33 fyndin prófsvör

Ég veit að þetta asnast svolítið til í þýðingu, en lestu og brostu. Flest brosin verða til út frá þessum alltof stóru orðum sem ekki er auðvelt að skilja í fyrstu atrennu. Þetta er fyndnara ef við sleppum útskýringum. 

 

  1. Í Egyptalandi hinu forna var múmíubyggð mikil og þær skrifuðu allar straumfræði. Þær bjuggu í eyðimörk Söru og ferðuðust um á Kamelot. Hitastigið á Söru var þvílíkt að íbúarnir þurftu að búa annars staðar.

  2. Biblían er full af áhugaverðum persónum. Í fyrstu bók Biblíunnar, Ginness, voru Adam og Eva búin til úr eplatré. Eitt barna þeirra, Kain, spurði: "Er ég sonur bróður míns?"

  3. Móses leiddi hebresku þrælana yfir Rauðahafið, þar sem þeir gerður sér ólyft brauð sem er brauð gert án hráefna. Móses fór upp á Blásýrufjall til að sækja boðorðin tíu. Hann dó áður en hann komst nokkurn tíma til Kanada.

  4. Salómon átti þrjúhundruð eiginkonur og sjöhundruð broddgelti

  5. Grikkirnir voru vel höggvið fólk og án þeirra ættum við okkur enga sögu. Grikkir höfðu líka goðsögur. Goðsaga er kvenkyns mölfluga.

  6. Í raun og veru þá voru Hómerskviður ekki skrifaðar af Hómer, heldur af öðrum manni sem hafði sama nafn.

  7. Sókrates var frægur grískur kennari sem var duglegur að gefa fólki ráð. Það drap hann. Sókrates dó eftir ofnotkun á eitri. Eftir dauðann varð dramatísk hnignun í starfsferli hans.

  8. Á Ólympíuleikunum kepptu Grikkir í kapphlaupi, stökki, köstuðu kexkökum og kaffibaunum.

  9. Loksins höfðu Rómverjar sigrað Grikki. Sagan kallar fólk Rómverja af því að þeir voru aldrei lengi á sama stað.

  10. Júlíus Cesar slökkti á sjálfum sér á bardagavöllum Gaulverja. Ides frá Mars myrti hann af því að þeir héldu að annars yrði hann kóngur. Deyjandi, stundi hann: "Tí hí, Brútus."

  11. Neró var grimm harðstjórn sem myndi pynta þegna sína með því að spila á fiðlu fyrir þá.

  12. Jóhanna af Örk var brennd til steikar og var gerð að dýrlingi af Bernard Shaw. Loksins kom Magna Carta út sem bannaði að hengja sömu manneskju tvisvar fyrir sama afbrot.

  13. Á miðöldum voru flestir ólæsir. Mesti rithöfundur tilgangslausu aldanna var Chaucer, en skrifaði mörg ljóð og erindi og líka bókmenntir.

  14. Önnur saga segir af Vilhjálmi Tell sem skaut ör gegnum epli á meðan hann stóð á höfði sonar síns.

  15. Elísabet drottning var "Jómfrúardrottningin". Sem drottning náði hún miklum árangri. Þegar hún afklæddi sig fyrir framan hermenn sína hrópuðu þeir "húrra!"

  16. Þetta var tími mikilla uppgötvana og uppfinninga. Gutenberg fann upp á fjarlægjanlegu letri og Biblíunni. Önnur mikilvæg uppfinning var hringrás blóðsins. Sir Walter Raleigh er sagnfræðilega mikilvægur af því að hann fann upp á sígarettum og byrjaði að reykja. Og Sir Francis Drake umskar heiminn með 100 feta skærum.

  17. Mesti rithöfundur endurreisnarinnar var William Shakespeare. Hann fæddist árið 1564, á fæðingardegi sínum segja þeir. Hann vann sér aldrei inn mikinn pening og er bara frægur út af leikritum sínum. Hann skrifaði harmleiki, gamanleiki og legfjarlægingar, allt með íslömskum hrynjanda. Rómeó og Júlía eru dæmi um hetjupar. Hinsta ósk Rómeós var að gera það með Júlíu.

  18. Miguel Cervantes skrifaði á sama tíma og Shakespeare. Hann skrifaði Donkey Hote. Næsti frábæri rithöfundur var John Milto. Milto skrifaði Paradís týnd. Þá dó konan hans og hann skrifaði Paradísarheimt.

  19. Ameríka byrjaði í endurreisninni. Kristófer Kólumbus var mikill siglingamaður sem uppgötvaði Ameríku á meðan hann sigldi yfir Atlantshafið. Skipin hans voru kölluð Nína, Pínta og Santa Fe.

  20. Seinna fóru pílagrímarnir yfir hafið og var það kallað Framför Pílagrímanna. Veturinn 1620 var erfiður fyrir landnemana. Margir dóu og mörg börn fæddust. John Smith skipstjóri bar ábyrgð á þessu öllu saman.

  21. Ein af ástæðum bandarísku byltingarinnar var að Englendingar settu takka í teið sitt. Þar að auki sendu landnemarnir pakka með pósti án þess að borga póstburðargjöld. Loks unnu landnemar stríðið og þurftu ekki lengur að borga skatt. Fulltrúar frá hinum upprunalegu 13 ríkjum formuðu hið Ánægða Þing. Thomas Jefferson, hreinn sveinn, og Benjamin Franklin voru tveir af þeim söngvurum sem sungu Sjálfstæðisyfirlýsinguna. Franklin uppgötvaði rafmagn með því að nudda tveimur köttum afturábak og sagði, "Hestur deildur með sjálfum sér getur ekki staðið." Franklin dó árið 1790 og er ennþá dauður.

  22. Fljótlega var stjórnarskrá Bandaríkjanna notuð til að tryggja fjandmennsku heima. Undir stjórnarskránni hlaut fólk rétt til að ganga um með bera handleggi.

  23. Abraham Lincoln varð mesta fordæmi Bandaríkjanna. Mamma hans dó í æsku, og hann fæddist í viðarskúr sem hann hafði byggt með eigin höndum. Abraham Lincoln frelsaði þrælanda með því að skrifa undir Tilskipun um afskurð kynfæra. Kvöldið 14. apríl 1865 fór Lincoln í leikhús og var skotinn í sæti sínu af einum leikaranna í kvikmynd. Tilræðismaðurinn var John Wilkes Booth, geðveikur leikari. Þetta gjöreyilagði feril Booth.

  24. Á meðan í Evrópu, var upplýsingin sanngjarn tími. Voltaire fann upp á rafmagninu og skrifaði líka bók sem hét Sælgæti.

  25. Isaac Newton fann upp þyngdaraflið. Það er sérstaklega auðvelt að verða var við það á haustin þegar eplin fara að falla af trjánum.

  26. Johann Bach samdi mörg stórfengleg tónverk og átti gríðarlegan fjölda af börnum. Á meðan æfði hann sig á gamalli þernu sem hann geymdi uppi á háalofti. Bach dó frá árinu 1750 til dagsins í dag. Bach var frægasta tónskáld heims og líka Handel. Handel var hálf þýskur, hálf ítalskur og hálf enskur. Hann var mjög stór.

  27. Beethoven samdi tónlist þrátt fyrir að vera heyrnarlaus. Hann var svo heyrnarlaus að hann samdi háværa tónlist. Hann fór í langa göngutúra um skóginn jafnvel þó að allir væru að kalla á hann. Beethoven gaf upp öndina árið 1827 og dó seinna vegna þess.

  28. Franska byltingin tókst áður en hún gerðist og skaust inn í Napóleon. Napóleon vildi fá erfingja til að erfa vald hans, en þar sem Jósefína var kapall gat hún ekki eignast börn.

  29. Sólin settist aldrei á breska heimsveldið af því að breska heimsveldið er í austri en sólin sest í vestri.

  30. Viktoría drottning var lengsta drottningin. Hún sat á þyrni í 63 ár. Hún var siðleg kona sem æfði dygð. Dauði hennar var síðasti atburðurinn sem lauk veldi hennar.

  31. Nítjánda öldin var tími margra stórfenglegra hugsana og og uppfinninga. Fólk hætti að fjölga sér með handafli og byrjaði að fjölga sér með vélum. Uppfinningin á gufubátnum varð því valdandi að net fljóts spratt upp. Cyrus McCormick fann upp á McCormick nauðgaranum, sem vann vinnu mörg hundruð manna.

  32. Louis Pasteur uppgötvaði lækningu fyrir gyðingapresta. Charles Darwin var náttúrusinni sem skrifaði Líffæri Tegundanna. Brjálaði Curie fann upp á útvarpi. Og Karl Marx varð einn af Marx bræðrum.

  33. Fyrsta heimstyrjöldin, sem var orsökuð af tilskipun aðalandar af stjórnleysingja, kom inn nýrri villu í rassgöt mannkynssögunnar.


 

Hálfbein þýðing af síðunni The List Universe: Lists with a twist - 33 Funny Exam Answers


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þessir krakkar geta verið svo fyndnir! Var búin að sjá hluta af þessu í íslenskri þýðingu en ekki allt og fannst þetta mjög skemmtilegt. Takk.

Ætlaði að kommenta á færsluna þína um fellibylinn sem þið lentuð í en það var ekki hægt, hún óvirk. Fannst hún mjög áhugaverð og "gaman" að lesa um þessa reynslu, hefði einmitt líka haldið að þetta væri bara eins og slæmt veður hérna heima, hviður upp á 35 m/sek og svona ... og gott að vita að hundurinn týndist ekki. 

Hlakka til að lesa um Dark Knight hjá þér á morgun. Ætla sannarlega að sjá þessa mynd sem fyrst.

Guðríður Haraldsdóttir, 22.7.2008 kl. 20:02

2 Smámynd: Hrannar Baldursson

Takk fyrir þetta.

Greinin um fellibylinn var bara á netinu í nokkra tíma. Þetta er ennþá viðkvæmt mál fyrir suma aðila þannig að ég ákvað að fjarlægja hana.

Þessi listi varð nú til eftir að ég sá listann þinn, þannig að þú átt nú hluta í þessum.

Hrannar Baldursson, 22.7.2008 kl. 20:22

3 Smámynd: Ómar Ingi

HAHAHAHAHA

Fullt af góðum svörum þarna

Ómar Ingi, 22.7.2008 kl. 22:37

4 identicon

Stórskemmtileg lesning, og bráðvel þýdd! Hver sem þýddi þetta á hrós skilið.

Þorbjörn Jónsson (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 00:44

5 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ómar: þetta er frekar skondið

Þorbjörn: takk fyrir hrósið

Hrannar Baldursson, 23.7.2008 kl. 01:39

6 Smámynd: Þóra

Mjög fyndið!

Þessi er frá kennara í Skotlandi: Sesar notaði systur sína sem pólitíska rækju.

Og kannast einhver við Dante Gabriel Risotto?

Þóra, 23.7.2008 kl. 12:30

7 identicon

Tíhíhí, það hlýtur að vera gaman að vera kennari þegar svona frjó svör eru í boði:)  Þú hlýtur að hafa séð litrík svör á þínum ferli, eða hvað?

Aldrei þessu vant stendur bloggið þitt fyrir sínu og lífgar upp á annars litlausan sumardag! Bíð spennt eftir gagnrýni á Dark Knight.

Hugrún Sif (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 14:53

8 Smámynd: Hrannar Baldursson

Gagnrýnin á Dark Knight kemur sjálfsagt inn um kl. 18:00, eftir vinnudaginn. Búinn að skrifa rýnina á ensku.

Hrannar Baldursson, 23.7.2008 kl. 15:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband