10 uppáhaldslögum safnað saman á laugardagskvöldi

Í einu hádeginu um daginn var ég að ræða við félaga minn um tónleika. Vinur minn stakk upp á að við skelltum okkur á Rolling Stones í ágúst. Ég er ekki aðdáandi þeirra en var samt nokkuð heitur fyrir því að fara, en vinur minn er mikill aðdáandi þeirra og mér finnst einstaklega gaman að samgleðjast vinum mínum. Samt ákvað ég að fara ekki. Þetta varð til þess að ég íhugaði hverjir þyrftu að koma saman til að ná mér sem virkilegum aðdáanda á tónleika. Það eru bara tvær hljómsveitir sem koma til greina. Queen og The Beatles. Ljóst er að ekki á ég mikla framtíð fyrir mér á tónleikum. Ég á mér mörg uppáhalds lög með báðum hljómsveitunum, sem ég gæti auðveldlega fyllt listann með, en hef ákveðið að hver hljómsveit fái bara eitt lag á listanum. 

Queen var snilldar hljómsveit sem blandar röddum og rokki saman á einstakan hátt. Meistaraverk þeirra er og hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Fyrsta lagið fjallar um glötun sakleysis og þegar þroski ryðst inn í líf manneskjunnar eins og óargadýr.

1. Bohemian Rhapsody, Queen



Bítlarnir hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Það lag sem fastast situr og hefur gert það svo árum skiptir fjallar um þann trega sem fylgir glötuðum tækifærum; og kannski þeirri ósk að stundum væri gott að geta bakkað nokkrar klukkustundir, stundum daga, mánuði eða ár aftur í tímann til að leiðrétta eigin mistök.

2. Yesterday, The Beatles



Charlie Chaplin er þekktastur fyrir frábærar kvikmyndir sem ruddu brautina fyrir þeirri kvikmyndamenningu sem til er í dag. Það sem færri vita um Chaplin er hversu mikill snillingur hann var við sköpun tónverka. Eitt af lögum hans hefur lengi setið í mér. Það fjallar um þennan eiginleika okkar manneskjanna að við getum þraukað hvaða erfiðleika sem við lendum í, svo framarlega sem að okkur tekst að kreista fram eins og einu brosi, þó að súrt geti verið. Það virðist ekki skipta máli hver flytur lagið, það virkar alltaf. Rod Stewart, Michael Jackson og Robert Downey Jr. hafa sungið þetta, en mér finnst við hæfi að Josh Groban fái tækifæri til að flytja þetta fyrir okkur hérna á blogginu:

3: Smile, Charlie Chaplin 



Næsta lag finnst mér frábært í flutningi Gary Moore. Það fjallar um tregann sem fylgir minningum um brostna ást.

4. Still Got the Blues, Gary Moore

Fyrir mistök setti ég þetta lag sem er á eftir inn, en ég var einnig að kíkja eftir hvort að Friday On My Mind væri til á YouTube í flutningi Gary Moore - sem mér finnst alveg frábært. Í stað þess fann ég þetta lag (ekki sömu gæði):



Næsta lag get ég hlustað á endalaust. Sungið er um ástarlög og áhrif þeirra á þann sem hlustar, sérstaklega nostalgíu um það sem er liðið. 

5. Yesterday Once More, The Carpenters 

Næsta hljómsveit á fjölmarga smelli, en sá sem situr hæst í huga mér ákkúrat núna er þessi, sem fjallar um eina af þessum dygðum sem getur verið svo erfitt að ná stjórn á. Stundum þráir maður að geta farið aftur í tímann, en svo gerist það líka að maður getur varla beðið eftir einhverju sem maður þráir. Þá þarf maður þolinmæði. Ég er frekar óþolinmóður að eðlisfari, en get þó oftast stjórnað þessari hvöt nokkuð vel.

6. Patience, Guns N'Roses



Næst er annað lag sem tengist þolinmæði og þrá. Mér fannst þetta lag gífurlega flott þegar ég var unglingur, en í dag hefur það tekið á sig dýpri merkingu en mig hafði nokkurn tíma grunað, og ennþá finnst mér það flott.

7. Right Here Waiting, Richard Marx

Næsta lag kom mér gífurlega á óvart sem fínn inngangur í tónlist hljómsveitarinnar. Sungið er um mikilvægi sjálfsvirðingar og sjálfstrausts, og það hversu mikilvægt er að hlusta, meina hvað maður hefur að segja, láta aðra ekki hafa of mikil áhrifa á sig og að halda huganum opnum fyrir nýjum hugmyndum.

8. Nothing Else Matters, Metallica 



Næsta lag fjallar rétt eins og Smile eftir Charlie Chaplin um mikilvægi þess að þrauka þegar erfitt er.  Í stað þess að brosa er ráðið sem R.E.M. gefur að bíða eða halda sér fast

9. Everybody Hurts, R.E.M.



Síðasta lagið á listanum mínum er alltaf þægilegt áheyrnar. Píanóleikari situr á bar og syngur um fólkið sem er í kringum hann. Það biður hann um að syngja fyrir þau minningar, eða óskalög. Kannski rétt eins og þessi listi minn er.

10. Piano Man, Billy Joel



Þannig er listinn. Sérstakar þakkir til habbakriss fyrir að gefa mér hugmynd að góðri bloggfærslu sem gaman er að skrifa og safna saman á YouTube, en um daginn setti hún saman skemmtilegan lista um góða íslenska tónlist. Ég gerði mér far um að hlusta á þau lög og hafði gaman af. Vonandi hafið þið, lesendur mínir, gaman af að smella á þessi myndbönd og hlusta á einhver þeirra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: arnar valgeirsson

þetta var skemmtilegt hjá þér Hrannar. Það eru greinilega lag og texti sem í samkrulli mynda þitt uppáhalds. Ég var glaður að sjá að i þér bærist þungarokkari lítill, þó mildur sé. En þetta eru flott lög og ég ætla einhverntíma að stela þessari hugmynd og setja inn hjá mér. Þar verður líka sittlítið af hverju, eins og hér, raftónlist og rokk og ról...

arnar valgeirsson, 15.4.2007 kl. 16:54

2 identicon

Berrassaður félagi.

Hvernig væri að hnoða saman lista sem inniheldur eftirlætis kvikmyndatónlist?

kv. Sancho

Hafliði Ingason (IP-tala skráð) 15.4.2007 kl. 19:28

3 identicon

já vissi ekki að þú hefðir þennan litla þungarokkara í þér

Oddur Ingi (IP-tala skráð) 15.4.2007 kl. 22:00

4 Smámynd: Haukur Nikulásson

Still got the blues er ekki þarna heldur Friday on my mind af einhverjum ástæðum.

Skemmtileg uppröðun. 

Haukur Nikulásson, 15.4.2007 kl. 22:44

5 Smámynd: Hrannar Baldursson

Haukur: Takk! Búinn að laga þetta.

Oddur Ingi og Arnar: Jú, maður er léttur þungarokkari í sér, og rétt Arnar, ég pæli mikið í textum.

Sancho: góð hugmynd, og hvenær ætlarðu að blogga aftur hjá mér sem gestur? 

Hrannar Baldursson, 15.4.2007 kl. 22:54

6 identicon

gríðarlega vandaðrar úttektar má vænta í vikunni.

Hafliði Ingason (IP-tala skráð) 16.4.2007 kl. 00:03

7 Smámynd: Hrannar Baldursson

Mig hlakkar til, Sancho.

Hrannar Baldursson, 16.4.2007 kl. 01:07

8 Smámynd: Hrannar Baldursson

Eða á maður að segja, ég hlakka til (?)

Hrannar Baldursson, 16.4.2007 kl. 01:08

9 Smámynd: Hafrún Kristjánsdóttir

Flottur listi.  Flest þessara laga gætu á einhverjum tíma verið á mínum lista (hann breytist eftir skapi, stemmingu, aðgengi, veðri og árstíð).  Held þó að Carpenters  systkyni, Gary Moore og Billy Joel ættu erfiðast um vik.  Finnst þó lögin alls ekki slæm.  Eitt af mínum uppáhaldslögum er þarna, Everybody Hurts.  Svo er líka þarna hljómsveitin sem prýðir desktopið mitt - Bítlanir.

Hafrún Kristjánsdóttir, 16.4.2007 kl. 01:44

10 Smámynd: Hrannar Baldursson

Hafrún: Takk. Þessi listi er reyndar líka síbreytilegur, og ef ég hefði ekki sett mér takmörk væru þarna eingöngu lög með Queen og Bítlunum.

Hrannar Baldursson, 16.4.2007 kl. 11:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband