10 bestu kvikmyndir ársins 2008

 

titanic.jpg

 

Þar sem ég hef ekki enn séð þær kvikmyndir sem líklegastar eru til óskarsverðlauna fyrir árið 2008, sem koma reyndar flestar út í desember, mun ég að sjálfsögðu einungis velja úr þeim myndum sem ég hef þegar séð. Halo Ef ég ætlaði mér að afla vinsælda og gera pólitísk réttan lista um bestu myndirnar, yrðu sjálfsagt The Dark Knight og Wall-E á toppnum, því að þær voru vinsælar og almennt vel tekið. Hins vegar hef ég ekki áhuga á að þóknast neinum og lista bara þær myndir sem ég fékk sjálfur mest út úr á árinu sem er að líða og hafa framleiðsluárið 2008 stimplaðar á sig.

Íslenskar myndir komust ekki á listann, enda Mýrin sem ætti vel heima ofarlega á slíkum lista kom út 2006 og önnur góð íslensk kvikmynd, Astrópía, kom út 2007. Þær sem ég hef séð á árinu 2008 finnst mér ekki verðskulda að komast inn á listann. Auðvitað vantar evrópskar, asískar og Indverskar myndir á listann, því þær berast okkur mun síðar en það sem Hollywood dælir til okkar á færibandi. Það er því eðlilegt að bandaríska draumaverksmiðjan eigi flestar myndir á þessum lista.

Einnig sá ég nokkrar heimildarmyndir, sem ég ætla reyndar ekki að telja með sem kvikmyndir, en deila má um hvort að sú höfnun sé réttlætanleg. En sú heimildarmynd sem mér fannst merkilegust var Man On Wire, sem fjallar um franskan mann sem dreymdi um það, frá því að hann sá fyrst teikningar af tvíburaturnunum í New York, fyrir byggingu þeirra, að dansa línudans á milli þeirra einhvern tíma á ævinni, og hann var tilbúinn að deyja fyrir þennan draum.

Smelltu á fyrirsagnir til að lesa rökstuðning fyrir dómi mínum um viðkomandi kvikmynd.

 

10. besta: Red

Red

Frábært spennudrama þó að uppbyggingin sé afar hæg og sviðsmyndin hógvær. Brian Cox leikur fyrrverandi hermann sem misst hefur eiginkonu sína og tvo syni í miklum harmleik. Bilaðir unglingar koma aftan að honum þegar hann er í veiðitúr með hundi sínum, Red, og skjóta hundinn í hausinn. Gamli maðurinn leitar réttlætis og vekur upp miklu fleiri drauga en hann gerði ráð fyrir.

 

9. besta: In Bruges

Spennu og gamanmynd um tvo leigumorðingja sem njóta þess að vera í fríi í Belgíu eftir misheppnað launmorð og tekst með þeim afbragðs vinátta. Reyndar leiðist öðrum þeirra hræðilega en hinum finnst gaman. Málin flækjast þegar yfirmaðurinn sendir öðrum þeirra skipun um að drepa hinn.

 

8. besta: Get Smart

getsmart-final-poster-big

Ótrúlega fyndinn og vel gerður farsi um leyniþjónustumanninn Smart, sem loks fær tækifæri til að gera annað en að greina vandamál niður í smæstu öreindir, og fær að spreyta sig sem alvöru njósnari, - en býr því miður oft til fleiri vandamál en hann leysir.

 

7. besta: Burn After Reading

BurnAfterReadingPoster

Litskrúðugar persónur gera þessa kolsvörtu kómedíu um fáfræði og fordóma að prýðis skemmtun. Brad Pitt er sérstaklega ferskur í sínu hlutverki. George Clooney er verulega fyndinn og John Malkovich svellkaldur. Coen bræðurnir kunna ekki að klikka.

 

6. besta: The Dark Knight

DarkKnightPoster

Fyrsta ofurhetjumyndin sem reynir að láta taka sig jafn grafalvarlega og ef um sannsögulega mynd væri að ræða. Vissulega áhugaverð tilraun með sérlega skemmtilegum leik frá hinum heitna Heath Ledger. Samt gengur myndin ekki alveg upp, því að forsendur breytinga hjá einni mikilvægustu persónunni ganga ekki alveg upp. Ekki besta ofurhetjumynd ársins. Myndin var mikið töluð upp og talað um að ég hlyti að hafa misst af einhverju mikilvægu þegar ég sá hana, því mér fannst Batman Begins betri. Þannig að ég lét til leiðast, fór á hana í IMAX bíóið í London, og hún var einfaldlega ekkert betri. Mér hálf leiddist í seinna skiptið satt best að segja, enda hafði ég náð sögunni við fyrsta áhorf.

 

5. besta: Wall-E

Pixar endurtekur leikinn frá Ratatouille og framleiðir teiknimynd sem er á mörkum þess að vera listrænt stórvirki. Þemað er náttúruvernd, bundið inn í ástarsögu vélmenna sem ferðast um geiminn til að bjarga mannkyninu og Jörðinni frá glötun. Þó að Wall-E sé listræn og falleg, þá get ég ekki hugsað mér að horfa á hana aftur. Ég reikna með að Wall-E verði valin besta teiknimynd ársins á óskarnum, en það þýðir samt ekkert endilega að hún muni lifa lengst allra teiknimynda ársins. Kem síðar að því.

 

4. besta: Kung Fu Panda


Pönduna Po dreymir um að verða Kung-Fu hetja. Sem starfsmaður á núðluhúsi föður síns er það fjarlægur draumur þar til örlögin skjóta honum í stöðu Drekastríðsmannsins. Sagan er frekar einföld, en persónurnar afar skemmtilegar og þá sérstaklega Po í meðförum Jack Black og þjálfarinn hans Shifu (Dustin Hoffman).

 

3. besta: Mamma Mia!

Nú grunar mig að sumir lesendur hljóti að hneykslast á að ég velji létta grín og söngvamynd sem eina af bestu myndum ársins, en sannleikurinn er sá að það var dúndurgaman að horfa á þessa mynd í bíó, þrátt fyrir kjánahrollinn sem ég fæ ennþá þegar Pierce Brosnan tekur lagið. Meryl Streep hélt hins vegar myndinni uppi með glaðlegum leik og frábærum söng, og aukaleikararnir hver öðrum betri. 

 

2. besta: Iron Man

Besta ofurhetjumynd ársins að mínu mati. Robert Downey Jr. og Jeff Bridges sýna stórleik, og Gwyneth Paltrow sýnir óvenju góðan leik sem aðstoðarkona Tony Stark. Tæknibrellurnar eru pottþéttar og sagan frekar einföld, en þetta er ofurhetjumynd sem tekur sig hæfilega alvarlega og virkar 100%.

 

Besta mynd 2008...

 

 

...er...

 

 

Bolt

Bolt

Teiknimynd frá Walt Disney um hvutta sem uppgötvar að hann er ekki sú ofurhetja sem hann hefur alltaf haldið að hann væri. Myndin sem ég sá var í þrívídd og afbragðs vel talsett á íslensku - en ég hef satt best að segja lengi haft fordóma gagnvart talsetningu á bíómyndum - en í þetta sinn virkaði þetta. Allt smellpassar saman, létt kómedía í bland við hasar og spennu - og að auki hef ég aldrei séð jafn góða teiknimyndagerð þar sem margar persónur virðast raunverulegar - sérstaklega dúfurnar. 

Þannig er listi minn yfir 10 bestu kvikmyndir ársins 2008. Sjálfsagt mun hann breytast með tíð og tíma eftir að ég hef séð enn fleiri kvikmyndir úr öllum heimsálfum frá þessu mikla kreppuári. 

 

Gleðilegt nýtt kvikmyndaár 2009!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Við erum oftar en ekk ósammála en þessi listi er þinn og ekkert meira um hann að segja nema að á honum er Mama Mia mikið lýti

Annað hvar sástu kvikmyndina RED ?

Ómar Ingi, 2.1.2009 kl. 19:49

2 Smámynd: Hrannar Baldursson

Red kom út á DVD 28. október síðastliðinn:

http://www.amazon.com/Red-Amanda-Plummer/dp/B001CT8762/ref=pd_bbs_sr_2?ie=UTF8&s=dvd&qid=1230929958&sr=8-2

Hægt að fá hana notaða á 6 dollara.

Hrannar Baldursson, 2.1.2009 kl. 21:01

3 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ómar: Mamma Mia er vanmetin snilld.

Hrannar Baldursson, 2.1.2009 kl. 21:03

4 identicon

http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2008/12/30/brudguminn_a_medal_theirra_bestu/

Stundum þarf útlönd til að hjálpa okkur að meta það sem vel er gert hér heima - eða alltaf...!?

brúðguminn (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 22:37

5 Smámynd: Ómar Ingi

Brúðgumin er fín mynd en ein af þeim bestu er afar langt frá raunveruleikanum nema ef þú ert með Mama Mía á listanum þínum.

Þannig að Don tekur þetta til sín og takk fyrir Red

Ómar Ingi, 3.1.2009 kl. 13:42

6 Smámynd: Róbert Björnsson

Fyrir utan Dark Knight og gullmola eins og Milk, Iron Man og Burn after Reading fannst mér þetta kvikmyndaár frekar slappt.  Gríðarleg vonbrigði með Indiana Jones, X-Files og Quantum of Solace.

Það verður spennandi að sjá hvað nýja árið býður uppá...margar áhugaverðar myndir framundan. 

Róbert Björnsson, 4.1.2009 kl. 18:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband