Avatar (2009) *****

"Avatar" ætti að fá 15 tilnefningar til Óskarsverðlauna og vinna þær allar. Hugsaðu "Lord of the Rings", "Star Wars", "Lord of the Rings," og svo aftur um "Star Wars". Bættu síðan við góðum skammti af "Terminator" og "Aliens" hasar, og síðan smá rómantík og stórfengleika í anda "Titanic". Þá kemstu kannski nálægt því að ímynda þér hvernig mynd "Avatar" er. Efast samt um það. Kíktu á sýnishornið neðst á þessari síðu til að sjá hversu flottar brellurnar eru í tvívídd, en þær ná ekki að grípa þá fegurð og dýpt sem þrívíddin gefur myndinni. Þú verður að sjá þessa í bíó.

Ég hef aldrei áður gefið kvikmynd fimm stjörnur hérna á blogginu, þó að vissulega séu til kvikmyndir sem jafnast á við "Avatar" í gæðum og hugmyndaauðgi.

Þetta er fyrsta kvikmynd James Cameron síðan "Titanic" sló algjörlega í gegn árið 1997. Reyndar hefur hann leikstýrt einhverjum sjónvarpsþáttum og heimildarmyndum sem fjallað hafa um neðansjávarrannsóknir hans, en hann hefur unnið þrekvirki í rannsóknum á dýpi hafsins og þeim furðuverum sem hrærast þar.

Ljóst er að þessi einstaka reynsla nýtist vel við gerð "Avatar" sem umfram allt fjallar um þá virðingu sem náttúran verðskuldar sem dularfull lífvera í sjálfri sér, og þann hroka mennskra afæta sem ógnar þessu jafnvægi til þess eins að sækja verðmæta steintegund.

Sam Worthington stimplar sig almennilega inn sem stórstjarna, en hann stal senunni eftirminnilega í sumar frá Christian Bale í "Terminator: Salvation" og er greinilega kominn á hörkuskrið. Tölvubrellurnar eru það flottasta sem sést hefur og gegna í hverju einasta atriði mikilvægi hlutverki í hinu stóra samhengi. Þar að auki er myndin í þrívídd sem virkar ekki þreytandi, heldur magnar upp reynsluna, þannig að maður finnur fyrir verulegum hæðum og getur auðveldlega misst jafnvægið þar sem maður telur sig öruggan í sæti sínu.

Gaman er að sjá Sigourney Weaver aftur í hlutverki sambærilegu við Ripley úr Alien seríunni, og einnig gaman að því hvernig þessi heimur passar fullkomlega í heim þeirra ágætu mynda, þar sem aðal illskan sprettur úr "Fyrirtækinu" sem ræður til starfa málaliða stjórnaða af hinum miskunnarlausa, vöðvastælta og helþrjóska hershöfðingja Miles Quaritch (Stephen Lang) og hvítflibbanum Parker Selfridge (Giovanni Ribisi), en þessir tveir berjast pólitísku stríði gegn vísindamanninn Grace Augustine (Sigourney Weaver) sem hefur meiri áhuga á að læra um heim plánetunnar og íbúa hennar, en að ryðja þeim miskunnarlaust úr vegi.

Jake Sully (Sam Worthington) kemur til sögunnar þegar tvíburabróðir hans er myrtur. Jake er lamaður fyrir neðan mitti og fyrrum hermaður, og lendir því í þeirri stöðu að taka hlutverk bróður síns, sem er að stjórna svipmynd (avatar)  sem ræktuð hefur verið með samspili hans eigin gena og gena úr Na'vi, þeim verum sem eru ráðandi á plánetunni Pandora og lifa í sátt við náttúruna. En rétt eins og sumir íslenskir stjórnmálamenn og auðkýfingar vita, að sama er hvaðan gott kemur, á að ryðja þessum Na'vi kynþætti úr vegi til að ná valdi á náttúruauðlindum plánetunnar.

Jake Sully fer inn í þennan heim sem hálf mannvera og hálfur Na'vi, en hann stjórnar huga verunnar frá nokkurs konar líkkistu þar sem hann tengist ræktaða risanum með einhvers konar þráðlausu neti. Jake er rétt lentur á plánetunni þegar risavaxin dýr reyna að drepa hann, og er bjargað af Na'vi prinsessunni Neytiri (Zoe Saldana), og fær þannig aðgang að þekkingu þessa kynþáttar, sem hann að sjálfsögðu notar til að gefa hinum mennska her mikilvægar upplýsingar.

Þegar kemur að vali hans til að velja á milli eigin kynþáttar og Na'vi, upplifir hann sig sem geimveru fasta á milli tveggja heima. Hann þarf að endurmeta alla þá þekkingu sem hann hefur nokkurn tíma aflað sér sem mannvera og bera hana saman við þetta nýja líf, og velja á milli þeirra. Ekki allar manneskjur eru góðar eða illa, né eru allir Na'vi góðar eða illar verur, heldur eru sambönd milli allra þessara ólíku persóna vel upp byggðar og manni stendur alls ekki á sama um hvað verður um þær.

Við kynnumst hinum kalda og tæknisýrða heimi mannvera og berum saman við hinn undraverða og náttúrusýrða heim Na'vi, og sjáum að þetta er sami hluturinn, fyrir utan að mennirnir þurfa að eyðileggja til að byggja upp eigin auð, en Na'vi viðheldur til að byggja upp sameiginlegan auð allrar plánetunnar.

Mannkynið er í hlutverki útrásarvíkinga, en Na'vi eru mótmælendur sem hafa ekki bara pottar og pönnur í höndunum, heldur vinna með furðuverum eins og drekum, risavöxnum nashyrningum með hamarstrýni, og eru í beinu netsambandi við guð plánetunnar, sem inniheldur upplýsingar frá örófi alda, eins og lífrænt Internet.

Hasarinn, hinn nýi heimur Pandoru, persónusköpunin, handritið, leikstjórnin, leikurinn, tónlistin, förðunin, litirnir, takturinn, skrímslin, drekarnir og þrívíddin, tæknibrellurnar; allt gengur fullkomlega upp. James Cameron hefur jafnað þau afrek sem ég hef verið hrifnastur af frá hans hendi: "The Terminator" og "Aliens". 

Ég valdi að sjá myndina ótextaða í þrívídd. Sat á fremsta bekk og fannst það gott í troðfullu kvikmyndahúsinu. Aldrei þessu vant var frekar þægilegt að sitja á fremsta bekk, enda hægt að halla sætinu aftur. Myndin er tveir tímar og 42 mínútur að lengd. Mér fannst hún nákvæmlega jafn löng og hún átti að vera. Þetta er ein af þessum myndum sem maður þarf að sjá aftur og aftur.

Ég meina, kvikmynd þar sem aðalhetjan flakkar hálfsofandi og þunglyndur milli staða í hjólastól og verður síðan að blárri og málaðri frelsishetju í anda William Wallace, sitjandi á fljúgandi dreka með gríðarstóra vélbyssu, stekkur af drekanum og upp á hann aftur til að koma fyrir handsprengjum á vel völdum stað, og að maður sættir sig við þennan söguheim og getur tekið hann alvarlega, er afrek í leikstjórn sem seint verður endurtekið. 

Viðbót: Nóttina eftir áhorfið dreymdi mig marga litríka og skemmtilega drauma, sem ég tel að séu "Avatar" að þakka. Annars var ég að velta fyrir mér eyjunum sem fljóta í skýjunum, og varð þá hugsað til Gulliver's Travels og eyjunnar Laputa sem hann heimsótti í einu af ferðalögum sínum. Þessi hugmynd birtist aftur í teiknimynd eftir Hayao Miyazaki "Laputa: Castle in the Sky" þar sem tvö ungmenni þurfa að fljúga gegnum þykkt skýjaþykkni til að nálgast svífandi eyju. Einnig minntu skrímslin og skepnurnar, auk umfjöllunarefnisins á myndheima Miyazaki, og er ég nokkuð viss um að James Cameron hljóti að vera mikill aðdáandi þessa meistara teiknimyndanna, án þess að ég viti það frá fyrstu hendi. 


mbl.is Um 30 milljarðar í kassann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Gætum bara ekki verið meira sammála núna DON , búin að sjá hana 2 svar og á eftir að fara nokkrum sinnum aftur.

Ómar Ingi, 21.12.2009 kl. 11:09

2 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Takk fyrir þetta. Ég hlakka enn meir til að sjá myndina núna :)

Guðmundur St Ragnarsson, 21.12.2009 kl. 13:50

3 identicon

Ertu semsagt að segja Avatar sé betri en Citizen Kane, Tokyo Story, Floating Weeds, Rashomon, Five Easy Pieces et cetera? Öll Óskarsverðlaunin? Semsagt líka besta leikkona í aukahlutverki? Kvikmyndasagan er ekki búin.

Marvin (IP-tala skráð) 21.12.2009 kl. 16:42

4 Smámynd: Hrannar Baldursson

Marvin: nei, ég er ekki að segja það, enda hef ég ekki gagnrýnt þessar myndir á þessari bloggsíðu.

Hrannar Baldursson, 21.12.2009 kl. 16:51

5 identicon

Einmitt, þú gagnrýnir þ.e.a.s. endursegir fléttuna og upplifun þín - telst varla film criticism í minni bók. Þú ert að upphefja þessa kvikmynd svo mikið að ég fékk klígu. Afsakaðu, en meina hvernig væri að ,,gagnrýna" aðrar kvikmyndir heldur en ,,mainstream" - Hollywood studio myndir. Þær eru góðar svo sem, þú lýsir þessari mynd nánast sem mestu snilld allra tíma; notar Star Wars og LOTR til samanburðar máli þínu til stuðnings sem mér finnst pínu varhugavert enda LOTR film adaption: Reception studies til dæmis.

Marvin (IP-tala skráð) 21.12.2009 kl. 16:56

6 Smámynd: Hrannar Baldursson

Marvin: ég segi aðeins mína skoðun á þeirri tegund kvikmynda sem ég hef mestan áhuga á. Hugsanlega er þetta ekki kvikmyndagagnrýni samkvæmt viðmiðum fagmanns í kvikmyndafræðum, heldur er ég fyrst og fremst að segja þeim sem á vilja hlusta hvað mér fannst um viðkomandi mynd, án þess að ég hafi nokkra sérfræðiþekkingu á kvikmyndum, aðra en óseðjandi áhuga sem áhorfandi góðra mynda. Ég tek heldur ekki alsherjarmælikvarða á gæði kvikmynda alltof alvarlega og dettur ekki í hug að bera saman grínmynd og dæma sem glæpamynd eða öfugt. 

Sem ævintýramynd og vísindafantasía jafnast "Avatar" á við "Star Wars" og "Lord of the Rings". Þarna hefurðu einfaldan samanburð á samskonar kvikmyndum. Hún jafnast ekki á við "Citizen Kane" eða "Rashomon," enda allt önnur gerð kvikmynda. "Citizen Kane" er sjálfsagt besta rannsókn á manngerð og persónuleika sem kvikmynduð hefur verið, og "Rashomon" braut blað í frásagnatækni þegar hún sagði sömu sögu frá ólíkum sjónarhornum.

Hrannar Baldursson, 21.12.2009 kl. 17:41

7 Smámynd: Ólafur N. Sigurðsson

Eina sem að mér fannst slæmt við avatar, var að grunnsagan sem slík hefur verið sögð svo oft áður, og því var hún gífurlega ófersk, þetta var beisiklí Pókahontas með smá skvettu af Braveheart smellt útí geim. En þetta er samt kickass mynd.

Ólafur N. Sigurðsson, 21.12.2009 kl. 21:00

8 Smámynd: Billi bilaði

Ég er ekki sammála, þó að börnin séu það kannski.

Sagan var ekki nógu sterk, og ég fékk of oft tilfinninguna að ég væri að horfa á hið skelfilega dansatriði í Matrix 2 sem steindrap þá mynd. Einnig eru aðal vondukallarnir algerar steríótýpur - og aðal-aðal tekinn beint úr Aliens (mynd 2), sem Cameron leikstýrði líka.

Sammála með Sigourney Weaver - æðislegt að fá hana á tjaldið aftur. (Horfði á Aliens 3 daginn eftir Avatar, og skemmti mér betur - sérstaklega að því leiti að flottheitin voru ekki að trufla söguna.

Myndin er þó hrikalega vel gerð, og stóru strumparnir flottir. Þrívíddin er rosaleg, og gefur fyrirheit um framtíð kvikmynda.

Avatar kemst kannski með tærnar þar sem LOTR hefur hælana, en ekki mikið meira hjá mér.

Billi bilaði, 21.12.2009 kl. 22:43

9 identicon

Hrannar, vissulega er þetta þín skoðun. Hins vegar er alltaf að gagnrýna kvikmyndir þannig að maður getur borið saman grínmynd eða glæpamynd, annars eru sumar myndir sambland þannig auðvitað er nauðsynlegt að geta dæmt allar myndir, sbr stjörnukerfið sem þú notar. Ertu að segja mér að þú myndir ekki gefa Citizen Kane fimm stjörnur á blogsíðu þinni?

It Happened One Night er screwball comedy og er frekar góð mynd. Get ég ekki borið hana saman við Godfather? Þær eru góðar myndir.

 Citizen Kane er meira en persónustúdía og Rashomon meira en bara nýjúng í frásagnartæki - enda hafa bókmenntirnar haft óáreiðanlegan sögumann lengi velog í því samhengi má nefna Caligari og það er nú kvikmynd sem koma á undan. Frásagnarmati Kurosawas í þeirri mynd er um afstæðishyggju og hversu erfitt er að nálgast sannleikann. Kvikmyndatakan er líka helvíti öflug.

 Þó svo að Lord of The Rings bækurnar séu ævintýri þá get ég alveg borið Tolkien saman við Don Quixote - það eru gæðin sem skipta máli. Ef Avatar er svona frábær ætti það ekki að skipta neinu máli hvort hún sé vísindaskáldskapur og eða ævintýri. Góð mynd er góð mynd. Var bara að hnýta í það sem þú skrifaðir: maður fékk það á tilfinningunni að þetta væri besta mynd allra tíma. Mér finnst fólk missa sig stundum. Best mynd allra tíma og besta mynd ársins er stundum sagt og það er kannski bara í byrjun janúar. Það má vel vera þetta sé besta mynd ársins - en ég efast stórlega um það. Hún er bara stórmynd frá Hollywood. Af hverju ertu ekki að fjalla um myndir frá Afríku, Suður Ameríku, Japan, Kína, Þýskalandi? 

Marvin (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 00:07

10 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ólafur: rétt er að sagan sem slík er ekki frumleg: kúreki vingast við indjána og hjálpar þeim í baráttunni við hans eigin yfirmenn.

Hins vegar er það nú svolítið frumlegt að hann tekur þátt í baráttunni með því að lifa í tveimur ólíkum líkömum, þar sem hinn sterkari er háður þeim veikari, og að fjórir ólíkir hagsmunahópar berjist um sigur í baráttunni: málaliðar, vísindamenn, innfæddir og sjálf náttúran. 

Vissulega voru sumar persónur og tæki kunnuglegar úr "Aliens", enda leikstýrði James Cameron þeirri mynd og þessi á að gerast á svipuðum tíma, einfaldlega annars staðar í geimnum, og með sams konar fyrirtæki sem hefur sams konar tækni og birtist í framtíðarsenum "Terminator" myndanna og "Aliens". Ég er nokkuð viss um að Giovanni Ribisi átti að leika sama hlutverk og John Reiter í "Aliens". 

Málið er að slíkt gífurlega flókið stórvirki eins og þetta verður að byggja á einfaldri sögu sem allir skilja og geta tekið þátt í. Það gerir hana ekki verri fyrir vikið, sérstaklega ef fjöldinn meðtekur bæði skilaboðin og nýtur myndarinnar. Persónusköpunin var nógu góð, en ekki aðalatriðið í þessari sögu. 

Ég jafna "Avatar" við myndir eins og "Star Wars", "Lord of the Rings", "Aliens" og "The Terminator" og sýnist Cameron draga margar hugmyndir úr smiðju Miyazaki, og kannast við að þessi mynd er byggð á klassískum vestrahugmyndum, en þar sem ég er afar hrifinn af góðum vestrum, góðum vísindaskáldsögum og góðum fantasíum, er kannski ekki að undra að ég sé yfir mig hrifinn af þessu stórverki kvikmyndasögunnar. 

Málið er að sagan er ekki jafn einföld og hún lítur út fyrir að vera. Ekki gleyma því að tvíburabróðir aðalhetjunnar var myrtur áður en sagan hófst, og við vitum lítið um hvernig það gerðist. Var það plott fyrirtækisins til að planta sínum eigin manni á strategískan hátt, til að ná völdum á plánetunni, eða var dauði hans tilviljun? Hvernig höfðu vísindamennirnir áður náð sambandi við Na'vi verurnar og hvernig stóð á því að vináttan á milli þeirra rofnaði?

Sagan er ekki jafn einföld og hún sýnist í fyrstu, þó svo að hugmyndir úr mörgum góðum myndum séu endurnýttar í "Avatar". 

Hrannar Baldursson, 22.12.2009 kl. 00:16

11 Smámynd: Björn Heiðdal

Flottasta strumpamynd ever!

Björn Heiðdal, 25.12.2009 kl. 11:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband