Af hverju skjóta þeir fótbrotna hesta, lóga hundum sem hafa bitið frá sér, en gefa spilltum bönkunum eilíft líf?

"Of mikil miskunnsemi... leiðir oftast til frekari glæpa sem reynast banvænir saklausum fórnarlömbum sem hefðu ekki þurft að vera fórnarlömb ef réttlætið hefði verið sett í forgang og miskunnsemi í annað sæti. (Agatha Christie)

Áður fyrr voru hestar einfaldlega skotnir í hausinn ef þeir voru svo óheppnir að fótbrotna. Í dag eru þeir í flestum tilfellum svæfðir. Ástæðan er einföld: það mun reynast of erfitt að bæta skaðann. Það yrði of mikið vandamál að sinna honum. Hann yrði til einskis nýtur.



Gömlum og veikum hundum er oft lógað, sérstaklega ef þeir eru farnir að þjást vegna veikinda eða elli. Það er vitað mál að þeir munu aldrei aftur verða frískir og skemmtilegir hvolpar. Óþægindin fyrir eigandann verða engu minni en fyrir hundinn. Því er þessi ákvörðun oft tekin, þó að hún sé ekki algild. Það má segja að hún sé réttlætanleg.



Einnig tíðkast það á Íslandi, rétt eins og fóstureyðingar, að eldra fólk sem þjáist mikið er hjálpað að nálgast dauðann á sársaukalítinn hátt, sérstaklega ef viðkomandi hefur ólæknandi krabbamein og fyrirsjáanlegt er ekkert annað en sársaukafullur tími til dauðadags. Viðkomandi verður þó að ákveða slíkan dauðadag sjálfur.



Íslensku bankarnir reyndust gjörspilltir og hafa gert þjóðinni meira ógagn en gagn. Samt á að halda þeim á lífi á kostnað almennings, sem veit ekki einu sinni hvað er í gangi innandyra, og þegar brotabrot af upplýsingum lekur út kemur í ljós að það er verið að vinna meira gegn almenningi heldur en með honum, og að allt skuli gera til að fela slíkar upplýsingar.

Af hverju er þessum bankastofnunum ekki einfaldlega lógað, enda eru þær ekki bara gamlar, fótbrotnar og veikar, heldur fullar grimmd og miskunnarleysis gagnvart viðskiptavinum sínum sem minna mega sín, og nýr ríkisbanki stofnaður sem byrjar einfaldlega á núlli?

Af hverju sýnir þjóðin og ríkið þessum bönkum og kúlulánaauðmönnum fyrst og fremst miskunnsemi og umburðarlyndi, en leita ekki réttlætis af sanngjarnri reiði?

Ef einhvern tíma hefur verið tími þar sem viðhorfið 'þetta reddast' á ekki við, ef einhvern tíma hefur þurft að verja þá sem minna mega sín, ef einhvern tíma hefur þurft að berjast gegn illu böli sem ógnar almannheill, bæði innanlands og erlendis frá, þá er það í dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vegna þess að á skerinu eru stjórnmál+viðskipti=spilling. Rétt eins og 1+1=2, svo lengi sem greiningardeildir bankana komast ekki í jöfnuna.

sr (IP-tala skráð) 3.8.2009 kl. 21:13

2 Smámynd: Ragnar Eiríksson

Ég er nú býsna sammála þér - skil ekki af hverju lífi er haldið í hræjum bankanna - það hlýtur að vera jafn auðvelt/erfitt að afsetja þau fyrirtæki sem fallið hafa til hræjanna.    Svo eru reyndar mörg önnur, t.d. útgerðarmenn/fyrirtæki sem haldið er á lífi í þó þau eigi það ekki skilið og myndu verða gjaldþrota við gjaldþrot bankanna.  Þá félli kvóti þeirra til ríkisins - er það ekki?    En eru annars ekki núverandi aðgerðir sambærilegar við svæfingu - það er verið að svæfa hræin og okkur en svo verður gæðingunum, t.d. útgerðarmönnum bjargað á meðan við sofum en á okkar kostnað!      Hver var að fá 122 milljóna króna niðurfellingu á skuldum (skuldajöfnun við gjaldþrota fyrirtæki)?   Ég man ekki nafnið en gæðingur er hann!    Og litlu munaði að Björgólfur Thor fengi 3 milljarða niðurfellingu - hann er í gæðingatölu líka held ég!   Þetta er ekki búið enn en er ábyggilega ástæðan fyrir því að alltaf er verið að fresta endanlegu uppgjöri bankahræjanna!

Varðandi hestana - hér úti á landi eru hestarnir í flestum tilvikum skotnir ef þeir fótbrotna - bæði er það fljótlegasta leiðin til að lina þjáningarnar og ég vildi fyrir mína parta ekki ekki horfa upp á hestinn minn sofna útaf.    Lækning á fótbroti hests er ógerleg - bara svo það sé tekið fram (þ.e svo hesturinn verði jafngóður og áður!)

Ragnar

Ragnar Eiríksson, 3.8.2009 kl. 21:31

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég er ekki sammála að þjóðin hafi sýnt bönkum og kúlulánaþegum miskunnsemi og umburðarlyndi. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 4.8.2009 kl. 00:30

4 Smámynd: Hrannar Baldursson

Jóna Kolbrún: Ekkert sýnilegt hefur verið gert ennþá. Næstum ár liðið frá Hruninu.

Hrannar Baldursson, 4.8.2009 kl. 09:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband