Fellur ríkisstjórnin?

johanna

Samfylkingarmönnum fjölgar ört sem sárnar að ekki sé rætt um mögulega aðild að Evrópusambandi, þrátt fyrir gjörbreyttar forsendur.

Verður þetta stjórninni að falli?

Ef svo er, hvernig verður næsta Ríkisstjórn skipuð og hversu traust verður hún?

Pabbi minn er ríkari en pabbi þinn

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Johann Trast Palmason

Heir  heir ég tek undir með Kjartani Maack

Auðvita á samfylkingin að slíta stjórnarsamstarfinu sem fyrst og mynda nýa meirihluta stjórn án sjálfstæðismanna sem vinnur ekki á móti þeim, bilið milli þessara flokka er of stórt og því lengri tími sem líður því verr lítur samfylkingin út þi þessu samstarfi þar sem sjálfstæðisflokkurinn er að stýra skútuni

Johann Trast Palmason, 16.10.2008 kl. 11:42

2 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Samfylkingin getur hætt í stjórn og ráðherrar hennar beðist lausnar. 

Hvinsvegar er svo, að Þingrofsrétturinne rí höndum forsætisráðherra og getur enginn annaren hann beðist lausnar fyrir Ríkisstjórn hans.

SVo er það hanns að tryggja þingmeirihluta.

Allt bullukollaraus um kosningar við þessar að stæður er ekkert annað en óvitahjal.

Þingrofsrétturinner virkur hjá forsætisráðherra og hann getur tekið inn eða rekið úr ríkisstjórnum sínum að VILLD.

Ég er þess gersamlega fullviss, að bæði VG og Framsókn eru fullviljugir til, að koma inn í ríkisstjórnarsamstarf núna í stað Samfóliðsins.  SVo eru Frjálslyndir afar frjálslyndir í þessu sem öðru.

Miðbæja´rihaldið

bendir Samfó ESB sleikjum, að það eru til alvöru fólk hér á landi en ekki bara bretasleikjur með ESB tunguna úti alla daga.

Bjarni Kjartansson, 16.10.2008 kl. 13:07

3 Smámynd: Ómar Ingi

Er það ekki nokkuð víst

Ómar Ingi, 16.10.2008 kl. 14:01

4 identicon

Ætlar Samfylkingin virkilega að slíta stjórnarsamstarfinu og krefjast þess að  við göngum sáttafús í samstarf við Breta og Hollendinga eftir allt sem á undan er gengið?! Eigum við að ræða það eitthvað eða...?

Kristbjörn H. (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 18:14

5 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Sammála miðbæjaríhaldinu

Jón Aðalsteinn Jónsson, 16.10.2008 kl. 21:24

6 identicon

Íslenskur almenningur stendur með enskum almenningi. Stjórnmálamenn og bankamenn keppast nú um aðganginn að sköttunum okkar og okurvöxtunum.

Evrópusambandið er eina vitið fyrir venjulegt launafólk sem vill hafa þokkaleg laun fyrir 40 stunda vinnudag. Möguleika á að rækja fjölskyldutengsl og ala upp börnin sín.

Rósa (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 21:32

7 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Fyrir nokkrum vikum síðan var birt skoðanakönnun, þar sem 60% kjósenda Sjálfstæðisflokksins vildu ESB aðildarviðræður. Ég held að þið áttið ykkur ekki á því að þessi tala er líklega komin í 70-80%. Samtök atvinnulífsins vilja ESB aðildarviðræður og ekki eru það nein kommúnistasamtök. Það eru nær allir Íslendingar búnir að átta sig á því að að aðild og evra er það sem stefnt skal, þótt auðvitað verðum við að fá vissa hluti í gegn í aðildarviðræðum. Hættulegast af öllu er ef Samfylkingin leiðir slíkar viðræður, en ekki við - þá myndi ég hafa áhyggjur!

Á minni skrifstofu, sem telur 13 manns. Þar af eru 7 sjálfstæðismenn, 3 samfylkingarmenn og einn frá VG og um skoðanir 2ja veit ég ekkil. Stemningin fyrir ESB aðild er hins vegar skýr, þar sem allir nema einn á skrifstofunni vilja ESB aðildarviðræður, jafnvel sá sem kýs VG. Við bræðurnir erum fjórir og allir sjálfstæðismenn og viljum allir í aðildarviðræður. Ég hitti mjög fáa, sem ekki vilja aðildarviðræður.

Ég held að Framsóknarflokkurinn og Frjálslyndir muni hugsa sig um áður en þeir fara í stjórn með Sjálfstæðisflokknum og koma þannig í veg fyrir aðildarviðræður. Það er því miður ekki vel komið fyrir okkar ágæta stjórnmálaflokki eins og er og engin leið að stinga höfðinu í sandinn, líkt og mér finnst þið tveir félagar gera, hvað það varðar.

Eins og þið vitið er ég ykkur félögum eiginlega alltaf sammála, en þarna eruð þið hreinlega á villigötum um vilja meirihluta sjálfstæðismanna.

Við þurfum á Landsfundi að halda, sem allra fyrst til að skýra þetta mál varðandi aðildina. Verði aðild hafnað enn einu sinni mun flokkurinn minnka um helming og jafnvel meira. Það fylgi kæmi síðan til baka þegar við værum komin inn í ESB. Það væri jafnvel hætta á klofningsframboði, sem hefði stuðning frá stórum aðilum innan SA og fleiri hagsmunaaðilum.

Guðbjörn Guðbjörnsson, 16.10.2008 kl. 22:25

8 identicon

Ég er sammála Miðbæjaríhaldinu um að ekkert vit sé í því að efna til kosninga núna, þegar allt er í uppnámi. En þegar um hægist finnst mér að Samfylking ætti að að rjúfa ríkisstjórnarsamstarfið, eftir að vera búin að tryggja sér stuðning meðal stjórnarandstöunnar. Þá yrði Ingbjörg Sólrún forsætisráðherra í bráðabyrðaríkisstjórn, og gæti boðað til nýrra kosninga. 

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 22:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband