Hvað er Hr. Ólafur Ragnar eiginlega að hugsa?
4.1.2010 | 07:17
Það er hárrétt hjá Ólafi Ragnari að taka sér umhugsunartíma, en það er ómögulegt að segja til um hver ákvörðun hans verður, hann veit það sjálfsagt ekki sjálfur; til þess er umhugsunartíminn. Eftir mín afar stuttu kynni við hann trúi ég að hann vilji þjóðinni það besta, sé heiðursmaður, og sé ekki í vinsældaleit. Ég vona að hann sé af heilindum að leita farsælla leiða um málalyktir eftir höfnun þessa máls, því að stjórnarslit með öðru stjórnarmynstri mun ekki skila neinu öðru en þrátefli.
Hann virðist í það minnsta vera að gera nákvæmlega það sem ég hefði gert í hans sporum, og ég er tilbúinn að gefa honum tækifæri til að rannsaka málið, þó að slík völd séu reyndar ekki á mínu færi, og taka afstöðu með almannaheill að viðmiði. Það er vandasamt að leysa þetta mál svo að vel verði, og ef tekst að koma á tímabundinni þjóðstjórn virtra einstaklinga, er slagurinn engan veginn unninn, og það engin silfurkúla sem leysir allan vanda, en það hlýtur að vera skref í rétta átt að gefa stjórnmálahreyfingunum tímabundið frí frá störfum, því að í augnablikinu eru þær vita gagnslausar, eins og reyndar alltaf, þó að að þær séu sjálfsagt nauðsynlegar fyrir tilfinningu fólks um stöðugleika. Stjórnmálahreyfingar eru hins vegar vita gagnslausar þegar kemur að því að leysa vandamál á neyðartímum. Það er bara í eðli þeirra. Ekkert við frambjóðendur eða fulltrúa að sakast. Þeir ráða ekkert við þetta kerfisbákn frekar en aðrir, og verða að leika sín hlutverk.
Það er bara á jafnvægistímum sem stjórnmál eiga að komast upp með eigið gagnsleysi, og þá mættu vera skýr skil á milli Ríkisstjórnar sem fer með framkvæmdavald, og Alþingis sem fer með löggjafavald, en ekki hafa þetta allt í einum hrærigraut þar sem ein höndin er upp á móti annarri.
Stjórnarliðar virðast trúa því staðfast að ICESAVE lögin eins og þau eru séu ekki bara ásættanleg, heldur góð, einfaldlega vegna þess að þau gætu verið miklu verri. Stjórnarandstæðingar sjá að þessir samningar gætu verið miklu betri. Svona eru stjórnmál. Hrærigrautur.
Það sem helst er hægt að gagnrýna eru vinnubrögð ríkisstjórnar, að senda mann til samninga sem virðist ekki verkinu hæfur, og reyna síðan af sannfæringarkrafti að festa þennan samning sem lög, og auk þess standa ekki við eigin loforð um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna mikilvægra mála, og reyna síðan að þvinga samningum í gegn þrátt fyrir skýran vilja gegn því, eins og ofvirkur sölumaður sem þú hefur boðið inn á heimili þitt.
Himnarnir hrynja ekki, hvort sem málinu verður hafnað eða það samþykkt, svo framarlega sem að fólk lagfæri eigin vinnubrögð, sýni viðsemjendum að vilji er til að ná fram réttlæti og að réttlæti snúist ekki bara um peningagreiðslur sem rangt fólk á að greiða, og hætti svo að snúa öllu upp í pólitískar deilur.
Öll dýrin í skóginum ættu að vera vinir, en það er eins og harðsvíraður flokkur veiðiþjófa hafi flogið yfir í þyrlu og dritað á dýrin með vélbyssukjöftum og eldsprengjum. Síðan fljúga veiðiþjófarnir burt og ætlast er til að dýrin verði sátt með því að laga umhverfið og hjúkra hinum sáru, í stað þess að koma í veg fyrir að sömu hlutir gerist aftur.
Það eru ýmis merki á lofti um að ekkert hafi breyst í viðskiptaumhverfinu, og ef það er satt, af hverju ætti þjóðin þá að borga, þegar sams konar vitleysa gæti endurtekið sig aftur, og aftur? Það verður að stoppa þá einstaklinga sem réðust gegn þjóðinni, og sýna fólki sem er í sams konar þankagangi að það komist ekki upp með að gera þjóð sína gjaldþrota að kostnaðarlausu, þó að þeir hafi gert það af gáleysi eða til skemmtunar, en það er einfaldlega svo gaman að telja sig eiga billjón trilljónir.
Mér þætti vænt um að fá athugasemdir við þessum pælingum, en ekki búast við að ég snúist á þína skoðun án þess að hugsa mig um og velta rökum þínum fyrir mér.
Athugasemdir
Ég hugsa að Óli telji þetta sinn síðasta séns til að vera maður fólksins.... núna er hann að vega og meta hvort þetta muni gera hann að manni fólksins í einhvern tíma.. eða hvort Icesave muni taka hann með sér út í frásoginu.
DoctorE (IP-tala skráð) 4.1.2010 kl. 09:36
Ég er sammála Eiríki Bergmann, frá því í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun, að það að taka sér frest megi túlka sem höfnun á undirskrift. Stjórnarskráin er hræðileg að þessu tilliti.
Ef hann skrifar ekki undir, þá vona ég að hann segi af sér samhliða höfnun.
Að öðru leiti er ég sammála pistli þínum.
Billi bilaði, 4.1.2010 kl. 09:53
Þetta er góður pistill. Ég skrifaði í gær þennan pistil http://asthildurcesil.blog.is/blog/asthildurcesil/
En ég er algjörlega sammála þér með að hér þarf að hreinsa til. Það gengur ekki að sömu menn haldi áfram að rú okkur inn að skyrtu aftur og aftur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.1.2010 kl. 10:28
Veit ekkert um hversu mikill heiðursmaður ÓRG er, en skil að hann þurfi umhugsunarfrest. Hefði þurft það sjálfur, geri ég ráð fyrir. Hann er í klípu, verður að velja hvort hann hafnar pólitískum vinum eða þjóðinni. Annað hvort endar hann vinalaus eða embættislaus, því honum verður varla líft á Bessastöðum ef hann skrifar undir.
Held að það besta í stöðunni væri að skrifa ekki undir og vera tilbúinn með fólk í utanþingsstjórn ef stjórnin springur í kjölfarið. Þannig næði hann að laga mannorðið og yrði enn valdameiri en hann þegar er.
Villi Asgeirsson, 4.1.2010 kl. 11:05
Ólafur Ragnar mun samþykkja lögin frá Alþingi 30. des. 2009, sanniði til.
Þið talið hér að ofan sum hver um að allir stjórnmálamenn séu ómögulegir, þetta voru háværustu hrópin í Pottlokabyltingunni og það voru haldnar kosningar. Aðeins eitt stjórnmálaafl kom fram og náði fulltrúum(4) á þing, Borgarahreyfingin.
Var Borgarahreyfingin eitthvað afl sem sýndi ný vinnubrögð og ný sjónarmið, nýja stefnu?
Borgarahreyfingin er ekki til sem stjórnmálaafl, byrjaði á því að svíkja gefin loforð og klofnaði síðan í ég veit ekki hvað marga parta.
Og má ég spyrja: Hvernig stendur á því að allir stjórnmálamenn (Alþingismenn) eru ómögulegir ef til eru ljóngáfaðir kjósendur í landinu, talsvert yfir 200.000 að tölu. Hvernig stendur á því að þessir ljóngáfuðu kjósendur kjósa sér alltaf ómögulega fulltrúa til að ráða málum þjóðarinnar?
Sigurður Grétar Guðmundsson, 4.1.2010 kl. 13:51
Sko, ef þú hefur ekki borðað í viku og hefur val um apaheila eða kakkalakka, velurðu sjálfsagt annað hvort. Þýðir samt ekkert að kostirnir hafi verið góðir.
Villi Asgeirsson, 4.1.2010 kl. 13:57
Sigurður Grétar, við þessu er einfalt svar (eins og Villi kemur nú eiginlega inná): Ef þeir sem í boði eru í kosningum er ómögulegir þá skiptir engu hversu ofurgáfaðir kjósendurnir eru.
Betri spurning er hvers vegna öflugra fólk gefur ekki kost á sér. Ég held að útreið Ögmundar núna sýni og sanni hvers vegna svo er ekki. Íslensk pólitík hefur ekkert pláss fyrir fólk sem lifir eftir hugsjón og vill taka ákvarðanir sem henta íslenskum almenningi frekar en sínum eigin flokki. Sorgleg staðreynd.
Kolbrún Heiða Valbergsdóttir, 4.1.2010 kl. 14:25
Síðasta atriðið er athyglisvert. Örlög Ögmundar! Þegar um er að ræða örlög allra íslendinga sem standa að þessu ríki eru örlög Ögmndar alveg skýlaust aukaatriði, skemmtilegt krydd í tilveruna en ekki grunnur til að ræða í þessu samhengi. Hann er í stjórnmálum og hugsjónir hans ekkert betri en annara. Það að hann standi brattur á sínum málstað sem er alls ekki betri en andstæðinganna þá verður hann að falla líka með honum. Stjórnmál sem snúast um að gæla við sín hugsjónamál eru ekki stjórnmál heldur hobbí.
Gísli Ingvarsson, 4.1.2010 kl. 15:18
Sjálfsagt, að taka sér umhugsunarfrest.
Með því, sýnir Ólafur að hann taki málið alvarlega. Einmitt með því, að sýna að hann þurfi að gefa sér tíma, til ákvörðunar.
Einnig, sýnir hann fram á, að embættið sé ekki einhver sjálfvirkur stimpill.
Forsetaembættið, eftir allt saman er tékk á valdþ Þingsins og framvkæmdavaldsins.
Vald forseta, ber því að taka alvarlega, það hefur Ólafur sýnt fram á, og skapað þannig nýja hefð fyrir beitingu þess valds.
-------------------------------
Það að hann taki sér tíma til umhugsunar, segir nákvæmlega ekkert til um, hvaða ákvörðun hann mun taka.
Varðandi hvort það hasti á með ákvörðunina, þá bendi ég á, að það mun a.m.k. taka 2 ár til viðbótar, að ljúka uppgjöri Landsbankans sáluga. Á sama tíma, er einnig líklegt, að viðræður við ESB taki cirka 2. ár.
Svo, við höfum 2. ár - ef út er það er farið.
--------------------------
Svo þ.e. ekkert endir einhvers alls, ef forsetinn segir "nei".
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 4.1.2010 kl. 20:49
Forsetinn tók sér umhugsunarfrest og er gott mál.Hann valdi rétt ad mínu mati.Ad tvennu illu sem ég geri mér alls ekki grein fyri hvad muni gerast hvort heldur er valid.Tá styd ég forsetann í tessari ákvördun og er bara nokkud kát.
kvedja .
Gudrún Hauksdótttir, 5.1.2010 kl. 13:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.