Minning: Þorvaldur Ólafsson (1921-2009)
9.3.2009 | 12:37
Afi minn, Þorvaldur Ólafsson, lést á Grund Landakotsspítala föstudagsmorguninn 27. febrúar. Þá var ég staddur á ráðstefnu um barnaheimspeki, en eftir að hafa fengið símtalið frá móður minni fór ég rakleitt til fjölskyldunnar og hætti við allar aðrar fyrirætlanir þá helgi. Við sem höfðum verið hjá honum síðustu dagana fundum flest til gífurlegrar þreytu eftir að hann féll frá, enda tekur andlát af völdum krabbameins mikið á alla aðstandendur, sérstaklega þegar kærleikurinn er jafn ríkur og gagnvart Valda.
Ég skrifaði minningargrein í Morgunblaðið, en þegar kom að sendingu komst ég að því að hún mátti aðeins vera 3000 slög, en mín grein var margfalt lengri. Því klippti ég hana niður og var hún birt í mjög stuttri útgáfu í dag.
Bloggið gefur mér hins vegar færi á að birta greinina alla:
Þorvaldur Ólafsson var sterkur maður. Þrátt fyrir að hafa fengið hjartaáföll og stíflaðar æðar, auk sykursýki á háu stigi, varð loks lungnakrabbamein honum að bana. Þrátt fyrir öll þessi ár og öll þessi veikindi heyrði ég hann aldrei kvarta, heldur lýsti hann stöðugt yfir þakklæti fyrir að eiga sterka og góða fjölskyldu að. Við dánarbeð hans komust færri að en vildu. Slík var gæfa hans.
Stóra ástin í lífi afa var amma mín, Sigríður Guðbrandsdóttir, en þau voru saman öllum stundum síðan ég man fyrst eftir þeim til dagsins þegar hún varð bráðkvödd úr þessum heimi, alltof ung, árið 1998.
Amma var mikill fagurkeri, þekkti ótal ljóð utanað, las mikið af góðum skáldsögum og gat rætt heimspekileg málefni löngum stundum. Á meðan fróðleikurinn flæddi um varir ömmu, sat afi oftast nálægt og lagði við hlustir og gaf henni eins hlýtt augnaráð og hægt er að hugsa sér frá þessum ljósbláu augum. Hans þátttaka í samræðunum snerust yfirleitt að upplýsingum um staðreyndir og fólk sem þurfti að leiðrétta, til að umræðan yrði sem nákvæmust. Það skipti gífurlegu máli þegar vitnað var í manneskju að tilvitnunin var rétt og að gerð væri einhver grein fyrir þeim sem hafði farið með orðin.
Fyrir utan það að vera alltaf með ömmu, auk þess að Oddur bróðir hans bjó heima hjá þeim í fjölda ára, var afi líka svolítill einfari. Hann átti sér tvo hella sem hann gat horfið í tímunum saman. Annar þeirra var bílskúrinn, en hann var gífurlega flinkur vélvirki, og ef einhver bíll í fjölskyldunni bilaði, þá reddaði hann málunum. Ekkert annað kom til greina. Hann rak líka sitt eigið fyrirtæki og sérhæfði sig í að flytja inn aukahluti í þýskar dráttarvélar og önnur landbúnaðartæki. Fórst það honum afar vel, og vann hann við þetta þar til sjónin var orðin of döpur til að hann gæti lengur lesið.
Þegar ég hugsa aftur þá ber hugurinn mig til Korpúlfsstaða, þar sem við ræktuðum kartöflugarða. Þar man ég eftir afa sem af miklum dugnaði setti niður kartöflur að vori og gróf þær upp að hausti. Síðan var kartöflunum komið fyrir í kaldri kompu heima hjá afa og ömmu, sem fjölskyldan sótti síðan smám saman yfir árið.
Öll fjölskyldan tók virkan þátt í þessari ræktun, og var það í fjölda ára viðburður að fara í kartöflutínslu. Sjálfur kunni ég ekki að meta það sem ungur drengur að grafa holur og setja niður gamlar kartöflur og rífa þær svo upp. Mér fannst skorta fjölbreytni í starfið og leyddist það afar mikið, þó að mér hafi þótt afar vænt um allt það góða fólk sem ætíð tók virkan þátt í þessu starfi, þá læddist ég oft í burtu og lagðist á árbakka Korpu og reyndi að sjá þar bregða fyrir fiskum, stakk fingri í ána eða óð út í hana, og naut þess að finna þrýstinginn frá ánni dynja á Nokia stígvélunum.
Einhverju sinni sem oftar skutlaði afi mér heim af skákmóti, og við sátum saman við heimili mitt og ræddum um fortíðina. Hann hafði ekki dulið það þegar ég valdi að læra heimspeki við Háskóla Íslands að hann varð fyrir ákveðnum vonbrigðum, en hann hélt ég myndi fara í verkfræði, lögfræði eða viðskiptafræði - fög sem gerðu meira gagn. Hins vegar þegar ég útskýrði fyrir honum þá djúpstæðu þörf sem ég hafði til að skilja heiminn okkar aðeins betur þar sem að á sérhverju andartaki var eitthvað sem kom mér á óvart, og þá sérstaklega sú furða sem fylgdi þeirri vitneskju minni að ég væri hugsandi vera og að ef ég ræktaði það ekki gæti ég hugsanlega hætt að vera hugsandi vera. Því vildi ég leggja rækt við það að vera slík hugsandi vera, því að mér líkaði það, og vildi fyrir alla muni finna leiðir til að halda áfram að vera eins og ég var, en kannski aðeins dýpri.
Þegar ég útskýrði þetta fyrir honum þetta kvöld í bílnum, læddist yfir andlit hans vingjarnlegt bros, og hann trúði mér fyrir því að hann hafði alltaf langað til að vera kennari en þar sem að lífið tók óvænta stefnu, með tilurð móður minnar, hafði hann ákveðið að fara arðvænlegri leið og gerðist vélstjóri á sjó. Hann tjáði mér að hann bæri virðingu fyrir mínu vali þó að hann hafi ekkert botnað í því, enda er ekki allt fólk mótað í sama formi þó að okkur finnst að við ættum að vera það.
Sjómennskan var rík í þessum Eyjapeyja sem meðal annars sigldi um heimshöfin á meðan seinni heimstyrjöldin stóð yfir. Hann sagði frá því að eitt sinn stöðvaði þá þýskur kafbátur, og hann átti þá von á að það væri síðasta sjóferð þeirrar áhafnar. En ekki fór svo.
Þegar ég kom í heimsókn frá Mexíkó árið 2004 veiktist afi alvarlega, og höfðu hans veikindi töluverð áhrif á þá ákvörðun mína að koma heim til Íslands með fjölskyldu mína. Alltaf þegar við kvöddumst og ég hélt eitthvað út í heim sagðist hann halda að þetta væri í síðasta skiptið sem við myndum sjást. En alltaf kom ég aftur í fang hans og hlýju.
Það var gott að vera hjá honum síðustu daga ævi hans. Fyrir rúmri viku sat ég hjá honum eina nótt og við ræddum þá vel saman. Hann sagði mér frá hvernig hann hefði fengið tíðar heimsóknir frá Siggu ömmu, margoft eftir andlát hennar, þar sem að hún hafði oft hlúið að honum þegar hann var einn og hafði liðið illa. Hann sagði frá hvernig hann hafði séð systur sína sem dó ung í æsku, og hversu erfitt það hafði verið þegar hann sem ungur drengur var sendur í fóstur og fjölskyldu hans sundrað þegar móðir hans lést. Hann sagði frá hversu þakklátur hann var að eiga svona góða fjölskyldu, að hvert einasta barn, barnabarn og barnabarnabarn voru heilbrigðar og heilsteyptar manneskjur.
Og hann talaði sérstaklega um hvað hann var heppinn að eiga fjögur yndisleg börn sem öll gættu hans eins og sjáaldur augna sinna eftir að Sigga amma dó, og studdu hann af mikilli tryggð gegnum erfið veikindi.
Afi fékk mikinn og góðan félagsskap um helgar þegar hann horfði á leiki með Manchester United, en undirritaður tók nú aldrei þátt í svoleiðis vegna almenns áhugaleysis á knattspyrnu. Reyndar heimsótti ég hann afar sjaldan þar sem ég var oft með hugann við aðra tímafreka hluti, nokkuð sem ég sé eftir, en dvaldi hins vegar mikið með honum síðustu daga lífs hans.
Eftir að Oddur bróðir hans veiktist alvarlega og leiðir þeirra bræðra skyldu að miklu leiti, fyllti ungur maður vel í það mikla skarð sem Oddur hafði skilið eftir og var traustur vinur afa í gegnum veikindi hans. Hann vék varla frá dánarbeði afa, þó að hann hafi loks þurft þess vegna þreytu. Vinátta hans við afa var djúp, enda fékk hann ómetanlega leiðsögn gegnum erfiða tíma hjá afa og ömmu, sem stóðu eins og klettur við bak Valda frænda.
Ég kveð nú saman þau afa og ömmu og þakka þeim kærlega allar þær góðu stundir sem ekki aðeins ég, heldur fjölskyldan öll átti með þeim, alla jóladagana á Staðarbakkanum og brúðkaup okkar Angeles á heimili þeirra fáeinum mánuðum áður en amma féll frá.
Kveðja
Sál mín fylgir þér,
unz hún nær þér að lokum
í skýjum uppi.
Að við séum að skilja,
ástin mín, þar skjátlast þér.
Fúkajabó Kíóvara (908-930), þýð. Helgi Hálfdánarson
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:42 | Facebook
Athugasemdir
Samhryggist þér Hrannar, afar eru ákaflega mikilvægar persónur og auðvitað ömmur líka. Mjög falleg minningargrein.
Rut Sumarliðadóttir, 9.3.2009 kl. 14:05
Sæll Hrannar,
innilegar samúðarkveðjur..ég minnist þess að hafa heimsótt Staðarbakkann í æsku og gott ef ég fékk ekki ristað brauð með osti og kavíar ofaná í fyrsta skipti á ævinni - nokkuð sem mér þótti frekar framandi.
Kveðja, Hemmi
Hermann Rafn (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 14:10
Sendi þér innilegar samúðarkveðjur
Kristbjörn H.
Kristbjörn H. (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 17:55
falleg grein hjá þér Hrannar um afa okkar. Sakna hans.
Oddur Ingi (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 19:17
Rut: Kærar þakkir
Hemmi: Já, ég var búinn að gleyma því að ég skrapp stundum með mína bestu vini heim til þeirra afa og ömmu. Gott að þú skulir hafa kynnst einhverju spennandi eins og kavíari og osti.
Kristbjörn: Takk.
Oddur Ingi: Takk. Söknuður er reyndar ein af fallegri gjöfum sem manneskjur geta gefið, bæði sár og ljúf í senn.
Hrannar Baldursson, 9.3.2009 kl. 19:49
Ég sendi innilegar samúðarkveðjur mínar Hrannar minn.
Hilmar Gunnlaugsson, 9.3.2009 kl. 20:03
Sæll Hrannar og takk fyrir góða minningargrein um pabba. Þú rifjar upp marga skemmtilega hluti. Þetta var góð og falleg jarðarför í dag.
Atli Þór Þorvaldsson (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 20:11
Samhryggist þér innilega Hrannar minn.
Blessuð sé minning afa þíns.
Ómar Ingi, 9.3.2009 kl. 20:21
Ég samhryggist þér innilega, Hrannar. Þetta var mjög falleg minningargrein og synd að Mbl. skyldi ekki birta hana alla.
Guðmundur Sverrir Þór, 9.3.2009 kl. 20:30
Hæ Hrannar. Þetta er fallega skrifað hjá þér og margt sem rifjaðist upp fyrir mér þegar ég las greinina. Afi hefði haft gaman af þessari lesningu og jafnvel tel ég að hann hafi nú þegar lesið hana.
Takk fyrir Hrannar.
Kveðja,
Valdi frændi.
Valdi (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 20:40
Mínar innilegustu samúðarkveðjur, Hrannar. Ég hitti Þorvald aðeins tvisvar, þá bæði sykursjúkann og hjartveikann, en ég skynjaði þann lífskraft sem í honum bjó. Ég veit að hanns er sárt saknað.
Ragnhildur Kolka, 9.3.2009 kl. 20:40
Innilegar samúðarkveðjur, til þín og þinna, Hrannar minn.
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 21:43
falleg minning hrannar og samúðarkveðjur frá mér. afi þinn hefur verið dugnaðarforkur og séð fyrir sér og sínum af alúð, eins og hans kynslóð gerði af fremsta megni. honum fannst hann greinilega ríkur maður og náði háum aldri.
þetta með manchester united afgreiði ég sem tæknileg mistök.
kv, arnar
arnar valgeirsson, 9.3.2009 kl. 23:30
Ég samhryggist þér Hrannar innilega, minningargreinin þín er góð og sýnir að þér þykir vænt um fólkið þitt.
Bestu kveðjur,
Sóldís Fjóla
Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 10.3.2009 kl. 08:39
Fallegar hugsanir verða blóm við híbýli framliðinna á hinmnum.
Vonandi kemst hann afi þinn til elskunnar sinnar í gegnum ´lómastóðið eftir hugsanir hans sjálfs til hennar.
Fallega skrifað og af innileik.
Samúðarkveðjur til þín en hamingjuóskir til afa þíns.
Þú skilur mig
Miðbæjar
Bjarni Kjartansson, 10.3.2009 kl. 09:44
Ég samhryggist þér með afa þinn.
Hafliði Ingason (IP-tala skráð) 10.3.2009 kl. 12:59
Ég votta samúð.
Marinó G. Njálsson, 11.3.2009 kl. 13:05
Votta þér og þínum samúð vegna fráfalls afa þíns. Guð blessi ykkur öll.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 11.3.2009 kl. 15:08
Kærar þakkir fyrir kveðjurnar.
Hrannar Baldursson, 11.3.2009 kl. 20:49
Ótrúlega falleg minningargrein hjá þér Hrannar minn :) Örugglega margt sem rifjast upp fyrir okkur frændsystkinum við lesningu hennar :) Þú ert frábært penni og kemur öllu því sem skiptir máli vel frá þér :)
Afi sagði mér einhvern tíma líka, reyndar fyrir stuttu að honum hefði langað að verða kennari, hann hafi einhvern tímann leyst af við kennslu og fannst það frábært:) Við þetta var hann að ýta mér út í kennarafræðina eins og bæði Bjöggi og Sigga gerðu, honum til mikils stolts :) Eins mikils stolt og öll önnur börn hans hlutu af hans hálfu...
ótrúlega var gaman að eiga afa eins og afa Valda :) Held að við séum öll meðvituð um þau forréttindi að hafa kynnst manni sem honum :) Sakna hans sárt og þykur ofboðslega vænt um hann :)
Takk fyrir frábæra grein :)
Aldís (IP-tala skráð) 12.3.2009 kl. 10:15
Takk Aldís.
Hrannar Baldursson, 12.3.2009 kl. 10:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.