, hvort sem um drama eða aðra tegun mynda er að ræða. Þær myndir sem fá **** vil ég eiga í DVD safninu mínu og geta horft á aftur og aftur. Vel heppnaðar ævintýramyndir geta fengið fjórar stjörnur, enda uppfylla þær mínar væntingar um frábærlega heppnaða ævintýramynd; þrátt fyrir að aðrar myndir geti almennt séð talist betri. Til dæmis finnst mér Alien vera frábær vísindahrollvekja og gæfi henni hiklaust fjórar stjörnur. Til samanburðar er Hamlet frá 1948 stórkostlegt drama sem ég myndi líka gefa fjórar stjörnur. Þetta eru bara gjörólíkar tegundir kvikmynda, en báðar eru þær framúrskarandi á sinn eigin hátt.
***1/2
Mjög góð mynd, fyrir utan einhverja smágalla - eins og lélegan leik, villur í söguþræði, lélega tónlist, slaka klippingu á stöku stað, o.s.frv. Þarna er um að ræða kvikmynd sem ég væri svo sem til í að sjá aftur, en ekki tilbúinn að kaupa. Til dæmis gaf ég Ghost Rider ***1/2, en það var aðallega vegna þess að mér þótti aðalleikonan frekar stíf og leiðinleg - hins vegar fannst mér fantasían, leikur Nicolas Cage og tæknibrellurnar svo frábærar að ég gat ekki annað en mælt sterklega með henni.
***
Mynd sem ég get mælt með, en er ekkert endilega eiguleg eða frábær. Hún gæti einfaldlega verið vel gerð formúlumynd sem segir samt eitthvað nýtt. Mig grunar að ansi margar vel heppnaðar rómantískar gamanmyndir gætu fengið þennan dóm hjá mér.
**1/2
Mæli með henni, en með fyrirvara. Þetta eru myndir sem ég myndi ekki nenna að horfa á aftur. Það er ólíklegt að ég birti gagnrýni með þessa einkunn eða lægri á blog.is, þó að af nógu sé að taka.
**
Meðalmynd sem ég mæli ekkert sérstaklega með.
Minna en **
Forðist þær.
Flokkur: Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 18:53 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 777739
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- AK-72
- ThoR-E
- Agnar Freyr Helgason
- Alfreð Símonarson
- Alvy Singer
- Anna
- Anna Þóra Jónsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Berglind Steinsdóttir
- Birgitta Jónsdóttir
- Birna Dís
- Birna Guðmundsdóttir
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Sæmundsson
- Björgvin Gunnarsson
- Björn Ingi Hrafnsson
- Bleika Eldingin
- Blogblaster
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brynjar Hólm Bjarnason
- Bwahahaha...
- Börkur Gunnarsson
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Davíð
- Davíð Logi Sigurðsson
- Dofri Hermannsson
- Edda Sveinsdóttir
- Einar Indriðason
- Einar Jón
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eygló Sara
- Eymar Plédel Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fararstjórinn
- FreedomFries
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gudrún Hauksdótttir
- Gulli litli
- Gunnar Björn Björnsson
- Gunnar Björnsson
- Gunnar Freyr Rúnarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Guðbjörn Jónsson
- Guðfríður Lilja
- Guðmundur Pálsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur Sverrir Þór
- Guðmundur Óli Scheving
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Guðrún Erla Sumarliðadóttir
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Guðrún Þorleifs
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Foster Hjartarson
- Gísli Tryggvason
- Hafrún Kristjánsdóttir
- Hafsteinn Karlsson
- Halldór Sigurðsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haukur Viðar
- Heidi Strand
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hulda Haraldsdóttir
- Ingvar Þór Jóhannesson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Johnny Bravo
- Jonni
- Jóhann Björnsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Steinar Ragnarsson
- Jón V Viðarsson
- Jón Viktor Gunnarsson
- Jón Þór Bjarnason
- Jón Þór Ólafsson
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Karl Gauti Hjaltason
- Karl Tómasson
- Katan
- Ketill Sigurjónsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kolbrún Heiða Valbergsdóttir
- Kolbrún Hilmars
- Konráð Ragnarsson
- Kristján B. Jónasson
- Kristján Hreinsson
- Kristján Kristjánsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Kári Harðarson
- Leikhópurinn Lotta
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Magidapokus
- Magnús Árni Magnússon
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- María Kristjánsdóttir
- Millablog
- Neddi
- Pálmi Gunnarsson
- Pétur Kristinsson
- Ragnar Gunnarsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Rannveig H
- Ransu
- Rut Sumarliðadóttir
- Róbert Björnsson
- Rúnar Már Bragason
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigríður Jónsdóttir
- Sigrún Jónsdóttir
- Sigurbjörn Friðriksson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Skafti Elíasson
- Skák.is
- Snorri Bergz
- Snuddi
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Jón Hafstein
- Steingerður Steinarsdóttir
- Þorsteinn Briem
- Steinki
- Steinn Hafliðason
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sveinn Arnarsson
- Sverrir Stormsker
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sævar Helgason
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Sólveig
- TARA
- Toshiki Toma
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Tómas Þráinsson
- Vefritid
- Vilhjálmur Árnason
- Villi Asgeirsson
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Víðir Ragnarsson
- arnar valgeirsson
- gudni.is
- kiza
- mongoqueen
- Ásgerður
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Íslendingur
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ómar Ragnarsson
- Ómar Örn Hauksson
- Óskar Arnórsson
- Óskar Þorkelsson
- Óttar Felix Hauksson
- ÖSSI
- Þarfagreinir
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Þröstur Helgason
- Þröstur Unnar
- Þóra Sigurðardóttir
- Þórarinn Eldjárn
- Þórdís Guðmundsdóttir
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Helgi Þórðarson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Agný
- Ari Jósepsson
- Árni Karl Ellertsson
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarki Þór
- Davíð Pálsson
- Dominus Sanctus.
- DÓNAS
- ESB og almannahagur
- Eygló
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- G Helga Ingadottir
- Gísli Sigurðsson
- Grétar Eiríksson
- Guðni Karl Harðarson
- Hafþór Baldvinsson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Haraldsson
- Hörður Halldórsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Jónatan Gíslason
- Jón Lárusson
- Jón Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Lúðvík Lúðvíksson
- Marta B Helgadóttir
- Morgunblaðið
- Omnivore
- Róbert Badí Baldursson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Sigurður Antonsson
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Styrmir Reynisson
- Sumarliði Einar Daðason
- Sævar Már Gústavsson
- Sölvi Breiðfjörð
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valur Arnarson
- Vestarr Lúðvíksson
Athugasemdir
Gott hjá þér Hrannar að gefa þetta upp, hvernig þú framkvæmir einkunnagjöfina. Sumar kvikmyndir eru þannig að það er alls ekki möguleiki á því að horfa á þær aftur.
Þetta hlýtur að vera hrikalegt verk að yfirfara kvikmyndir frá upphafi. Frábært, ekkert minna. Sóldís
Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 9.4.2007 kl. 20:11
Hæ aftur. í sambandi við Sideways þá kom til tals hér hjá þér um daginn að gefa hæst fimm stjörnur í stað fjögurra. Þú sagðist ætla að gera það og ef ég tók rétt eftir þá bættirðu hálfri stjörnu við mynd á þeim tímapunkti. Þetta var á þeim tíma sem þú fjallaðir um Gattaca, þá snilldarræmu og kannski er ég bara að tala um hana.
En gagnrýnendur fá alltaf krítikk vegna stjörnugjafar og ég er ekkert að segja að þín skoðun eigi að vera eins og mín. Mér finnst til dæmis Phantom of the paradise algjörlega frábær (rokkópera, 1974, Brian de Palma, tónl. Paul Williams) en fullt af fólki finnst hún hræðilega súr og hún fær minnir mig 6,5 á imdb, sem reyndar er bara ágætt. Félagi minn, hann Mummi, gaf Starship Troopers þrjár og hálfa í mogganum á sínum tíma og allt varð kreisí. Ég var td ekki sammála þó hún væri fín - en öðruvísi.
Málið er s.s. að ég tók því þannig að þú værir í fimm stjörnum. En Sideways er alldeilsi fín....
arnar valgeirsson, 9.4.2007 kl. 20:23
Takk fyrir þetta Sóldís. Þetta lítur kannski út fyrir að vera mikið verk, en þetta er bara svo gaman. Það er miklu skemmtilegra að vita til þess að maður getur horft á eins og eina klassíska mynd á viku í staðinn fyrir að leigja sumt af draslinu sem er ofarlega á vinsældarlistum.
Arnar: Það er rétt munað hjá þér að ég ætlaði að breyta þessu um daginn. Ég var búinn að breyta einkunnagjöfinni fyrir allar myndirnar í samræmi við þetta. Eftir smá umhugsun fannst mér þetta ekki passa, og hætti því við að hækka stjörnugjöfina upp í fimm stjörnur. En ég er þér gífurlega þakklátur fyrir að fylgjast með skrifum mínum. Ég tek því ekki sem sjálfsögðum hlut. Ég hef aldrei heyrt neitt um Phantom of the Paradise, ég verð bara að bæta henni á listann. Og svo er ég sammála honum Mumma félaga þínum um Starship Troopers, ég hefði sjálfsagt gefið henni þrjár og hálfar líka, ef ekki fjórar, þar sem að mér fannst hún uppfylla allar þær væntingar sem ég gerði til hennar og gott betur. Reyndar voru leikararnir stundum svolítið flatir, en það passaði við viðfangsefnið, þar sem að fyrirmynd persónanna voru nasistar seinni heimstyrjaldarinnar. Mér fannst það einfaldlega snilld að þó sagan væri sögð frá sjónarhorni mannkyns, var ljóst að mannkynið var vondi gaurinn í myndinni, en geimverurnar voru einfaldlega að vernda heimaplánetur sínar.
Hrannar Baldursson, 9.4.2007 kl. 22:02
já tad er gott ad fá skilgreiningu á tessu. Sá annars 300 um daginn og verð ég að segja að hún er eins og listaverk á hreyfingu.
kv. Oddur Ingi
Oddur Ingi (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 12:11
Fróðleg og upplýsandi umræða hér Hrannar, takk fyrir mig.
Sigfús Sigurþórsson., 10.4.2007 kl. 12:40
Segðu mér eitt, ef þú nennir, hvað finnst þér um spaghetti myndirnar hans Clint Eastwood??
Ásdís Sigurðardóttir, 10.4.2007 kl. 23:11
Ásdís: áttu við Sergio Leone trílógíuna? Ef svo er, þá finnst mér þær frábærar, sérstaklega The Good, The Bad and The Ugly. En ég verð að horfa á þær aftur hverja og eina til að átta mig betur á þeim. Reyndar eru þær gerðar undir áhrifum úr myndum Akira Kurosawa, Sanjuro og Yojimbo, sem eru einfaldlega framúrskarandi. The Proposition, nýleg mynd með Guy Pierce er í anda spaghettí vestranna, og mér fannst hún stórgóð. En besti "spestrinn" sem ég hef séð finnst mér vera Once Upon A Time In The West, gerð af Sergio Leone. Hún er snilld. Nú langar mig til að kíkja aftur á spestrana.
Oddur Ingi og Sigfús: takk!
Hrannar Baldursson, 10.4.2007 kl. 23:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.