Ég vil sýna forseta Íslands og íslensku þjóðinni stuðning. Hvað um þig?

 

713cb622679fcdb

 

Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, heimsótti vinnustað minn í dag ásamt forsetafrúnni og óskaði eftir að starfsmenn í fyrirtæki sem stendur svo vel og er ennþá í sókn þrátt fyrir fjármálakreppu á Íslandi, styðji við bakið á samlöndum sínum með öllum þeim ráðum sem okkur kemur til hugar.

Ég er staðráðinn í að taka þessari áskorun forsetans af fullri alvöru og gera mitt besta til að koma baráttuhug þeim og bjartsýni sem við í Marel búum yfir á þessum erfiðu tímum.

Það er satt að við sem búum á Íslandi þurfum að standa saman. Við þurfum að standa saman gegn ógnum sem að okkur steðja og koma í veg fyrir að okkar eigin veikleikar verði okkur að tjóni. 

Við verðum að þekkja það sem er gott og verðskuldað, og berjast fyrir því að hver einasta sála á þessu landi fái að njóta sín og hljóti verðskulduð tækifæri. 

Miklar breytingar eins og átt hafa sér stað í þjóðfélaginu með hruni bankanna má túlka sem hörmungar, en þær má líka túlka sem tækifæri til að gera góða hluti.

Ég hef ekki sagt mörgum frá því, en fyrir nokkrum árum gjöreyðilagði fellibylur fyrirtæki sem við eiginkona mín höfðum stofnað í Mexíkó. Þegar fellibylnum hafði slotað bankaði nágranni minn upp á og rétti mér sveðju. Það var ekkert sjálfsagðara en að verja öllum þeim degi langt fram á kvöld í að höggva trén sem lágu yfir göturnar. Slík samstaða er eitthvað sem við þurfum í dag.

Ég hvet alla sem geta að segja frá hvernig þeim hefur tekist að sigrast á erfiðleikum, sögur sem segja okkur af hverju við erum öll mikilvæg, af hverju þú ert heima þegar þú ert á Íslandi, af hverju þú berst áfram þó að á móti blási.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Þegar þú hefur velts um með hundum þá ertu undirlagður af flóm. Það þýðir ekkert að sykurhúða það. Ekki fer ég að kóa með einhverjum flóagemlingum.

Baldur Fjölnisson, 17.10.2008 kl. 00:43

2 Smámynd: Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)

Ég mæli með aðferð Hr. Geirs, hver hugsi um sig. !!!!!

Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock), 17.10.2008 kl. 01:05

3 Smámynd: Johann Trast Palmason

Ég sýni Íslensku þjóðini stuðning í verki en ekki orðum og sá stuðningur væri lítils virði ef ég berði mér á brjóst og segði hver hann væri.

En Ólafi Ragnari andliti útrasarina og ráðanda ríkistjórn íslands sé ég enga þörf fyrir að sýna stuðning enda væri það ekki að sýna þjóðini stuðning þar sem þessir menn ásamt seðlabankastjóra eru orsök og bera ábyrgð á því sem gerðist og er að gerast þó þeir gangist ekki við því og klóri í bakkann.

Johann Trast Palmason, 17.10.2008 kl. 01:34

4 Smámynd: Halla Rut

"Við verðum að þekkja það sem er gott og verðskuldað, og berjast fyrir því að hver einasta sála á þessu landi fái að njóta sín og hljóti verðskulduð tækifæri."  Nákvæmlega það samfélag sem ég vil búa í en er samt sammála Baldri hér að ofan.

Halla Rut , 17.10.2008 kl. 01:58

5 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ég veit að menn eru reiðir, og það er ég sömuleiðis, gagnvart þeim sem komið hafa þjóðinni á nöfina. En til hvers að velta sér upp úr reiðinni og láta hana blinda sig gagnvart bjartari framtíð og trufla mann frá því að lifa eigin lífi vel? Ekki veltur okkar eigin hamingja á gjörðum annarra, er það?

Hrannar Baldursson, 17.10.2008 kl. 07:35

6 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Þá Ólafur sigraði í kosningum, neytti ég réttar míns sem þegn Íslands.

Ég fór á fund þáverandi forseta og bar upp við hana, ósk, sem er heimil að ævafornum sið.  Bað hana að fá að vera í Þingi við hana jafn lengi og hún væri á dögum og Ólafur gengdi embætti og ég fái því að líta á hana sem minn forseta.

Hún varð við þessari bón minni.

Því er ég stoltur af forseta MÍNUM.

Miðbæjaríhaldið

formlegur að vanda.

Bjarni Kjartansson, 17.10.2008 kl. 10:04

7 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Við eigum eftir að þurfa að standa saman í endurreisnarstarfinu, en það starf er ekki hafið og hefst ekki meðan núverandi ráðamenn setja þá sem tóku þátt í að hanna hrunið í að verja rústirnar.

Magnús Sigurðsson, 17.10.2008 kl. 11:26

8 Smámynd: Heidi Strand

Góð tillaga, en fyrst verðum við að gera hreint eftir veisluhöldunum.
Svo verðum við að gera við.

Loftum út og mætum á Austurvelli á morgun laugardag kl. 15.

Heidi Strand, 17.10.2008 kl. 11:31

9 identicon

Nei kallinn. Nýtt fólk nýja aðferðafræði. Þá er ég til í slaginn...Allt byggist þetta á trausti.

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 11:57

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég vil sýna hinum almenna borgara stuðning....hinir hafa alltaf komist af án mín og gera það sjálfsagt áfram.

Sigrún Jónsdóttir, 17.10.2008 kl. 13:53

11 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Já greyið kallinn er að fá vondann skell hérna. Hann reyndi nú bara að auka tækifæri íslendinga í útlöndum. Fyrirtæki notuðu tækifærin einfaldlega illa og ekki er hægt að sakast við Ólaf í þeim efnum.

Jón Gunnar Bjarkan, 17.10.2008 kl. 14:28

12 Smámynd: Púkinn

Ég hef aldrei litið á Ólaf sem forseta minn og yfirstandandi atburðir breyta engu um mitt álit.

Púkinn, 17.10.2008 kl. 14:51

13 Smámynd: Dunni

Þessi fróma ósk þín virðist lenda í misrrjósamri jörð. En að sálfsögðu tek ég undir þín orð og sýni forseta mínum, fósturjörð og þjóðinni minni fullan stuðning. Bæði í orði  og verki.

Ólafur Ragnar var mikill stuðningsmaður útrásarinnar. Hann hélt starfi Vigdísar Finnbogadóttur áfram að greiða fyrir og koma á viðskiptum milli Íslands og annarra landa.  Hann var bjartsýnn. Nákvæmlega eins og íslensk stjórnvöld.  En hann á engag þátt í þeirri lagasetningu sem gerði gullkálfunum mögulegt að leika sér óhindrað og veðsetja þjóðarbúið upp fyrir eyru.  Hann skrifaði náttúrulega undir lögin. Kannski hefði hann betur látið það ógert. Að því leyti er hann samábyrgur Davíð og Halldóri.

En það er alveg sama hvernig menn reyna klína ábyrgðinni hver á annan. Endanleg ábyrgð er hjá löggjafarvaldinu, framkvæmdavaldinu og Seðlabankanum.  Því miður.

Dunni, 17.10.2008 kl. 15:47

14 identicon

Heimsækir forsetinn eingöngu vinnustaði sem gengur vel?  Ætli hann sé búinn að heimsækja bankana og stappa stálinu í þá starfsmenn sem þar eru eftir?  Ég bara spyr.

Gudny (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 17:10

15 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ég sé nákvæmlega ekkert athugavert við útrás íslenskra fyrirtækja sem hafa raunverulegar vörur að selja og gefa viðskiptavinum sínum tæki til að bæta sinn rekstur töluvert. Það athugaverða er hins vegar þegar fólk eyðir um efni fram án þess að gefa alvöru verðmæti til baka.

Forsetinn hefur mikinn áhuga á að sameina þjóðina á þessari stundu, hvetja fólk áfram, opna möguleika fyrir þá sem þurfa á möguleikum að halda. Hvernig hægt er að sjá það sem eitthvað annað en lofsvert framtak er ofar mínum skilningi.

Hrannar Baldursson, 17.10.2008 kl. 20:04

16 Smámynd: Hvítur á leik

Óli Grís ætti að koma sér heim... segja sig frá embættinu eða lenda á jörðinni aftur því hann er ekki í veruleika sem við hin þekkjum. Enda er hann með dísins sína sér við hlið sem bara vill einkaþotur og fínerí...

Helvítis hræsni... Hvað er hann að reyna stappa í okkur stálið, búinn að veltast um eins og rónverskur geldingur í partýi?

Hvítur á leik, 17.10.2008 kl. 21:10

17 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Ég tek í aðalatriðum undir orð Jóhanns Pálmasonar. Ólafur Ragnar lítur út fyrir að hafa verið handbendi stjórnvalda og ætla að halda því áfram. Ég get þess vegna ekki sýnt honum stuðning. Mér finnst hann bara alls ekki eiga það inni hjá mér eða þjóðinni yfir höfuð!

Svo hvet ég alla til að sýna íslensku þjóðinni stuðning og mæta á Austurvöll á morgun (18. okt) og mótmæla.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 17.10.2008 kl. 21:19

18 Smámynd: Þórdís Guðmundsdóttir

Fyrirgefðu en nei, þessi maður hefur staðið og stendur enn þá fyir allt önnur sjónarmið en eiga samleið með mér og mínum. Því miður.

Þórdís Guðmundsdóttir, 17.10.2008 kl. 22:46

19 identicon

Ég mun gera allt er í mínu valdi stendur til að hjálpa til og ég tel mig vera byrjaða.  En það væri bara allt í lagi mín vegna ef Óli væri bara heima.  Ég get bara ekki stutt hann.  Hann fór frá þjóðinni til auðmannanna. Hann neitaði að samþykkja fjölmiðlalögin.  Það var svo til þess að þessir menn eignuðust fjölmiðla sem bökkuðu eigendur sína upp.

Kannski breytist þessi skoðun mín fljótlega. En akkúrat núna þá bið ég Ólaf bara að vera heima.

Hafrún (IP-tala skráð) 18.10.2008 kl. 00:25

20 identicon

Hvítur á leik...............

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 18.10.2008 kl. 22:19

21 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

100% sammála Hrannar

Sigurður Þorsteinsson, 20.10.2008 kl. 03:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband